Bæjarráð Hornafjarðar
1227. fundur
28. júlí 2026
kl.
10:00
-
11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Gerð er grein fyrir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Með viðaukanum er óskað eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 12,15 m.kr. sem gert er ráð fyrir að verði mætt með lækkun á handbæru fé og tilfærslu að upphæð 1,2 m.kr. úr A í B hluta. Meðfylgjandi yfirlit sýnir fjárhagsleg áhrif viðaukans á samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2026.*
2.
Reglur um farsíma og þátttöku í farsímakostnaði starfsmanna.
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um farsíma og þátttöku í farsímakostnaði starfsmanna. Með reglunum er kveðið á um skilyrði fyrir þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði vegna símaþjónustu starfsmanna, notkun farsíma í eigu sveitarfélagsins og framkvæmd samninga þar að lútandi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um farsíma og þátttöku í farsímakostnaði starfsmanna.*
3.
Breyting á framkvæmdastjóra hjá Gagnaveitu Hornafjarðar ehf
Fjármálastjóri óskar eftir heimild til að skipa Hjalta Þór Vignisson framkvæmdastjóra Gagnaveitu Hornafjarðar ehf. og veita honum, ásamt fjármálastjóra sveitarfélagsins, prókúru félagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Hjalti Þór Vignisson verði framkvæmdastjóri Gagnaveitu Hornafjarðar og hann, ásamt Valdísi Ósk Sigurðardóttur fjármálastjóra sveitarfélagsins, verði prókúruhafar.*
4.
Deiliskipulag - endurskoðun deiliskipulags Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, HSU og deiliskipulags austan Víkurbrautar, svæði S3
Á síðasta fundi bæjarráðs var óskað eftir drögum að erindisbréfi fyrir vinnuhóp um skipulag og þróun velferðarkjarna við Víkurbraut 24-30. Gerð hefur verið tillaga að erindisbréfi fyrir vinnuhópinn sem lögð er fyrir fundinn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagt erindisbréf með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.*
5.
Umsókn um byggingarheimild - ný vélageymsla á Seljavöllum III
Reynir Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Lagt er fram erindi Hjalta Egilssonar ehf. þar sem sótt er um leyfi til byggingarframkvæmda að Seljavöllum III. Fyrirhugað er að reisa um 420 m² vélaskemmu. Um er að ræða límtrésskemmu á steyptum sökkli. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem landbúnaðarsvæði.
Fyrirhuguð framkvæmd hefur verið grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. einnig 4. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð telur framkvæmdina vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Við grenndarkynningu bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að byggingarleyfi verði veitt vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar.*
Bæjarráð telur framkvæmdina vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Við grenndarkynningu bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að byggingarleyfi verði veitt vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar.*
6.
Úrbætur á bílastæðum við Jökulsárlón
Beiðni Náttúruverndarstofnunar um að fá leyfi til að stækka tímabundið bílastæðið í Eystri-Fellsfjöru. Náttúruverndarstofnun hefur leitað eftir umsögnum hjá Vegagerðinni og Landsneti.
Bæjarráð telur framkvæmdina óverulega. Hún hafi ekki í för með sér varanleg áhrif á land og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012. Því er beint til Náttúruverndarstofnunar að taka tillit til umsagna sem borist hafa.
Samþykkt samhljóða.*
Samþykkt samhljóða.*
7.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Deildarstjóri þjónustu og framkvæmda óskar eftir heimild bæjarráðs til að fara með verkið í verðfyrirspurnarferli. Minnisblað deildarstjóra lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að heimila deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að fara í verðfyrirspurnarferli vegna framkvæmdarinnar Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbætur.
8.
Leigusamningur um færanlegan skúr til notkunar við Gáruna móttökustöð sorps á Höfn
Óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til þess hvort halda eigi áfram að leigja núverandi skrifstofuvagn eða kaupa notaðan eða nýjan skrifstofugám fyrir móttökuaðstöðu á móttökustöðinni.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram og fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif og þá eftir atvikum gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna kaupa á notuðum gámi.
9.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Verkfærni ehf. sækir um lóðina Vesturbraut 29. Fyrirhugað er að reisa á lóðinni raðhús og munu framkvæmdir hefjast 15. janúar 2027 og ljúka 15.janúar 2029.Fjármagna á framkvæmdir með bæði eigið fé og lánsfé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta Verkfærni ehf. lóðinni að Vestubraut 29.*
10.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 31
Verkfærni ehf. sækir um lóðina Vesturbraut 31. Fyrirhugað er að reisa á lóðinni raðhús og munu framkvæmdir hefjast 15. janúar 2027 og ljúka 15.janúar 2029.Fjármagna á framkvæmdir með bæði eigið fé og lánsfé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta Verkfærni ehf. lóðinni að Vestubraut 31.*
11.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Myllulækur 12 - F2359327
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Myllulækur 12 - F2359327. Umsækajndi er: Jökladekk ehf., kt.580602-2150. Hámarksfjöldi gesta: 4.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
12.
Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs upplýsir um að kæran hefur verið afturkölluð og málið því fellt niður.
Lagt fram til kynningar.
13.
Vatnsból í Nesjum
Reynir Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið.Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram minnisblað ásamt öðrum gögnum um málefni vatnsbóls í Nesjum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að óska eftir fundi með landeiganda eftir miðjan ágúst.
* Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.
* Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.