Bæjarráð Hornafjarðar
499. fundur
13. apríl 2010
kl.
16:00
-
18:10
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skólanefnd Hornafjarðar 123
Fundargerð samþykkt.
2.
Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 19
Hjalti gerði grein fyrir stöðunni við vinnu að stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðar.
3.
Stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga 773
Undir þessum lið var rætt um verkefnaflutning – málefni fatlaðra – sbr. 2. lið á dagskrá stjórnar sambandsins.
Til kynningar.
Til kynningar.
4.
Tilboð í malbikunarframkvæmdir - opnun tilboða
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu og samstarfi við fyrirtæki á staðnum um fyrirhugaða malbikun. Fram kom að malbikunarfyrirtækið er tilbúið að koma á staðinn og hefja framkvæmdir um 10. maí nk. Verktími alls yrði 10 – 15 dagar. Bæjarráð samþykkir að götur, plön og hafnarsvæði verði malbikað í samræmi við fyrirliggjandi tillögur. Auk þess samþykkt að það malbik sem enn er óraðstafað verði sett á göngustíg á vesturströnd Hafnar. Einnig samþykkt að kanna möguleika á að malbika malarsvæði sunnan við Heppuskóla/íþróttahús. Þeim hluta sem fellur undir höfnina er vísað til ákvörðunartöku í Hafnarstjórn. Bent á að upplýsingar eru komnar á vef sveitafélagsins um málið.
5.
Opnun tilboða - viðbygging við Lönguhóla
(Björn Imsland sat fundinn undir 3. og 4. lið) Tvö tilboð bárust í verkið: Mikael ehf. bauð kr. 33.514.520. og Þingvað ehf. bauð kr. 29.572.700.-. Kostnaðaráætlun var kr. 26.663.999.-. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Þingvað ehf., um verkið.
6.
Drög að svarbréfi Hjalta Þórs Vignissonar vegna sýningarsals - Gjöf listaverka eftir Svavar Guðnason
Farið yfir drög bæjarstjóra að svarbréfi og samþykkt að það fari óbreytt. Undir þessum lið var neðsta hæðin í ráðhúsi skoðuð með aðstöðu til sýningarhalds í huga. Einnig farið yfir möguleika á frekari viðhaldsverkefnum í húsinu. Nýtt yrði það fjármagn sem eyrnamerkt hefur verið viðhaldsverkefnum í ráðhúsi.
7.
Tillaga til þingsályktunar - Byggðaáætlun 2010-2013
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að gera drög að umsögn um þingsályktunartillöguna.
8.
Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis v. ferðaþjónustu að Litla-Hofi
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun rekstrarleyfis til reksturs ferðaþjónustu að Litla-Hofi.
9.
Vegaslóði vegna atvinnuupbyggingar við Fláajökul
Hjalti gerði grein fyrir málinu og samskipti við landeigendur á umræddu svæði. Fram kom að fyrirhugað er að vera með ferðaþjónustu við og á Fláajökli. Til þess þurfi að leggja vegslóða að jöklinum.
10.
Tilnefning fulltrúa í starfshóp um mat á sameiningarkosningum sveitarfélaga
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Árna Rúnar Þorvaldsson sem fulltrúa sinn í starfshópi um mat á sameiningarkostum sveitarfélaga.
11.
Lóðarumsókn - Hagatún 16
Bæjarráð samþykkir að vísa umsókninni til meðferðar í byggingar- og skipulagsnefnd.
12.
Athugasemdir Húsafriðunarnefndar - Umsókn um byggingarleyfi Hof I Austurhús
Vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
13.
Svarbréf Siglingastofnunar vegna óskar um tilfærslu fjármuna vegna bryggjuframkvæmda
Vísað til hafnarstjórnar. Lýst yfir vonbrigðum með afgreiðslu hafnaráðs og Siglingastofnunar.
14.
Skýrsla um samræmd könnunarpróf haustið 2009
Vísað til skólanefndar.
15.
Ársfundur Stapa 2010 - tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins
Til kynningar.
16.
Úrskurður Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins í sjórnsýslumáli nr. 10/2009 Sigurgeir Jónsson Skipting á jörðinni Uppsalir 1
Til kynningar.
17.
Ráðstefna um Kvískerjasjóð 17. apríl 2010
Til kynningar. Fram kom að ráðstefnunni hefur verið frestað.
18.
Ráðstefna Menningarlandið 2010 - mótun menningarstefnu
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
19.
Ósk um tilnefningar til íslensku safnaverðlaunanna
Vísað til menningar- og tómstundanefndar.
20.
Ósk um leyfi til að nota bílastæði við Holt vegna fyrirhugaðrar ferðaþjónustu við Fláajökul
Hjalti greindi frá ósk um að leyft verði nýta bílastæði við Holt vegna fyrirhugaðrar ferðaþjónustu við Fláajökul. Bæjarráð samþykkir erindið.
21.
Tilboð í viðgerð og málun utan húss að Víkurbraut 30
Ásta kynnti tilboð sem húsfélagið í Ekru, Víkurbraut 30, fékk frá Málningarþjónustunni ehf. í viðgerðir og málun utan húss. Tilboðið var tekið fyrir á fundi húsfélagsins 13. apríl sl. Fram kom að nægilegt fjármagn er í viðhaldssjóði hússins fyrir framkvæmdinni. Bæjarráð samþykkir þessa framkvæmd fyrir sitt leyti en hlutur sveitarfélagsins í Víkurbraut 30 er 29,62%. (Ásta vék af fundi.)
22.
Fráveituútráðs við Leiðarhöfða
Haukur fór yfir vinnu Bólholts við fráveituútrás við Leiðarhöfða.
23.
Framgangur byggingar reiðhallar - Samningur um byggingu reiðhús á félagssvæði Hestamannafélagsins Hornfirðings
Einnig greindi hann frá vinnu við reiðskemmuna.