Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1230. fundur
25. ágúst 2026 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 52
Málsnúmer 2608008F
Eyrún Fríða Árnadóttir sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað. Fundargerð velferðarnefndar nr. 52 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 118
Málsnúmer 2607005F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 118 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 140
Málsnúmer 2608002F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 140 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um byggingu íþróttahúss nr. 53 lögð fram ásamt kynningu verkefnastjóra.
Fundargerðin og kynningin lögð fram til umræðu og kynningar.
5.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Málsnúmer 202608058
Drög að verk- og tímaáætlun fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2027-2031 eru lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða verk- og tímaáætlun fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027-2031.
6.
Endurskoðun samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins
Málsnúmer 202608065
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram minnisblað með tímaáætlun vegna endurskoðunar samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tímaáætlun vegna endurskoðunar samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins.
7.
Málefni Gagnaveitu Hornafjarðar
Málsnúmer 202505053
Lögð er fram tillaga KPMG að uppleggi að söluferli Gagnaveitu Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við upplegg frá KPMG og undirbúa söluferli.
8.
Reglur um akstursþjónustu aldraðra
Málsnúmer 202104011
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu aldraðra.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um akstursþjónustu aldraðra og vísar málinu til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu.
9.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Málsnúmer 202104012
Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks og vísar málinu til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu.
10.
Reglur um stuðningsþjónustu
Málsnúmer 202505009
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um stuðningsþjónustu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um stuðningsþjónustu og vísar málinu til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu.
11.
Reglur um stoðþjónustu
Málsnúmer 202505038
Lögð eru fram drög að endurskoðuðum reglum um stoðþjónustu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur um stoðþjónustu og vísar málinu til bæjarstjórnar til formlegrar afgreiðslu.
12.
Beiðni frá íbúum varðandi frágang á göngustígum og auðum svæðum á Leirusvæði
Málsnúmer 202608043
Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda um frágang á göngustígum og opnun svæðum á Leirunni lagt fram.
Ingibjörg Sveinsdóttir og Reynir Ásgeirsson viku af fundi undir þessum lið. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók sæti Ingibjargar.

Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að gera kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og tillögu að lausnum til að ljúka frágangi á Leirusvæði.

Samþykkt samhljóða.
13.
Ósland - endurbætur á göngustíg
Málsnúmer 202608022
Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda um endurbætur á göngustígum í Óslandi lagt fram.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd sem hefur samkvæmt erindisbréfi hlutverk stjórnar fólksvangs í Óslandi.

Samþykkt samhljóða.
14.
Lóðir fyrir verslun og þjónustu á miðsvæði
Málsnúmer 202608026
Minnisblað skipulags- og byggingafulltrúa varðandi þjónustulóðir innan þéttbýlis lagt fram.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsnefnd að þróa svæðið á Hafnarbraut, á milli ráðhúss og pósthúss, fyrir verslunar- og þjónustulóðir.
15.
Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu
Málsnúmer 202512003
Ingibjörg Sveinsdóttir vék af fundi undir þessum lið og Björgvin Óskar Sigurjónsson tók hennar sæti á fundinum. Verkefnastjóri uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja leggur fram tvær tillögur að breyttu umferðarskipulagi og útfærslu bílastæða á hafnarsvæðinu. Meginmarkmið tillagnanna er að auka öryggi í tengslum við starfsemi á hafnarsvæðinu og vegfarenda á svæðinu, auk þess að tryggja greiðara umferðarflæði og bæta við skiltum og merkingum á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa þessum hugmyndum til umræðu í hafnarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd auk þess sem bæjarstjóra er falið að bera hugmyndirnar undir hagsmunaaðila á svæðinu til umsagnar.
16.
Undirbúningur framkvæmdar - Sæbraut - jarðvinna og lagnir
Málsnúmer 202608027
Sæbraut - jarðvinna og lagnir - opnun tilboða. Minnisblað deildarstjórra þjónustu og framkvæmda lagt fram.Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á: 7.441.500 kr. Fimm tilboð bárust í verkið frá eftirtöldum aðilum: Rósaberg ehf: 5.209.200 kr. eða 70% af kostnaðaráætlun. Guðni Þór Valþórsson: 5.985.260 kr. eða 80,43% af kostnaðaráætlun. Skaftverk ehf: 6.237.578 kr. eða 83,82% af kostnaðaráætlun. Gröfuþjónusta Olgeirs ehf: 6.449.017 kr. eða 86,66% af kostnaðaráætlun. Skaftverk ehf. - frávikstilboð: 6.736.578 kr. eða 90,53% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að ganga til samninga við Rósaberg ehf., sem er lægstbjóðandi í verkið, á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.
17.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Málsnúmer 202506071
Leikvöllur í Nesjum - opnun tilboða. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á: 7.667.500 kr. Tvö tilboð bárust í verkið frá eftirtöldum aðilum: Rósaberg ehf: 15.248.000 kr. eða 198,87% af kostnaðaráætlun. Guðni Þór Valþórsson: 17.487.100 kr. eða 228,07% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að hafna öllum tilboðum þar sem þau eru óaðgengileg sbr. 2. mgr. 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Deildarstjóra þjónustu og framkvæmda er jafnframt falið að skipta verkefninu upp í fleiri þætti og setja í verðfyrirspurnarferli.

Samþykkt samhljóða.
18.
Dýralæknaþjónusta
Málsnúmer 201102070
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um stöðu málefna dýralæknis á svæðinu.
Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu málefna dýralæknis í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra er falið að vinna áfram í málinu.

Samþykkt samhljóða.
19.
Samningur um mannauðsmál við Attentus
Málsnúmer 202406019
Mannauðsstjóri leggur til að samningi um bakhjarl í mannauðsmálum verði sagt upp.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að samningi um bakhjarl í mannauðsmálum verði sagt upp fyrir næstu mánaðarmót.
20.
Fundatími nefnda og ráða 2026 - 2030
Málsnúmer 202608062
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram yfirlit yfir fundatíma nefnda og ráða kjörtímabilið 2026-2030.
Lagt fram til kynningar.
21.
Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga
Málsnúmer 202608066
Skráning er hafin á landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn er af Jafnréttisstofu á Akureyri fimmtudaginn 17. september. Sveitarstjórnir skulu eigi síðar en ári eftir sveitastjórnarkosningar leggja fram til samþykktar áætlun um jafnréttismál til næstu fjögurra ára.Í jafnréttisáætluninni skulu sveitarfélög setja sér markmið og tilgreina aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli eftirfarandi laga:Lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.Lög nr. 85/2018 um jafna meðferð einstaklinga utan vinnumarkaðar.Lög nr. 86/2018 um jafna meðferð einstaklinga á vinnumarkaði.
Stefnt er að því að einn starfsmaður og einn kjörinn fulltrúi sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Bæjarstjóra er falið að taka ákvörðun um hverjir sækja fundinn í samráði við sviðsstjóra velferðarsviðs og kjörna fulltrúa.

Samþykkt samhljóða.