Bæjarráð Hornafjarðar
1240. fundur
10. nóvember 2026
kl.
10:00
-
13:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Starfsmenn
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 92
Fundargerð 92. fundar atvinnu- og menningarmálanefndar lögð fram.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
1.1
202602128 - Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026
1.2
202509069 - Skaftfellingur
1.3
202602117 - Markaðsstofa Suðurlands - fundargerðir 2026
1.4
202512055 - Atvinnu- og rannsóknarsjóður 2026
1.5
202610085 - Verkefnastyrkir 2027
1.6
202602126 - Starfsemi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar 2026
1.7
202610093 - Reglur um farandsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
1.8
202608055 - Áætlun um refaveiðar
1.9
202610095 - 130 ára afmæli Hafnar 2027
1.10
202610104 - Fjallskil
2.
Fræðslu- og frístundanefnd - 142
Fundargerð 142. fundar fræðslu- og frístundanefndar lögð fram.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.1
2609017F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 114
2.2
202610042 - Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.jan 2027
2.3
202610043 - Frístundastyrkir 2026
2.4
202402127 - Íþróttahús - hönnun
2.5
202510124 - Aðgerðaráætun í lýðheilsu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð
2.6
202602054 - Íþróttaskóli - Íþróttaland
2.7
202610044 - Málefni Kátakots og lengdrar viðveru
2.8
202609055 - Skólasamfélagið í Öræfum
2.9
202609059 - IceLagoon höllin
2.10
202507055 - Skólalóðir endurbætur - Hafnarskóli, Heppuskóli
2.11
202606149 - Styrktar- og afrekssjóður USÚ - endurskoðun á framlagi SVH til sjóðsins
2.12
202610052 - Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing 2027-2031
2.13
202610051 - Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar 2027-2031
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 122
Fundargerð 122. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
3.1
202510014 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
3.2
202604118 - Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
3.3
202610008 - Deiliskipulag Mói á Hnappavöllum
3.4
202610053 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Krosseyjarvegur 21-23
3.5
202610016 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Austurbraut 18, breikkun innkeyrslu
3.6
202507064 - Framkvæmd - færsla gámasvæðis
3.7
202410093 - Efnislosun í þéttbýli Hafnar - viðtökusvæði
3.8
202609110 - Landeignaskrá - Skaftafell 4A, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004318
3.9
202609111 - Landeignaskrá - Skaftafell 4, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004319
3.10
202609121 - Landeignaskrá - Dilksnes og Dilksnes II, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M004334
4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 123
Fundargerð 123. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram.
Fundargerð 123. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram.
4.1
202510014 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
4.2
202303123 - Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
4.3
202410089 - Vegir í náttúru Íslands - Endurskoðun aðalskipulags
4.4
202501021 - Horn - Deiliskipulag
4.5
202606089 - Breyting á deiliskipulagi - Hagahverfi, endurskoðun deiliskipulags
4.6
202610103 - Breyting á deiliskipulagi Skarðshólar
4.7
202610090 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Jökulfellsvöllur
4.8
202402127 - Íþróttahús - hönnun
5.
Álagningarreglur 2027
Lagðar eru fram tillögur um forsendur fjárhagsáætlunar fyrir 2027. Í þeim kemur fram að gert er ráð fyrir að útsvarshlutfall verði áfram 14,97%, sem er lögbundið hámark. Við álagningu fasteignaskatts er gert ráð fyrir að lækka álagningarhlutfall í A-flokki úr 0,33% í 0,30%. Álagningarhlutföll í B- og C-flokki haldast óbreytt, 1,32% og 1,65%. Lóðarleiga verður áfram 1% af fasteignamati lóðar og vatnsgjald helst óbreytt í 0,155%. Jafnframt er gert ráð fyrir að lækka álagningarhlutfall fráveitugjalds úr 0,33% í 0,30% af fasteignamati.
Gjaldskrár vegna sorphirðu og sorpeyðingar hækka um 2,5% milli ára og er almennt gert ráð fyrir sambærilegri hækkun annarra gjaldskráa sveitarfélagsins.
Gjaldskrár vegna sorphirðu og sorpeyðingar hækka um 2,5% milli ára og er almennt gert ráð fyrir sambærilegri hækkun annarra gjaldskráa sveitarfélagsins.
Fulltrúi K-lista gerir athugasemdir við að engir útreikningar eða mat á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á tekjustofnum sveitarfélagsins liggi fyrir. Ekki hefur verið sýnt fram á hvaða áhrif breytingarnar muni hafa á tekjur, sjóðstreymi eða fjárhagslega getu sveitarfélagsins til framtíðar.
Jafnframt liggur ekki fyrir sú greiðsluáætlun sem meirihlutinn hafði boðað að yrði unnin til að skapa forsendur fyrir lækkun fráveitugjalds.
Bæjarráð samþykkir að vísa álagningarreglum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Jafnframt liggur ekki fyrir sú greiðsluáætlun sem meirihlutinn hafði boðað að yrði unnin til að skapa forsendur fyrir lækkun fráveitugjalds.
Bæjarráð samþykkir að vísa álagningarreglum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
6.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031
Fjárhagsáætlun 2027 - 2031 lögð fram til fyrri umræðu í bæjarráði. Áætlunin gerir ráð fyrir að heildartekjur A- og B-hluta verði 5.013 m.kr. árið 2027. Rekstrargjöld eru alls 4.469 m.kr. Rekstrarafgangur A og B hluta fyrir afskriftir er því 543 m.kr.
Fulltrúi K-lista gerir alvarlegar athugasemdir við undirbúning og vinnubrögð við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.
Nú þegar hún er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarráði skortir enn skýringar á fjárhagslegum forsendum hennar, sundurliðaða framkvæmdaáætlun og útreikninga á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á tekjustofna sveitarfélagsins. Þá hefur engin skýr pólitísk forgangsröðun verið lögð fram af hálfu meirihlutans um fyrirhugaðar framkvæmdir, fjármögnun þeirra eða framtíðaruppbyggingu sveitarfélagsins.
Fulltrúi K-lista telur óásættanlegt að kjörnir fulltrúar eigi að taka afstöðu til jafn mikilvægrar stefnumótunar án fullnægjandi upplýsinga og skýrrar sýnar á forgangsröðun meirihlutans. Slík vinnubrögð grafa undan gagnsæi, fagmennsku og möguleikum kjörinna fulltrúa til upplýstrar ákvarðanatöku.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu.
Nú þegar hún er lögð fram til fyrri umræðu í bæjarráði skortir enn skýringar á fjárhagslegum forsendum hennar, sundurliðaða framkvæmdaáætlun og útreikninga á áhrifum fyrirhugaðra breytinga á tekjustofna sveitarfélagsins. Þá hefur engin skýr pólitísk forgangsröðun verið lögð fram af hálfu meirihlutans um fyrirhugaðar framkvæmdir, fjármögnun þeirra eða framtíðaruppbyggingu sveitarfélagsins.
Fulltrúi K-lista telur óásættanlegt að kjörnir fulltrúar eigi að taka afstöðu til jafn mikilvægrar stefnumótunar án fullnægjandi upplýsinga og skýrrar sýnar á forgangsröðun meirihlutans. Slík vinnubrögð grafa undan gagnsæi, fagmennsku og möguleikum kjörinna fulltrúa til upplýstrar ákvarðanatöku.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun til fyrri umræðu.
7.
Umsókn um styrk vegna endurbóta á Stekkhól
Hestamannafélagið Hornfirðingur óskar eftir styrk frá bæjarráði til endurbóta á Stekkhól, félagsheimili Hornfirðings.
Bæjarstjóra falið að ræða við forsvarsmenn hestamannafélagsins um málið.
8.
Skólasamfélagið í Öræfum
Lagt er fram bréf frá Evu Bjarnadóttur, dags. 8. nóvember um skólamál í Öræfum.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagt erindi. Bæjarráð er sammála um að skólamál í Öræfum eru í viðkvæmri stöðu. Hlúa þarf bæði að velferð barna og fjölskyldna sem um ræðir og um leið að halda úti skólastarfi í Hofgarði til framtíðar í samstarfi við nærsamfélagið og starfsfólk. Fræðslu- og frístundanefnd fjallar um málið næst komandi mánudag en unnið er að finna lausnir í málinu.
9.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem hækka 1.jan 2027
Fræðslu- og frístundanefnd lagði til 2,5% hækkun og styðja þar með við kjarasamninga og halda aftur af verðbólgu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða hækkun gjaldskráa um 2,5%.
10.
Frístundastyrkir 2026
Fræðslu og frístundanefnd lagði til að tekin yrði ákveðin skref til hækkunar frístundastyrks og fyrirkomulags hans.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að frístundastyrkir verði hækkaðir í 100.000 krónur fyrir börn á aldrinum 6-18 ára. Styrkir fyrir 5 ára börn verði hækkaðir í 30.000 krónur og 4 ára börn fari að njóta sama styrks.
11.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ - endurskoðun á framlagi SVH til sjóðsins
Fræðslu- og frístundanefnd fól sviðsstjóra að leggja nýjan samning fram til undirritunar.
Mál lagt fram til kynningar.
Mál lagt fram til kynningar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða sviðsstjóra fræðslu - og frístundasviðs falið að rita undir samninginn með áorðnum breytingum.
12.
Greiðslur fyrir heimagistingu 2026
Tillögur að reglum og gjaldskrá fyrir heimagistingu nemenda lagðar fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur.
13.
Hugmynd að samstarfi við Glaciers of Höfn
Samningur við Glacier of Höfn lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning.
14.
Samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Lagt er fram bréf frá framkvæmdastjóra Markaðsstofu Suðurlands um ósk um áframhaldandi samstarf við Markaðsstofu Suðurlands.
Málinu frestað til næsta fundar.
15.
Yfirfærsla eigna Kvískerjasjóðs
Ný samningsdrög er varða yfirfærslu Kvískerjasjóðs til Sveitarfélagsins Hornafjarðar hafa verið send sveitarfélaginu til skoðunar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna samninginn áfram og leggja fyrir bæjarráð í framhaldinu.
16.
Til umsagnar 202.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða umsögn sem var áður kynnt og samþykkt í tölvupósti.
17.
Svínafellsheiði - útgáfa hættumats
Lögð fram gögn sem bárust frá embætti Lögreglustjórans á Suðurlandi um að vöktunarkerfið á Svínafellsheiði hefur greint hreyfingar frá 23. september sl. Þetta eru fyrstu hreyfingar sem greinast með svo skýrum hætti frá því að vöktun hófst haustið 2018. Hreyfingin er hæg og enn er ekki hægt að segja til um hvernig hún muni þróast. Veðurstofan hefur aukið vöktun.
Bæjarráð leggur áherslu á að íbúar á áhrifasvæði mögulegs berghlaupsins verði upplýstir reglulega um þróun mála og hvetur fólk að fylgjast með fréttum frá Veðurstofu Íslands.
18.
Samningsviðauki við Hringrás vegna flutnings og förgunar endurvinnanlegs úrgangs
Í kjölfar samþykktar bæjarráðs um samningsviðauka við Hringrás hafa komið fram ný atriði sem kalla á endurmat á næstu skrefum. Meðfylgjandi minnisblað gerir grein fyrir stöðu málsins og tveimur mögulegum leiðum til áframhaldandi afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir að leið 1 sem sett er fram í minnisblaðinu verði farin. Samkvæmt þessum kosti myndi sveitarfélagið halda gildandi samningi við Hringrás um rekstur móttökustöðvarinnar samkvæmt verkþætti 2 óbreyttum. Viðbótarþjónusta vegna áframhaldandi meðhöndlunar úrgangs yrði boðin út sérstaklega.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
19.
Undirbúningur framkvæmdar - Hagahverfi - göngustígur að verslunarsvæði
Hagahverfi - göngustígur að verlunarsvæði, minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram
Bæjarráð samþykkir samhljóða að göngustígur verði lagður að nýju verslunarsvæði samkvæmt framlögðu minnisblaði.
20.
Ástand afleggjara inn að Haukafelli
Lagt fram minnisblað um fund sem bæjarstjóri átti með fulltrúa Skógræktarfélags Austur-Skaftafellssýslu og fulltrúum frá Landi og skógi.
Bæjarstjóra falið að funda með landeigendum og ræða næstu skref.
21.
Snjómokstur - aðkeypt þjónusta
Viðauki við þjónustusamning um snjómokstur á Höfn lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka en leggur áherslu á góða eftirfylgni og reglulegt mat á gæðum verkefnisins.
22.
Krókheysisbíll - tankbíll
Lagt er fram tilboð sem barst í kjölfar útboðs á nýjum krókheysisbíl í Öræfin fyrir Slökkvilið Hornafjarðar og óskar eftir samþykki fyrir kaupunum. Jafnframt er óskað eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 7.816.000 kr. og að áður samþykkt fjárheimild að fjárhæð 40.000.000 kr. verði færð yfir á fjárhagsáætlun ársins 2027.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að krókheysisbíll verði keyptur samkvæmt framlögðum forsendum. Bæjarráð felur fjármálstjóra að gera viðauka vegna fjárhagsáætlunar 2026 og vinna fjárhagsáætlun 2027 samkvæmt því að greiðsla vegna bílsins verði árið 2027.
23.
Beiðni frá íbúum varðandi frágang á göngustígum og auðum svæðum á Leirusvæði
Opnun tilboða - Leiran-göngustígur og opin svæði. Minnisblað deildarstjóra lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Gröfuþjónustu Olgeirs ehf að upphæð 4.033.230 kr sem er 78,52% af kostnaðaráætlun.
24.
Aðstaða fyrir fjarskiptabúnað á Höfn
Lagt fram beiðini frá Mílu að koma fyrir fjarskiptabúnaði á vatnstanki til að bæta 4G og 5G samband á Höfn.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna að lausn með Mílu um hentuga staðsetningu fyrir fjarskiptabúnað til að tryggja 4G og 5G samband á Höfn. Jafnframt að fara yfir fyrirliggjandi samninga um leigu fyrir fjarskiptabúnað sem festur hefur verið á mannvirki sveitarfélagsins.