Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1238. fundur
20. október 2026 kl. 10:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð 56. fundar stýrihóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Skólasamfélagið í Öræfum
Málsnúmer 202609055
Erindi frá foreldrum barna í Öræfum lagt fram.

Farið var yfir umræður frá fundi fræðslu- og frístundanefndar 19. okt. sl. og minnisblöð sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs.





Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að halda áfram samtali við skólasamfélagið í Öræfum og upplýsa foreldra sem sendu inn erindi um framvindu málsins.

Samþykkt samhljóða.
3.
Umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr.382018
Málsnúmer 202610028
Lögð eru fram drög að umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (mál nr. FRN26040125 í Samráðsgátt stjórnvalda).



Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar veigamiklar breytingar á framkvæmd og umgjörð þjónustu við fatlað fólk, m.a. um lágmarksstærð þjónustusvæða, lögfestingu samræmds mats á stuðningsþörfum (SIS-mats), nýjar reglur um forgang í félagslegu húsnæði fyrir einstaklinga sem sæta öryggisráðstöfunum, samræmda grunnskráningu og formlegt notendasamráð.
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að senda inn umsögn vegna málsins og fylgja henni eftir.

Samþykkt samhljóða.
4.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Málsnúmer 202509060
Ingibjörg Sveinsdóttir vék af fundi undir þessum lið og Björgvin Óskar Sigurjónsson tók hennar sæti á fundinum.



Gögn vegna uppbyggingar miðbæjar á Heppusvæðinu lögð fram, drög að deiliskipulagi, framkvæmdakostnaði og samningi um uppbygginguna. Maren Albertsdóttir lögmaður fór yfir samningsdrögin og skipulagið.



Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að haldin verði íbúakosning á tímabilinu 30. nóvember til 14. desember næstkomandi. Bæjarstjóra er falið að móta spurningu fyrir kjörseðil fyrir fund bæjarráðs 27. október næstkomandi. Bæjarstjóra er jafnframt falið að óska eftir kjörskrárgerð hjá Þjóðskrá Íslands og undirbúa opinbera kynningu og auglýsingu kosningarinnar í samræmi við 2. mgr. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Maren Albertsdóttur lögmanni er falið að ganga frá samningsdrögum og leggja til samþykktar fyrir bæjarráð 27. október. Bæjarráð leggur til að boðað verði til aukafundar bæjarstjórnar 3. nóvember kl. 13:00 þar sem ákvörðun verður tekin um íbúakosningu og nánari framkvæmd hennar.

Samþykkt samhljóða.
5.
Skipurit 2026
Málsnúmer 202609043
Gauti Árnason vék af fundi undir þessum lið og Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók sæti á fundinum. Ingibjörg Sveinsdóttir tók við fundarstjórn.



Sviðsstjórar stjórnsýslu- og fjármálasviðs og velferðarsviðs leggja fram minnisblað með tillögu að breytingum á sviðunum og tilfærslu starfa.
Áheyrnarfulltrúi K-lista lýsir yfir áhyggjum af fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á stjórnsýslu- og fjármálasviði Sveitarfélagsins Hornafjarðar, þar sem lagt er til að leggja niður störf verkefnastjóra markaðs- og kynningarmála og deildarstjóra skrifstofu- og þjónustudeildar.

Fulltrúi K-lista hefur áhyggjur af því að svo umfangsmikil tilfærsla verkefna yfir á annað starfsfólk geti leitt til aukins álags á starfsfólk, minni sérhæfingar og skertrar þjónustu við íbúa. Fulltrúi K-lista telur mikilvægt að áður en endanleg ákvörðun er tekin liggi fyrir skýrari greining á áhrifum breytinganna á þjónustustig, verkefnaálag og starfsemi sveitarfélagsins. Hagræðing í rekstri má ekki verða til þess að draga úr aðgengi íbúa að þjónustu, upplýsingum og skilvirkri stjórnsýslu.

Bæjarráð samþykkir tilfærslu- og breytingar á störfum og felur sviðsstjórum stjórnsýslu- og fjármálasviðs og velferðarsviðs að útfæra starfslýsingar og afhendingu verkefna samkvæmt nýju skipulagi og miða við að það taki gildi um áramótin með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Þá er sviðstjórunum falið að leggja breytingar á skipuriti samkvæmt endanlegu fyrirkomulagi í samræmi við þessar tillögur auk viðeigandi breytinga á samþykktum vegna fjölmenningarráðs fyrir fund bæjarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.
6.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Málsnúmer 202608058
Launaáætlun 2027 lögð fram til kynningar.
Bæjarráð vísar launaáætlun til frekari vinnu starfsmanna stjórnsýslu- og fjármálasviðs.

Samþykkt samhljóða.
7.
Staða slökkviliðsstjóra
Málsnúmer 202610079
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna stöðu slökkviliðsstjóra í sveitarfélaginu. Í minnisblaði er gerð grein fyrir efnislegum rökum fyrir breytingu á starfshlutfalli slökkviliðsstjóra í 100% og forsendum tillögunnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að starfshlutfall slökkviliðsstjóra og eldvarnarfulltrúa verði samtals 100% frá 1. janúar næstkomandi.
8.
Verklag vegna hæfis
Málsnúmer 202610078
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram verklagsreglur vegna hæfismála fyrir nefndir og ráð sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar verklagsreglur vegna hæfismála fyrir nefndir og ráð sveitarfélagsins og felur starfsmönnum nefnda og ráða að kynna reglurnar fyrir viðkomandi fulltrúum ásamt samskipta- og siðareglum kjörinna fulltrúa.
9.
Ráðning mannauðsstjóra
Málsnúmer 202610080
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram minnisblað um ráðningu mannauðsstjóra.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að auglýsa stöðu mannauðsstjóra lausa til umsóknar í samræmi við umræður á fundinum og stefna að því að nýr mannauðsstjóri komi til starfa eigi síðar en um áramótin 2026/2027.
10.
Rekstrarfyrirkomulag Áhaldahúss og Hornafjarðarhafnar
Málsnúmer 202607015
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og deildarstjóri þjónustu og framkvæmda leggja fram minnisblöð um starfsemi áhaldahússins og hafnarinnar.
Bæjarráð samþykkir sölu á búnaði sem ekki er í notkun í áhaldahúsi og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að framtíðarfyrirkomulagi reksturs áhaldahússins og hafnarinnar.

Samþykkt samhljóða.
11.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Málsnúmer 202305064
Lóðarhafi óskar eftir fresti til að afla samþykkis byggingaráforma og hefja framkvæmdir.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita frest til að afla samþykkis byggingaráforma til 1. febrúar 2027 og til að hefja jarðvegsframkvæmdir til 1. maí 2027.
12.
Framkvæmd - strandstígur, lýsing
Málsnúmer 202602051
Deildarstjóri þjónustu og framkvæmda leggur fram minnisblað um innkaup Ljósálfa á strandstíginn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að deildarstjóri þjónustu og framkvæmda fjárfesti í Ljósálfum fyrir strandstíginn samkvæmt framlögðu minnisblaði.
13.
Stöðuleyfisumsókn Matarvagn kjúklingakebab
Málsnúmer 202610025
Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir matarvagn 22. - 24. október næstkomandi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veitt verði stöðuleyfi fyrir matarvagn með fyrirvara um greiðslu fyrir leyfið samkvæmt gjaldskrá.
14.
Ósk um nýtingu á Fundarhúsi Lónmanna
Málsnúmer 202609038
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram drög að afnotasamningi um fundarhús Lónmanna.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð samningsdrög og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.
15.
Styrkbeiðni vegna kvikmyndar Hlyns Pálmasonar, Á LANDI OG SJÓ
Málsnúmer 202602152
Styrkbeiðni frá Still Vivid vegna kvikmyndarinnar Á landi og sjó.
Bæjarráð samþykkir að fella niður reikning vegna vinnu lóðsbáts í tengslum við kvikmyndina. Bæjarráð hefur áður veitt styrk vegna gerðar myndarinnar og veitir því ekki frekari styrk til verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.
16.
Beiðni um styrk frá Kvennaathvarfinu
Málsnúmer 202610082
Beiðni um styrk frá Kvennaathvarfinu.
Bæjarráð synjar styrkbeiðni Kvennaathvarfsins og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða.
17.
Hljóðvistarbásar í Nýheima
Málsnúmer 202610083
Óskað er eftir heimild til að kaupa hljóðvistarbása í Nýheima. Fjármagn er til á lykli sem var ætlað til að endurnýja og bæta aðstöðu í Nýheimum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita fjármagni í innkaupin.
18.
Málefni Kornfélags Austur-Skaftfellinga
Málsnúmer 202610084
Erindi frá Kornfélagi Austur-Skaftfellinga þar sem óskað er eftir stuðningi sveitarfélagins við kaup á þreskivél.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að boða forsvarsmenn kornfélagsins til fundar bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.
19.
Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns
Málsnúmer 202511078
Minnisblað bæjarstjóra um málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gera drög að samningi við rekstraraðila Eystrahorns og leggja fyrir bæjarráð.

Samþykkt samhljóða.
20.
Málefni tengt Svæðisstjórn austursvæðis vegagerðar 2026
Málsnúmer 202609035
Minnisblað bæjarstjóra fyrir fund með svæðisstjóra Vegagerðarinnar lagt fram. Lagt er til að farið verði yfir málefni tengd vetrarþjónustu, þjóðvegi í þéttbýli, girðingum meðfram þjóðvegi, héraðsvegum, bundnu slitlagi og hálkuvörnum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að bæta við umræðulistann göngum undir Lónsheiði og umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins. Þá er honum falið að ítreka ósk um fund með svæðisstjóra Vegagerðarinnar.

Samþykkt samhljóða.
21.
Nemendagarðar
Málsnúmer 202610086
Minnisblað bæjarstjóra um ferð til Borgarbyggðar, þar sem hann kynnti sér nemendagarða, lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að framgangi hugmyndar um nemendagarða.

Samþykkt samhljóða.
22.
Umsögn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - C Minna gistiheimili - Breiðabólsstaður Rof2 - F2542092
Málsnúmer 202608039
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna útgáfu leyfis til reksturs gististaðar í flokki II - C Minna gistiheimili - Breiðabólsstaður Rof2 - F2542092. Umsækjandi er: Halabergur ehf. kt. 550724-0810. Hámarksfjöldi gesta: 9.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.