Bæjarráð Hornafjarðar
483. fundur
9. nóvember 2009
kl.
16:00
-
18:20
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fjarskiptafélag Öræfinga
Hjalti fór yfir stöðu málsins. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti, fyrir hönd sveitarfélagsins, samkomulag um ljósleiðaravæðingu í Öræfum með þeim breytingum sem urðu á fundinum. Aðrir aðilar samkomulagsins eru Fjarskiptafélag Öræfinga og Fjarski ehf. Heimild til undirskriftar er veitt með því skilyrði að af framkvæmdinni verði virðisaukandi þjónusta fyrir samfélagið.
2.
Viðburðir og ráðstefnuhald í sveitarfélaginu
Hjalti fór yfir málið og greindi frá samskiptum við forstöðumann Menningarmiðstöðvar og veitingahúsaeigendur vegna tónleika o.fl. sem hér haldnir. Samþykkt að vísa til menningar- og tómstundanefndar að fjalla um viðburði, svo sem tónleika o.fl.
3.
Útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
Bæjarráð samþykkir að rekstur á kaffiteríu í Nýheimum verði boðinn út í samræmi við útboðsgögn, dags. 02.11. 2009.
4.
Markaðsstofa Suðurlands
Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið verði aðili að Markaðsstofu Suðurlands og leggi til þess verkefnis kr. 700 þús. árlega. Verður það fé tekið af liðnum kynning sveitarfélagsins. Lögð áhersla á að lækkun fjár til kynninga skerði ekki greiðslur til aðila í sveitarfélaginu sem þeirra hafa notið.
5.
Endurskoðun jarða- og ábúðarlaga
Farið yfir útsend drög að umsögn. Að lokinni yfirferð var samþykkt að senda umsögnina til nefndar á vegum sjávar- og landbúnaðarráðuneytis.
6.
Stuðningur við matvælaframleiðslu í héraði
Hjalti velti upp hugmynd um stuðning við matvælaframleiðslu í héraði sem færi fram í samstarfi við Matís. Lagði hann til að 1 milljón á ári færi til þessa verkefnis. Undir þessum lið var einnig rætt um stuðning við Ríki Vatnajökuls og framtíð þess samstarfs til lengri tíma litið. Bæjarráð samþykkir að hefja viðræður við Matís um málið.
7.
Knattspyrnuhús /gervigrasvöllur
Haukur Ingi fór yfir málið og greindi frá viðræðum við aðila sem hafa mikla reynslu af framkvæmdum við gervigrasvelli. Einnig var rætt um tegund gervigrass á nýjan völl. Samþykkt að Haukur Ingi haldi áfram að vinna að málinu.
8.
Framkvæmdir 2010
Farið yfir tillögur tækni- og umhverfissviðs um viðhaldsverkefni ársins 2010. Heildarupphæð sem áætluð er til viðhaldsverkefna er kr. 23.710.000. í A-sjóð sveitarfélagsins og 6.990.000. í B-sjóð. (Björn Imsland kom inn á fundinn undir þessum hluta.) Farið yfir tillögur að framkvæmdum ársins 2010. Gert er ráð fyrir 200 milljónum til framkvæmda í A-hluta og 92 milljónum í B-hluta.
9.
Íþróttasalur
Haukur Ingi kynnti sex mismunandi gerðir af teppaflísum sem nota mætti á gólf íþróttahúss og víðar. Samþykkt að leggja kr. 2 milljónir til að kaupa hliðartjöld (drapperingar) sem verði fyrsti liður í endurbótum á íþróttasal vegna skemmtanahalds. Féð tekið af óráðstöfuðu.
10.
Forvarnamál
Bæjarstjóri greindi frá fundi með starfsmönnum Menningarmiðstöðvar, grunnskóla og fræðslu- og félagssviðs um forvarnamál. Á fundinum var farið yfir hlutverk þeirra sem koma að þessum málaflokki og ýmsar hugmyndir ræddar. Lagði hann til að forvarnir væru skilgreindar í þrjú stig. Á fyrsta stigi væri almenn fræðsla sem skólarnir bæru ábyrgð á, á öðru stigi væri vinna með sérstaka hópa barna og unglinga sem færi fram undir ábyrgð félagsmiðstöðvar og á þriðja stigi væri hlutast til um stöðu tiltekinna einstaklinga sem væri á ábyrgð félagsmálayfirvalda. Sagði Hjalti að á fundum hafi komið fram að vímuefnanotkun hornfirskra ungmenna væri síst meiri en annars staðar þekkist þó stundum mætti greina sveiflur á milli ára.
11.
Tekjujöfnunarframlag 2009-áætlun
Til kynningar.
12.
Skipting á jörðinni Uppsalir 1
Til kynningar.
13.
Alþjóðleg athafnavika
Til kynningar.
14.
Útleiga á Hrollaugsstöðum
•
Kynnt tilboð í leigu á Hrollaugsstöðum. Eitt tilboð barst, þ.e. frá Birni Þorbergssyni, leiguverð kr. 2.000.000.- á ári. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við tilbjóðanda.
Kynnt tilboð í leigu á Hrollaugsstöðum. Eitt tilboð barst, þ.e. frá Birni Þorbergssyni, leiguverð kr. 2.000.000.- á ári. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við tilbjóðanda.