Bæjarráð Hornafjarðar
1237. fundur
13. október 2026
kl.
10:00
-
14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Fjármálastjóri leggur fram fyrstu drög að fjárhagsrömmum án launakostnaðar.
Sviðsstjórar fara yfir sína ramma og svara spurningum.
Sviðsstjórar fara yfir sína ramma og svara spurningum.
Bæjarráð þakkar kynninguna og leggur áherslu á að í áframhaldandi vinnu verði römmum haldið innan 2,5% hækkunar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
2.
Árshlutauppgjör 2026
Lagt er fram árshlutauppgjör Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2026. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta er jákvæð um 130,8 m.kr., samanborið við 148,8 m.kr. jákvæða niðurstöðu samkvæmt ársáætlun með viðaukum. Uppgjörið sýnir jafnframt að handbært fé frá rekstri nemur 249,0 m.kr. og handbært fé í lok ágúst 277,2 m.kr.
Árshlutauppgjör sýnir að jafnvægi er í rekstri sveitarfélagsins og niðurstaða fyrstu átta mánaða í takti við áætlanir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Gerð er grein fyrir viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Viðaukinn felur í sér leiðréttingar á samþykktri fjárhagsáætlun ársins auk
viðbótarfjárheimildar. Samanlögð áhrif breytinganna á rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta nema
27,87 m.kr. til lækkunar og verður áætluð rekstrarniðurstaða 148,78 m.kr. Gert er ráð fyrir að
áhrifunum verði mætt með samsvarandi lækkun handbærs fjár, sem áætlað er að verði 271,21
m.kr. í árslok. Meðfylgjandi yfirlit sýnir fjárhagsleg áhrif viðaukans á samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og vísar viðaukanum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Finnur Ármann Óskarsson sækir um lóð Vesturbraut nr. 29 til að reisa einbýlishús. Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir í október 2027 og að hús verði tekið í notkun í október 2029.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að lóðinni verði úthlutað til umsækjanda. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Úttekt nemenda í 4.FG varðandi skólalóð Grunnskólans
Nemendur í 4.FG í grunnskóla Hornafjarðar gerðu úttekt á leik og miðsvæði skólalóðarinnar vegna verkefnis í námsefninu "Halló heimur 3" og ákváðu að gera meira úr því.
Þau tóku myndir og skráðu það sem þarf að laga.
Meðfylgjandi er skýrsla og myndir af því sem má betur fara.
Þau óska eftir að þessum athugasemdum verði fylgt eftir og vilja fá að fylgjast með hvernig málinu miðar.

Bæjarráð þakkar 4. FG fyrir erindið og felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að vinna málið áfram og upplýsa 4. FG um stöðu mála í byrjun nóvember.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Stöðuleyfisumsókn Matarvagn kjúklingakebab
Svetlin Krasimirov Valentinov sækir um stöðuleyfi við Nýheima fyrir matarvagn.
Bæjarráð felur atvinnu- og menningarmálanefnd að endurskoða reglur um farandsölu og samþykkt og gjaldskrá um götu og torgsölu.
Bæjarráð felur skipulags- og byggingafulltrúa að vinna málið áfram og fá upplýsingar frá umsækjanda.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur skipulags- og byggingafulltrúa að vinna málið áfram og fá upplýsingar frá umsækjanda.
Samþykkt samhljóða.
7.
Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass
Deildarstjóri þjónustu og framkvæmda leggur fram minnisblað um ný útboðsgögn og óskar eftir heimild bæjarráðs til að hefja útboðsferli vegna endurnýjunar gervigrass í Bárunni.
Bæjarráð veitir deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda heimild til að hefja útboðsferli vegna endurnýjunar gervigrass í Bárunni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Undirbúningur framkvæmdar - Sindravellir Endurnýjun
Verkefnastjóri uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja óskar eftir heimild bæjarráðs fyrir að hefja útboðsferli í fyrsta áfanga endurnýjunar Sindravallar.
Reynir Ásgeirsson, fulltrúi M lista, leggur fram eftirfarandi bókun: Ég samþykki að senda gervigrasið í útboð en legg áherslu á að framkvæmdin tefji ekki að neinu leyti hönnun og uppbyggingu á nýju íþróttahúsi.
Bæjarráð veitir verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja og deildarstjóra þjónustu og framkvæmda heimild til að hefja útboðsferli vegna endurnýjunar grevigrass í Bárunni.

9.
IceLagoon höllin
Aðgerðalisti vegna framkvæmda í IceLagoon höllinni lagður fram.
Undirbúningur fyrir fyrsta leik í Bónus deildinni gekk vel og það tókst að ljúka flestum atriðum á listanum. Næsti heimaleikur verður 23. október og þá ætti allt að vera tilbúið. Stemning var á leiknum og bæði leikmenn og dómarar ánægðir.

Bæjarráð felur starfsmönnum á umhverfis- og framkvæmdasviði og fræðslu- og frístundasviði að fylgjast áfram með aðstæðum og framkvæmdum í IceLagoon höllinni.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss nr. 55 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Skólasamfélagið í Öræfum
Fundað var með foreldrum leik- og grunnskóla í Öræfum 8. október. Þar komu fram hugmyndir sem lagðar eru fyrir bæjarráð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að teikna upp sviðsmyndir um skólahald í Öræfum og greina fjárhagslega þætti við hverja leið.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.