Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

498. fundur
6. apríl 2010 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Byggingar- og skipulagsnefnd 123. fundur
Málsnúmer 201003124
Rætt um byggingu húss á lóð í Stafafellsfjöllum og 3. lið á dagskrá, lóð undir dælustöð Skeljungs.
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og -öldrunarráð 110
Málsnúmer 201003125
Fundargerð samþykkt.
3.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 50
Málsnúmer 201003126
Fundargerð samþykkt.
4.
Umhverfisnefnd 95
Málsnúmer 201003127
Bæjarráð óskar eftir kostnaðarmati um lagfæringar á miðbæjarsvæði.
Þriðja lið um samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands. Vísað til bæjarstjórnar
Fundargerð samþykkt.
5.
Flutningur málefna fatlaðra til sveitarfélaga
Málsnúmer 200905104
Farið yfir útsend gögn sem liggja fyrir vegna fyrirhugaðs flutnings málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga.
6.
Bifreiðamál hjá málefnum fatlaðra
Málsnúmer 201003128
Þriggja ára rekstrarleigusamningur vegna þeirrar bifreiðar sem nú er notuð vegna starfseminnar er runninn út. Samþykkt að ganga til samninga um kaup á bifreiðinni. Vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun ársins.
7.
Ársreikningar HSSA 2009
Málsnúmer 201003123
Bæjarráð vísar ársreikningnum til bæjarstjórnar.
8.
Staða bæjarsjóðs 28. feb. 2010
Málsnúmer 201003129
Lögð fram staða bæjarsjóðs 28. febrúar og er hún í samræmi við fjárhagsáætlun.
9.
Framtíð byggingarfulltrúaembættisins - Uppsagnarbréf Hákonar Valdimarssonar
Málsnúmer 201003111
Bréf frá Hákoni Valdimarssyni dags. 26. mars 2010 lagt fram þar sem kemur fram að starfslok hans verða í lok júlí n.k. Bæjarráð þakkar Hákoni fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
10.
Ósk um umsögn á breytingu á frumvarpi til sveitarstj. laga nr. 45/1998
Málsnúmer 201003104
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
11.
Ósk Orkustofnunar um umsögn á nýtingarleyfi fyrir efnistöku við Breiðá - Beiðni um framkvæmdaleyfi til efnistöku við Breiðá í Öræfum
Málsnúmer 201001028
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
12.
Bréf Karls Ómars Jónssonar vegna sýningarsals í ráðhúsi og listaverkagjafar verka Svavars Guðnasonar - Gjöf listaverka eftir Svavar Guðnason
Málsnúmer 200901094
Bæjarstjóra falið að gera uppkast að svarbréfi þar sem m.a. verði óskað eftir viðræðum við Karl Ómar Jónsson um Listasafn Svavars Guðnasonar.
13.
Ósk Sambands ísl. sveitarfélaga um að sveitarfélagið taki þátt í rannsóknarverkefni vegna hauggasmyndunar -Rannsókn á gasmyndun á urðunarstað sveitarfélagsin á Mel í landi Fjarðar
Málsnúmer 201003107
Óskað er eftir kostnaðaráætlun fyrir verkefnið áður en endanleg ákvörðun er tekin.
14.
Greiðsla kostnaðar vegna aðalskipulagsgerðar
Málsnúmer 201003110
Til kynningar.
15.
Þjóðminjasafn Íslands, bréf dags. 18. mars 2010, athugasemdir vegna fyrirhugaðra byggingarframkvæmda að Hofi í Öræfum - Umsókn um byggingarleyfi Hof I Austurhús
Málsnúmer 201003021
Grenndarkynningu lýkur 14. apríl og að þeim tíma liðnum tekur byggingar- og skipulagsnefnd endanlega afstöðu til málsins.
16.
Endurgreiðsla á hækkuðu tryggingagjaldi
Málsnúmer 201003106
Til kynningar.
17.
Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni
Málsnúmer 201003119
Bæjarráð tekur heilshugar undir ályktun sem fram kemur í bréfinu.
18.
Ráðstefnan „Æskan - rödd framtíðarinnar“
Málsnúmer 201003130
Vísað til skólanefndar.
19.
Malbikunarframkvæmdir í sveitarfélaginu 2010
Málsnúmer 200910011

Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í nýlagnir og yfirlagnir með malbiki í Sveitarfélaginu Hornafirði, dags. 30. mars 2010. Starfsmönnum falið að ræða við lægstbjóðanda, Hlaðbæ Colas.