Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

500. fundur
26. apríl 2010 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs
Dagskrá
1.
Fundarg almannavarnanefndar 35
Málsnúmer 201004044
Sagt frá því að nefndin muni aftur funda í kvöld, 26. apríl.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundarg. atvinnumálanefndar 58
Málsnúmer 201004045
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í 2. lið á fundi atvinnumálanefndar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundarg. byggingar og skipulagsnefndar 124
Málsnúmer 201004046
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í 3. lið, breytingar á aðalskipulagi á Lambleiksstöðum á Mýrum og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn. Björn Ingi ræddi 2. lið á dagskrá nefndarinnar. Sagði mikilvægt að hlustað verði á skoðanir íbúanna hvað snertir val á kirkjugarðsstæði. Urðu um þetta mál töluverðar umræður og ræddir möguleikar á staðsetningu kirkjugarðs sem og hugsanlega aukna nýtingu á núverandi svæði.
Bæjarráð samþykkir að 7. lið og 12. lið á fundi nefndarinnar verði vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að úthluta byggingarlóðinni Hagatúni 16 til umsækjanda, sbr. 14. lið á fundi nefndarinnar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð hafnarstjórnar 123
Málsnúmer 201004047
Fram kom að fyrirhugaður fyrirhleðslugarður í Sílavík er verkefni hafnarinnar.
Fundargerð samþykkt.
5.
Fundarg. menningar- og tómstundanefndar 18
Málsnúmer 201004048
Samþykkt að forseti bæjarstjórnar fari til fundar við Karl Ómar Jónsson vegna Svavarssafns.
Fundargerð samþykkt.
6.
Fundarg, umhverfisnefndar 96
Málsnúmer 201004049
Haukur Ingi greindi frá umhverfisviðurkenningum í sveitarfélaginu. Einnig greindi hann frá frekari flokkun sorps. Sagði að nú verði farið að taka á móti hörðu plasti til viðbótar við annað sem flokkað er. Lögð áhersla á kynningu á flokkun.
Fundargerð samþykkt.
7.
Fundargerð svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs 20
Málsnúmer 201004050
Hjalti greindi frá vinnu við verndaráætlun fyrir suðursvæðið.
8.
Áskorun um úrbætur í eldhúsi Mánagarðs
Málsnúmer 200905015
Bæjarráð er jákvætt fyrir ákv. breytingum á eldhúsi í Mánagarði og samþykkir að vísa erindinu til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010.
9.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014
Málsnúmer 201004037
Vísað til umsagnar í hafnarstjórn.
10.
Ósk um styrk og leyfi fyrir ljósalistaverki á nýja vatnstankinum.
Málsnúmer 201004041
Starfsmönnum falið að óska eftir frekari upplýsingum um málið.
11.
Aðalfundarboð 2010 - tilnefning fulltrúa sveitarfélagsins
Málsnúmer 201004051
Bæjarráð tilnefnir og Björk Pálsdóttur, Björgu Erlingsdóttur og Hermann Hansson sem fulltrúa á fundi ráðsins.
12.
Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði -Sjávarútv- og landbúnaðarráðuneytið vegna athugasemda Bændasamtaka Íslands
Málsnúmer 200705034
Til kynningar.
13.
Athugun á viðbrögðum við ábendingum Ríkisendurskoðunar í skýrslum hennar
Málsnúmer 201004036
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarráðs.
14.
Beiðni um framkvæmdaleyfi til efnistöku við Breiðá í Öræfum - leyfi frá Orkustofnun.
Málsnúmer 201001028
Til kynningar.
15.
Hnitakerfi f. Ísland - málþing
Málsnúmer 201004052
Til kynningar.
16.
Ályktun frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Málsnúmer 201004053
Vísað til ungmennaráðs og menningar- og tómstundanefndar.
17.
Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Málsnúmer 200711016

Í reglum um leikskóla segir: „Þegar sótt er um leikskólavist fyrir barn þarf viðkomandi að vera með skráð lögheimili í sveitarfélaginu.“ Rætt um áhrif þessa ákvæðis. Samþykkt að afla ákv. upplýsinga um málið og taka það fyrir á næsta fundi bæjarráð.