Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

495. fundur
8. mars 2010 kl. 16:00 - 19:20
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs
Dagskrá
1.
Fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar 121
Málsnúmer 201003050
Guðrún spurði um hugsanlega lóð fyrir Skeljung. Haukur svaraði fyrirspurn hennar og öðrum sem fram komu um þetta mál. Halldóra sagðist vilja ítreka að vinna við aðalskipulag þurfi að fara fram. Benti hún fleiri atriði í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndarinnar sem undirstrikuðu það. Vísað til starfsmanna og byggingar- og skipulagsnefndar að vinna deiliskipulag við gatnamót Vesturbrautar og Hafnarbrautar. Spurt um deiliskipulag við Skaftafell. Haukur greindi frá hvað málið snerist um. Málin muni skýrast betur á næstunni.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundargerð heilb. og öldrunarráðs 108
Málsnúmer 201003051
Guðrún fagnaði samstarfssamningi heilbrigðisstofnana á Suðausturlandi og Suðurlandi.
Fundargerð samþykkt.
3.
Stjórn Sambands. ísl. sveitarfélaga 772
Málsnúmer 201003052
Hjalti benti á nokkur atriði í fundargerðinni sem muni skipta sveitarfélögin í landinu miklu svo sem lögfestingu ársfjórðungslegra fjármálaupplýsinga til ríkisvaldsins.
4.
Málefni Eignarhaldsfélagsis Hvata ehf.
Málsnúmer 200911050
Bæjarstjóri fór yfir stöðuna. Lagði til að málinu verði frestað þar til betri gögn bærust. Halldóra óskaði eftir minnisblaði um málið áður en það verður tekið til umræðu í bæjarráði.
5.
Varðar rafræna skjalvörslu og eftirlit héraðsskjalasafna í héraði
Málsnúmer 201003026
Rætt bréf Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 12. febrúar 2010. Fram kom í máli bæjarstjóra að héraðsskjalasöfn muni almennt eiga í erfiðleikum með varðveislu rafrænna gagna samkvæmt upplýsingum starfsmanns héraðsskjalasafnsins. Halldóra lagði til að kannað verði hvað þurfi til að hægt verði að geyma rafræn gögn hér heima og hvaða það muni kosta. Einnig velti hún upp hugmynd hvort Hornfirðingar gætu tekið að sér slíka þjónustu fyrir önnur svæði og Þjóðskjalasafnið.
6.
Viðtaka rafrænna skjalasafna á héraðsskjalasöfnum
Málsnúmer 201003025
Rætt bréf Þjóðskjalasafns Íslands, dags. 12. febrúar 2010. Fram kom í máli bæjarstjóra að héraðsskjalasöfn muni almennt eiga í erfiðleikum með varðveislu rafrænna gagna samkvæmt upplýsingum starfsmanns héraðsskjalasafnsins. Halldóra lagði til að kannað verði hvað þurfi til að hægt verði að geyma rafræn gögn hér heima og hvaða það muni kosta. Einnig velti hún upp hugmynd hvort Hornfirðingar gætu tekið að sér slíka þjónustu fyrir önnur svæði og Þjóðskjalasafnið.
7.
Ósk leikskólasjóra um ráðningur sérkennara/þroskaþjálfa
Málsnúmer 201002074
Vísað til starfsmanna að fara yfir þessi mál með starfsmönnum á fræðslu- og félagssviði starfsmanna sem sinna heilbrigðismálum og félagsþjónustu.
8.
Ósk um aukning á stöðuhlutfalli deildarstjóra sérkennslu við Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201003028
Vísað til starfsmanna.
9.
Ályktun frá leik- og grunnskólastjórum v. stefnu sveitarfél um menntun starfsmanna
Málsnúmer 201002073
Til kynningar. Vísað til fræðslu- og félagssviðs og bæjarstjóra.
10.
Krafa vegna skiptingar björgunarlauna vegna flutningaskipsins Axels
Málsnúmer 201002077
Halldóra spurði um nokkur atriði sem lúta að aðstoð/björgun Axels og þeirri vinnu sem sneri að björgunarlaunum. Hjalti greindi frá hvernig málið var unnið. Málinu vísað til lögfræðings sveitarfélagsins og hafnarstjórnar.
11.
Gjaldskrá fyrir leiguhúsnæði sveitarfélagsins
Málsnúmer 200810081
Stefán fór yfir málið. Fram kom m.a. að núverandi gjaldskrá húsnæðis sveitarfélagsins er orðin nokkurra ára gömul og ekki hækkað samkvæmt breytingum á vísitölu. Spannst mikil umræða um nýtingu og leigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins. Vísað til starfsmanna að semja ný drög að reglum um leigu á húsnæði sveitarfélagsins.
12.
Ósk um leyfi fyrir nýja starfsemi við Jökulsárlón
Málsnúmer 201003029
Hjalti fór yfir málið. Vísað til bæjarstjóra að ræða við umsækjendur, sbr. bréf þeirra dags. 1. mars, sem og núverandi rekstraraðila við Jökulsárlón.
13.
Staða bæjarsjóðs 31. janúar 2010
Málsnúmer 201003030
Ásta fór yfir stöðuna og svaraði fyrirspurnum.
14.
Knattspyrnuhús /gervigrasvöllur - ósk um framkvæmdaleyfi fyrir varnargarð í Sílvík og lagningu gervigrasvallar
Málsnúmer 200802023
Bæjarráð samþykkir að vísa umsóknum tækni- og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu gervigrass og varnargarð í Sílavík til byggingar- og skipulagsnefndar. Samþykkt að kaupa hitabúnað og salernishús.
15.
Breyting á Aðalskipulagi Hornafjarðar, Vatnsveita, hitaveita og þjóðvegur í þéttbýli - matslýsing Skipulagsstofnunar 23. feb. 2010
Málsnúmer 200909035

Skipulagsstofnun, bréf dags. 23. febrúar 2010, matslýsing vegna vinnu við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018 og bréf um kynningu skipulagstillögu með fullnægjandi hætti, sbr. 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingalaga.
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.
16.
Skipulagsvefsjá
Málsnúmer 201003031

Skipulagsstofnun, tölvubréf dags. 23. febrúar 2010, skipulagsvefsjá.
Til kynningar. Hægt er að skoða skipulagsvefsjá á skipulag.is.
17.
Varðar úrskurði um að ekki nægi fyrir sveitarstjórnir að staðfesta fundargerðir án umræðu
Málsnúmer 201003032
Til kynningar.
18.
Áætlanir um úthlutanir framlaga úr Jöfnunarsjóði 2010
Málsnúmer 201003033
Til kynningar. Ásta gerði grein fyrir áætlunum Jöfnunarsjóðs fyrir árið 2010.
19.
Verkefnið: Hættu að hanga- komdu að synda,hjóla eða ganga
Málsnúmer 201003034
Vísað til starfsmanna.
20.
Boð um ráðgjöf í ferðamálauppbyggingu
Málsnúmer 201003035
Til kynningar.
21.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Málsnúmer 200807048
Jarðhitaleit, yfirlit yfir hitastigulsholur. Ómar Bjarki Smárason mætti á fundinn og fór yfir stöðu mála og tillögur að áframhaldandi jarðhitaleit. Samþykkt að unnið verði áfram á þeim grunni sem kynntur var á fundinum.