Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1236. fundur
6. október 2026 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 121
Málsnúmer 2609004F
Formaður bæjarráðs bar upp tillögu um að bæta einum dagskrárlið við fund bæjarráðs, mál nr. 202609059 Icelagoon höllin. Tillagan samþykkt samhljóða.



Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 121 lögð fram
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 286
Málsnúmer 2608016F
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 286 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Íbúaráð - Nes og Lón - 13
Málsnúmer 2609016F
Fundargerð íbúaráðs Nesja og Lóns nr. 13 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Ósk um nýtingu á Fundarhúsi Lónmanna
Málsnúmer 202609038
Sveitarfélaginu barst beiðni um að fá að nýta fundarhúsið í Lóni. Málið hefur nú verið tekið fyrir á fundi íbúaráðs Nesja og Lóns.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að samningi um nýtingu á fundarhúsinu og leggja fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.
5.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202510042
Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram minnisblað varðandi fjárhagsstöðu barnaverndarþjónustu á yfirstandandi ári. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir því að útgjöld vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu, stuðnings inn á heimilum, vistunar- og meðferðarúrræða stefni fram úr áætlun. Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð 6.700.000 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
6.
Skólasamfélagið í Öræfum
Málsnúmer 202609055
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs vegna málefna Grunnskólans í Hofgarði lagt fram.



Bæjarráð leggur áherslu á að þéttu samtali verði haldið áfram við íbúa í Öræfum og leitað allra leiða til að finna lausnir varðandi skólahald í samráði við íbúa Öræfa. Formanni fræðslu- og frístundanefndar og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að boða til fundar og kynna þær aðgerðir sem þegar hafa verið samþykktar og ræða hugmyndir að framhaldinu.

Samþykkt samhljóða.
7.
Beiðni um fjárstyrk vegna uppsetningar farsímamasturs í Dalsnúp Þórisdal
Málsnúmer 202507034
Lagt er fram mál er varðar styrkbeiðni Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum (FSS) vegna lagningar innviða (rafmagns og ljósleiðara) að nýju farsímamastri í Dalsnúp.



Vísað er til afgreiðslu bæjarráðs frá 12. maí sl., þar sem lýst var yfir jákvæðri afstöðu til erindisins með fyrirvara um mat á fjárhagslegum áhrifum, sem og samþykktar bæjarráðs frá 16. júní sl. á 4. viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 þar sem styrkfjárhæðinni var mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir veitingu styrks að fjárhæð allt að 10.000.000 kr. til Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum til lagningar rafmagns og ljósleiðara vegna farsímamasturs í Dalsnúp. Styrkveitingin er samþykkt með eftirfarandi skilyrðum:
1. Styrkurinn skal greiddur beint til Félags sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum, sem er óhagnaðardrifið hagsmunafélag, og er eingöngu ætlaður til uppbyggingar á opnum innviðum (rafmagni og ljósleiðara) sem nýtast munu svæðinu öllu.
2. Ófrávíkjanlegt skilyrði styrkveitingarinnar er að fjarskiptainnviðirnir verði opnir öllum fjarskiptafyrirtækjum á jafnræðisgrundvelli til að tryggja virka samkeppni, gæði þjónustu og öryggi íbúa og gesta á svæðinu.
3. Styrkurinn greiðist eftir framvindu verksins og gegn framvísun reikninga.

Samþykkt samhljóða.
8.
Stofnfundur samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
Málsnúmer 202610010
Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til stofnfundar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október n.k. kl. 15:00 - 16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.



Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.



Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að skrá sveitarfélagið sem stofnaðila og að bæjarstjóri fari með atkvæði sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
9.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar austurlands 2026
Málsnúmer 202602135
Fundargerð 193. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10.
Umsögn - Verkefnislýsing vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 202610017
Verkefnislýsing vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs hefur verið birt til kynningar. Gefinn er fjögurra vikna frestur til að koma á framfæri umsögnum og ábendingum við verkefnislýsinguna.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Samþykkt samhljóða.
11.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202509060
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram minnisblað um hæfi bæjarfulltrúa í tengslum við beiðni fulltrúa K-lista frá fundi bæjarráðs nr. 1234. Í minnisblaðinu er lögð fram tillaga að fastmótaðri framkvæmd um ákvarðanir tengdar hæfi í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að útfæra verklagsreglur samkvæmt minnisblaðinu og leggja fyrir allar nefndir og ráð sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
12.
IceLagoon höllin
Málsnúmer 202609059
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að fara yfir stöðu verkefna fyrir fyrsta leik Sindra í Bónusdeildinni. Bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að fylgja því eftir að umhirða og þrif í íþróttamannvikjum og á íþróttasvæði séu eins og best verður á kosið.

Samþykkt samhljóða.