Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1233. fundur
15. september 2026 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Stefán Freyr Jónsson varamaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 13
Málsnúmer 2609005F
Fundargerð íbúaráðs í Suðursveit og Mýrum nr. 13 lögð fram.
Stefán Freyr Jónsson sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna minnisblað um málefni tengd Vegagerðinni sem rædd voru á fundinum og vísar málefnum rétta og fjallskila til atvinnu- og menningarmálanefndar.

Samþykkt samhljóða.
2.
Skjálftinn - hæfileikakeppni unglinga
Málsnúmer 202609041
Forsvarsmenn Skjálftans - hæfileikakeppni unglinga á Suðurlandi koma á fundinn og ræða möguleikann á að halda næstu keppni á Höfn.
Bæjarráð þakkar kynninguna á verkefninu og er jákvætt fyrir framhaldinu. Skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar er falið að vinna málið áfram með verkefnastjórum Skjálftans.

Samþykkt samhljóða.
3.
Skipurit 2026
Málsnúmer 202609043
Í tengslum við endurskoðun samþykktar sveitarfélagsins um stjórn og fundarsköp eru hugmyndir um tilfærslu verkefna og endurskoðun skipurits og annarra tengdra mála svo sem nefnda og ráða o.fl. Bæjarstjóri gerði munnlega grein fyrir þeim hugmyndum sem verið er að skoða í tengslum við skipurit sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samvinnu við sviðsstjóra og leggja minnisblað fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.
4.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram fundarpunkta frá fundi með landeiganda auk upplýsinga sem aflað var af sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Bæjarráð felur forseta bæjarstjórnar, formanni bæjarráðs og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ræða framhald málsins við landeiganda miðað við fyrirliggjandi upplýsingar.

Samþykkt samhljóða.
5.
Ósk um malbikun Björgunarmiðstöð
Málsnúmer 202609028
Ósk um malbikun framan við Björgunarmiðstöð - minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að vinna málið áfram og vísa því til fjárhagsáætlunargerðar.

Samþykkt samhljóða.
6.
Félagsheimili í Lóni
Málsnúmer 202609038
Komið hefur fram ósk um að nýta félagsheimili í Lóni sem vinnustofu fyrir list- og menningarstarfsemi.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í íbúaráði Nesja og Lóns.

Samþykkt samhljóða.
7.
Smíðarými í Vöruhúsi
Málsnúmer 202609046
Erindi frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu þar sem lagðar eru fram tillögur um nýtingu á smíðarými í vöruhúsi, óskað eftir samstarfi um rýmið og styrk til að fullbúa rýmið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að samningi um verkefnið og leggja fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.
8.
Umsögn - Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Málsnúmer 202609039
Til umsagnar í samráðsgátt er tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði. Umsagnarfrestur er til 23. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn um tækifærisleyfi vegna Tónlistarhátíðar á Vestrahorni - V23 ehf.
Málsnúmer 202609030
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna tónlistarhátíðar á Vestrahorni. Umsækjandi er V23 ehf., kt. 580820-1900. Áætlaður gestafjöldi er 700 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
10.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Stöðull 1 Öræfum - F218076 -
Málsnúmer 202609045
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Stöðull 1 Öræfum - F2182076. Umsækjandi er: 785 FHM ehf., kt. 710817-1460. Hámarksfjöldi gesta: 2.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
11.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi flokkur II- B stærra gistiheimili - Hafnarbraut 11
Málsnúmer 202609044
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Central Stay Hofn, Hafnarbraut 11 - 2180656. Umsækjandi er: Andreyn ehf., kt.561222-0290. Hámarksfjöldi gesta í rými 03: 20.Hámarksfjöldi gesta í rými 04: 17.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
12.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202509060
Lagðar eru fram tillögur að hagsmunagreiningu, nýju deiliskipulagi og skipulagslýsingu ásamt greinargerð og eldra deiliskipulagi á Heppusvæði auk athugasemda við samningsdrögin frá Maren Albertsdóttur, lögmanni sveitarfélagsins í málinu.
Lögð er fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa K lista: Gerð er athugasemd við að undir umræðunni hafi setið fulltrúi B lista sem skilgreindur er í gögnum málsins sem hagsmunaaðili í málinu og þar af leiðandi mögulega vanhæfur við meðferð málsins samkvæmt 3. grein stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Bæjarráð felur bæjarstjóra, í samráði við lögmann sveitarfélagsins í málinu að vinna málið áfram og leggja drög að samningi fyrir bæjarráð að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.