Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

496. fundur
15. mars 2010 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Byggingar- og skipulagsnefnd 122
Málsnúmer 201003068
Reynir spurði um nýja veglínu yfir Skeiðarársand og hvort útlit sé fyrir að farið verði í þá framkvæmd. Einnig rætt um hvernig nýr vegur samrýmist gildandi aðalskipulagi. Samþykkt að starfsmenn tækni- og umhverfissviðs ræði þessi mál við starfsmenn Vegagerðarinnar. Reynir spurði um byggingarleyfi, sbr. 9. lið í fundargerð byggingar- og skipulagsnefndar. Einnig ræddi hann höfnun á umsókn um byggingu gróðurhúss í Stafafelli og spurði hvað hafi ráðið afstöðu nefndarinnar. Árni og Haukur Ingi gerðu grein fyrir afgreiðslu nefndarinnar. Björn Ingi benti á villandi orðalag í 7. lið byggingar- og skipulagsnefndar. Þarna ætti að standa að um væri að ræða heimild til að reisa varnargarð í Sílavík annars vegar og gera gervigrasvöll hins vegar.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn 122
Málsnúmer 201003069
Hjalti gerði grein fyrir leigu á löndunarkrana til Breiðdalsvíkur. Þá sagði hann björgunarlaunin, sbr. 2. lið, vera í vinnslu hjá lögmanni sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
3.
Viðbygging við Lönguhóla
Málsnúmer 201001065
Útboð viðbyggingar við Lönguhóla
Eftir umræður um útboðið, tímasetningar á útboði og verklok o.fl. atriði samþykkti
bæjarráð að auglýst verði útboð á viðbyggingu við Lönguhóla í samræmi við útboðsgögn eftir breytingar á þeim.
4.
Markaðsstofa Suðurlands
Málsnúmer 200910018
Hjalti fór yfir málið og greindi frá helstu þáttum fyrirhugaðs samkomulags og hvaða breytingar hann vildi sjá áður en það verður undirritað. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri undirriti þjónustusamning við Markaðsstofu Suðurlands. Samþykktin er háð því skilyrði að jafnframt verði gert samkomulag um rekstur upplýsingamiðstöðvar í sveitarfélaginu.
5.
Ósk um umsögn um frumvörp til skipulagslaga, mannvirki og brunavarnir
Málsnúmer 201003072
Fram kom sú skoðun að með breytingum á skipulagslögum væri verið að færa skipulagsvald af landsbyggðinni til höfuðborgarinnar. Bæjarráð óskar eftir að fá til skoðunar álit Sambands íslenskra sveitarfélaga um framangreind frumvörp.
6.
Greinargerð um umhverfisvottun Íslands
Málsnúmer 201003070

Náttúrustofa Vesturlands, bréf dags. 10. desember 2009, greinargerð um umhverfisvottun Íslands, http://www.nsv.is/NSV_skyrslur/Umhverfisvottad_Island.pdf.
Vísað til umhverfisnefndar.
7.
Aðalfundur Lánasjóðs ísl. sveitarfélaga 2010
Málsnúmer 201003071
Bæjarstjóra falið að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum.
8.
Dagur umhverfisins
Málsnúmer 201003057
Vísað til umhverfisnefndar.
9.
Öryggi ungs starfsfólks á vinnustað
Málsnúmer 201003060
Heilsuvernd ehf. , ódagsett bréf, Öryggi ungs starfsfólks á vinnustað.
Vísað til starfsmanna sveitarfélagsins.
10.
Steypustöð
Málsnúmer 201003075

Reynir ræddi stöðu steypustöðvar við innkeyrsluna í bæinn. Haukur Ingi greindi frá væntanlegum flutningi steypustöðvarinnar af núverandi svæði, að það muni gerast í næsta mánuði.
11.
Samstarf sveitarfélagsins, Hólaskóla og Sveitarf. Skagafjarðar um uppbyggingu þekkingarstarfs
Málsnúmer 201003076

Hjalti greindi frá samskiptum við skólastjóra Hólaskóla og sveitarstjórann í Skagafirði og áhuga um samstarf um uppbyggingu þekkingarstarfs. Bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita viljayfirlýsingu við framangreinda aðila.