Bæjarráð Hornafjarðar
492. fundur
17. febrúar 2010
kl.
17:00
-
17:55
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarráð 108
Rætt um OLE II og útgáfu á upplýsingabæklingi fyrir eldri borgara.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Stjórn Sambands. ísl. sveitarfélaga 771
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum milli sín og ráðuneytisins um málefni fatlaðra og sameiningamál, umræður sköpuðust um sameiningamál.Fundargerð til kynningar.
3.
Beiðni um almenna heimild fyrir birtingu upplýsinga um stöðu lána sveitafélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga
Eftirfarandi bókun var samþykkt.
Hér með veitir bæjarráð Hornafjarðar, með vísan til 60. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, Lánasjóði sveitarfélaga heimild að miðla upplýsingum um lán sveitarfélagsins hjá lánasjóðnum opinberlega og til fjárfesta, þ.m.t. upplýsingar um nafn skuldara, tilgang láns, stöðu láns, lánstíma og önnur kjör. Upplýsingunum er miðlað í þeim tilgangi að fjárfestar hafi sem besta mynd af útlánasafni og starfsemi lánveitenda og mun miðlunin einkum eiga sé stað í gögnum frá lánveitanda s.s. í ársreikningum, árshlutareikningum, fjárfestakynningum og afmælisritum.

4.
Malbikunarframkvæmdir í sveitarfélaginu 2010
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu. Samþykkt var að leita eftir verðtilboðum í malbikunarframkvæmdir.
5.
Útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
Málefni kaffiteríu í Nýheimum. Ákveðið að funda með forsvarsmönnum Nýheima við fyrsta tækifæri.