Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1228. fundur
11. ágúst 2026 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fyrirspurn um lóð fyrir kaffihús
Málsnúmer 202607078
Fyrirspurn um lóð undir atvinnurekstur barst.
Skipulags- og byggingafulltrúa falið að kortleggja mögulegar lóðir fyrir verslun og þjónustu og annað atvinnuhúsnæði.
2.
Smárabraut - hraðatakmarkanir
Málsnúmer 202608009
Minnisblað deildarstjóra lagt fram með upplýsingum um mögulegar aðgerðir til að koma til móts við athugasemdir íbúa varðandi hraðakstur á Smárabraut.
Deildarstjóra þjónustu og framkvæmda falið að vinna málið áfram til að auka umferðaröryggi á Smárabraut.
3.
10.bekkingar í hádegismat í Nýheimum í vetur.- Tilraunaverkefni
Málsnúmer 202608003
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs lagt fram með tillögu um að 10. bekkingar snæði hádegisverð í Nýheimum hjá Framhaldsskóla Austur- Skaftafellssýslu á komandi skólaári.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að fylgja málinu eftir og fjármálastjóra að gera mat á fjárhagslegum áhrifum og viðauka vegna aukins kostnaðar sem þetta hefur í för með sér.
4.
Fyrirspurn um frágang götu við Sæbraut 5.
Málsnúmer 202604060
Sæbraut - jarðvinna og lagnir. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að fara með verkið í verðfyrirspurnarferli. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að heimila deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að fara í verðfyrirspurnarferli vegna Sæbrautar - jarðvinnu og lagna.
5.
Heimsókn ríkisstjórnarinnar
Málsnúmer 202608016
Umræður um heimsókn ríkisstjórnarinnar þann 13. ágúst næstkomandi.
Umræður og kynning á dagskrá heimsóknar ríkisstjórnarinnar 13. - 14. ágúst næstkomandi.