Bæjarráð Hornafjarðar
1241. fundur
17. nóvember 2026
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Íbúaráð Öræfum - 13
Fundargerð 13. fundar íbúaráðs í Öræfum lögð fram.
Bæjarráð felur starfsmönnum að kynna íbúum hugmynd að uppsetningu klifurveggjar í Hofgarði áður en nokkuð er aðhafst í málinu.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
2.
IceNAP - verkefni á vegum Rannsóknaseturs Háskóla Íslands
Rannsóknasetrið á Hornafirði sendi inn umsókn um áhersluverkefni SASS með heitið Hornafjörður - lifandi rannsóknarstofa um loftlagsmál.
Þorvarður Árnason, forstöðumaður setursins, mætti á fundinn og kynnti verkefni. Bæjarráð þakkar Þorvarði fyrir kynningu á áhugaverðu verkefni er tengist aðlögun að loftslagsbreytingum og aðgerðaráætlun gagnvart þeim.
3.
Fjárhagsáætlun 2027 - Gjaldskrár
Lagt fram yfirlit yfir gjaldskrár og tillögur að breytingum á þeim í tengslum við fjárhagsáætlun 2027.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela fjármálastjóra að uppfæra gjaldskrár miðað við framlögð gögn og breytingar sem gerðar voru á fundinum. Jafnframt er fjármálastjóra falið að leggja þær gjaldskrár fram til samþykktar sem þarf að birta í stjórnartíðindum.
4.
Fjárhagsáætlun 2027 - Styrkir og samningar
Yfirlit yfir fyrirhugaða styrki og samninga sveitarfélagsins vegna fjárhagsáætlunar ársins 2027 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram, greina einstaka samninga og framlög og leggja aftur fyrir bæjarráð í næstu viku.
5.
Fjárhagsáætlun 2027 - Stofnbúnaður
Lagðar fram óskir um stofnbúnaðarkaup og tillögur um úthlutun.
Bæjarráð óskar eftir frekari röksemdum um ósk stofnana um kaup á stofnbúnaði.
6.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málinu frestað til næsta fundar.
7.
Samstarfssamningur við Akstursíþróttafélag Austur Skaftafellssýslu (ASK)
Lagt fram minnisblað varðandi ósk ASK um aukin árleg framlög til að sinna viðhald og endurbótum, standa fyrir námskeiðum og þjálfunarbúðum og halda áfram uppbyggingu til framtíðar.
Bæjarráð fagnar því mikla starfi sem á sér stað inn ASK. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram.
8.
Birting og miðlun efnis frá sveitarfélaginu
Eyrún Fríða Árnadóttir, fulltrú K-lista, óskaði eftir að tekið yrði fyrir mál um birtingu og miðlun efnis frá sveitarfélaginu í ljósi gervigreindarefnis sem birtist frá stofnunum og að mörkuð yrði stefna í þeim málum.
Eyrún Fríða Árnadóttir lagði áherslu á að efni sem kæmi frá sveitarfélaginu væri samræmt í útliti og að miðlun efnis frá stofnunum væri með ábyrgum hætti. Bæjarstjóra falið að vinna að samræmingu útlits þess efnis sem birtist af hálfu sveitarfélagsins og stofnana þess.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Stafrænt samstarf sveitarfélaga
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga til sveitarfélaga sem taka þátt í stafrænu samstarfi sveitarfélaga.
Til kynningar.
10.
Upplýsingavefur í Gömlubúð
Lagt fram álit frá KPMG um uppsetningu upplýsingavefs í Gömlubúð.
Frestað til næsta fundar.
11.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 38
Gistihúsið Dvergasteinn ehf., kt. 570826-0340, hefur lagt fram umsókn um lóðina að Hafnarbraut 38 í þeim tilgangi að reisa 15-20 herbergja gistihús. Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir um leið og lóð fæst og að þeim verði lokið u.þ.b. innan við eitt ár.
Bæjarráð bendir á að lóðin er ekki laus til úthlutunar. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
12.
Erindisbréf um stofnun stýrihóps um úrgangsmál
Lagt fram minnisblað um erindisbréf vegna stofnunar sérstaks starfshóps um úrgangsmál.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að útbúa erindisbréf og leggja fyrir bæjarstjórn.
13.
Lóðarvilyrði - Bátstangi 8
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs vegna fundar hans og bæjarstjóra með forráðamanni KIDDI JÓNS ehf., lóðarhafa að Heppuvegi 4, ásamt Ívari Smára Reynissyni. Á fundinum voru kynnt áform Landsbyggðar um kaup á Heppuvegi 4 vegna uppbyggingar miðbæjar við höfnina og tekin til umræðu ósk KIDDI JÓNS ehf. um lóðarvilyrði að Bátstanga 8 sem forsendu fyrir sölu fasteignarinnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita KIDDI JÓNS ehf. vilyrði fyrir lóðina að Bátstanga 8 til 12 mánaða á grundvelli 10. gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða. Vilyrðið er veitt með þeim skilyrðum að af uppbyggingu miðbæjar við höfnina verði að veruleika í kjölfar íbúakosningar í desember.
14.
Aðalskipulag - athugasemd við tillögu vegna lóðar að Hlíðartúni 41
Lagt fram minnisblað er varðar málefni Hlíðartúns 41 er varðar skráningar fasteignarinnar.
Bæjarráð ítrekar fyrri afstöðu nefnda og ráða sveitarfélagsins. Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að svara málsaðilum.
15.
Áætlun um refaveiðar
Fyrir fundinum lá minnisblað um fjárhagsleg áhrif hækkunar greiðslna vegna refaveiða.
Lagt fram til upplýsinga.
16.
Skólasamfélagið í Öræfum
Ásta Steinunn Eiríksdóttir, formaður fræðslu- og frístundarnefndar, og Þórgunnur Torfadóttir, sviðstjóri fræðslu- og frístundasviðs, mættu á fundinn undir þessum lið. Fræðslu- og frístundanefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 16. nóvember.
Hjalti gerði grein fyrir fundi með starfsmönnum leik- og grunnskóla í Hofgarði. Kom fram í máli Ástu Steinunnar og Þórgunnar að hagsmunamati barna í Öræfum miðar vel áfram og stefnt er að leggja niðurstöður fyrir fund nefndarinnar í desember. Lagðar voru fram tillögur að reglum um styrk til foreldra í Öræfum þegar ekið er með börn í frístundir. Reglurnar gildi fyrir yfirstandandi skólaár. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur.
17.
Barnvænt sveitarfélag - aðgerðaráætlun 2
Nú þegar annar hringur í Barnvænu sveitarfélagi er að fara í gang þarf að endurnýja samning við Unicef. Samningurinn gildir til þriggja ára og greiðir SVH 200.000 kr á ári til Unicefs fyrir þjónustu þeirra.
Bæjarráð er sammála um að halda áfram þátttöku í verkefninu og felur sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs að rita undir nýja samning.
18.
Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna söngleikjasprengju Leikfélags Hornafjarðar í Sindrabæ
Lögð fram umsókn um tækifærisleyfi í Sindrabæ á vegum Leikfélags Hornafjarðar.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.