Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1234. fundur
22. september 2026 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Stefán Freyr Jónsson varamaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 53
Málsnúmer 2609007F
Fundargerð Velferðarnefndar nr. 53 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202509060
Ingibjörg Sveinsdóttir vék af fundi undir þessum lið og hennar sæti tók Björgvin Óskar Sigurjónsson, Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók við fundarstjórn.



Maren Albertsdóttir mætir á fundinn og gerir grein fyrir vinnunni við samningsdrög. Bæjarstjóri gerir grein fyrir næstu skrefum í málinu. Maren er að vinna í lagatæknilegum atriðum varðandi samninginn og hefur kannað lóðarleigusamninga á svæðinu. Samhliða því þarf sveitarfélagið að funda með Landsbyggð og útfæra opin svæði, kanna stöðuna á veitum á svæðinu, hvað fellur undir hvern áfanga og hvernig tímalína í málinu myndi líta út, hvernig lóðir verða afmarkaðar og hver hefur forræði á lóðum og framkvæmdum þar.
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi K-lista leggur fram eftirfarandi bókun: Málið er nú tekið fyrir í fjórða sinn í mánuðinum. Vegna þess hve illa hefur gengið að fá svör varðandi hæfi í meðferð málsins þá óskar áheyrnarfulltrúi K lista eftir því að meirihluti bæjarstjórnar leggi fram minnisblað á næsta fundi bæjarráðs um hvaða atriði valda, að þeirra mati, vanhæfi í málinu svo hægt sé að hafa það skýrt gagnvart öðrum fulltrúum í bæjarstjórn og nefndum sem munu koma að vinnslu og afgreiðslu málsins í framtíðinni.

Bæjarráð er sammála um að óska eftir fundi með Landsbyggð um efnisatriði samnings, verk- og tímaáætlun og útfærslu á hlutverkum aðila.
3.
Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Málsnúmer 202510018
Lára Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands, gerði grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á málefnum heilbrigðiseftirlitsins. Um er að ræða grundvallarbreytingar á eftirlitinu. Enn eru margir lausir endar og mikil óvissa um framvinduna. Hætta er á þjónusturofi og auknum kostnaði.
Bæjarstjóra er falið að undirbúa breytingar sem verða á heilbrigðiseftirlitinu um áramót með starfsmönnum sveitarfélagsins.
4.
Ósk um malbikun Björgunarmiðstöð
Málsnúmer 202609028
Sæbraut 5 - frágangur götu og lóðar. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að fá fjárhagslegt mat á kostnaðinum hjá fjármálastjóra.
5.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Málsnúmer 202506071
Leikvöllur í Nesjum - endurskoðuð verð. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.



Kostnaðaráætlun við verkið hljóðaði upp á 9.339.668 kr.



Tvö tilboð bárust í verkið frá eftirtöldum aðilum:

Rósaberg ehf. 9.608.950 kr. eða 103% af kostnaðaráætlun.

Guðni Þór Valþórsson 8.773.014 kr. eða 94% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að ganga til samninga við Guðna Þór Valþórsson, sem er lægstbjóðandi í verkið, á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.
6.
IceLagoon höllin 2026-2027
Málsnúmer 202609059
Erindi frá Körfuknattleikssambandi Íslands varðandi atriði sem leikvellir í efstu deild þurfa að uppfylla en er ábótavant í IceLagoon höllinni.



Bæjarráð felur verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja að ræða fram komnar hugmyndir við forstöðumann íþróttamannvirkja og körfuknattleiksdeild Sindra og bera þær í framhaldinu undir Körfuknattleikssamband Íslands.
7.
Endurskoðun á fimleikaakstri
Málsnúmer 202609075
Fallastakkur ehf. hefur óskað eftir að samningur félagsins við sveitarfélagið verði endurskoðaður. Minnisblað bæjarstjóra lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að taka upp viðræður við Fallastakk ehf. um samninginn og gera tillögur að útfærslu á þeim hluta sem snýr að frístundaakstri.

Samþykkt samhljóða.
8.
Fundur með þingmönnum Suðurkjördæmis
Málsnúmer 202609079
Bæjarstjóri leggur fram drög að áhersluatriðum fyrir fund með þingmönnum Suðurkjördæmis sem áætlaður er 28. september næstkomandi. Áhersluatriðin eru eftirfarandi: 1. Vatnajökulsþjóðgarður; Atvinnuuppbygging við Jökulsárlón, Skaftafell og Höfn og lög um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni. 2. Álögur og innviðir. 3. Nýlegar og áætlaðar vegbætur. 4. Veggjald yfir Hornafjörð. 5. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu. 6. Grynnslin/Hornafjarðarós. 7. Björgunarmiðstöð í Öræfum. 8. Fjallaskóli Íslands.
Bæjarráð leggur til að skerpt verði á áherslum varðandi gestastofur, Fjallaskólann og berghlaup í Svínafellsheiði. Þá er lagt til að jafnframt verði lögð áhersla á landshlutaskiptingu og málefni heilbrigðiseftirlitsins.

Samþykkt samhljóða.
9.
Erindi frá stéttarfélögum um efnahagslegan stöðugleika
Málsnúmer 202609057
Starfsgreinasamband Íslands, VR, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandið óska eftir afstöðu sveitarfélagsins til aðgerða til að tryggja efnahagslegan stöðugleika.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að svörum og leggja fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.
10.
Umsögn - 4.mál - Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl.(markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón)
Málsnúmer 202609077
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 4.mál - frumvarp til laga um varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón).



Frestur til að skila inn umsögnum er til 1. október nk.



Lögð eru fram drög að umsögn frá sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að senda umsögnina inn.

Samþykkt samhljóða.
11.
Umsögn - 5.mál - Sveitarstjórnarlög
Málsnúmer 202609078
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5.mál - Sveitarstjórnarlög.



Frestur til að skila inn umsögnum er til 1. október 2026.



Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs þar sem fjallað er um helstu breytingar samkvæmt frumvarpinu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að hafa frumvarpið til hliðsjónar við vinnu að breytingum um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.