Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

501. fundur
3. maí 2010 kl. 16:00 - 18:50
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson framkvæmdastjóri fræðslu -og félagssviðs
Dagskrá
1.
Fundarg. almannavarnanefndar 36
Málsnúmer 201005003
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundarg. skólanefndar 124
Málsnúmer 201005004
Hjalti gerði grein fyrir stöðu mála við ráðningu skólastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar og þeirri vinnu sem fram hefur farið og svaraði fyrirspurnum um umsækjendur. (Árni vék af undi undir þessum lið fundargerðarinnar.) Einnig rætt um samræmd próf og rekstur sundlaugar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundarg. umhverfisnefndar 97
Málsnúmer 201005005
Fundargerð samþykkt.
4.
Ársreikningar 2009
Málsnúmer 201003123
(Lárus Finnbogason sat fundinn (í síma) undir þessum lið.)
Endurskoðunarskýrsla kynnt á fundinum. Farið yfir ársreikning og að lokinni yfirferð var honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
5.
Byggðaáætlun 2010-2013 - umsögn sveitarfélagsins
Málsnúmer 200901057
Hjalti fór yfir drög að umsögn sveitarfélagsins við byggðaáætlun og þær áherslur sem skipta máli fyrir Suðausturland. Bæjarráð samþykkir að senda fyrirliggjandi drög að umsögn um byggðaáætlun með þeirri viðbót að fjalla einnig um samgöngur á svæðinu.
6.
Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hótel Höfn
Málsnúmer 201004042
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Hótel Höfn.
7.
Rannsókn á gasmyndun á urðunarstað sveitarfélagsins á Mel í landi Fjarðar - ósk um þátttöku sveitarfélagsins
Málsnúmer 201003107
Samþykkt að fá nánari upplýsingar um kostnað við framangreint verkefni. Að öðru leyti er bæjarráð sammála um að farið verði í þessa rannsóknarvinnu.
8.
Framkvæmdir við Lönguhóla
Málsnúmer 200909070
Nefndarmenn ásamt starfsmönnum fóru í vettvangsferð á Lönguhóla. Samþykkt að fá fram kostnað við hugsanlegar framkvæmdir.
9.
Skipulag umhverfis Heppuskóla, íþróttahús og sundlaug
Málsnúmer 201005006
Haukur Ingi afhenti teikningu af opnu svæði við Heppuskóla, íþróttavöll og sundlaug og útfærslu landslagsarkitekts á þessu svæði. Hjalti lýsti ánægju sinni með þetta skipulag. Bæjarráð samþykkir að farið verði í malbikun á bílastæði, þar með talið rútubílastæði, milli íþróttahúss/Heppuskóla og íþróttavallar, sbr. framangreint skipulag. Kostnaður á þeirri framkvæmd er um 8 milljónir. Annað sem gera þarf á svæðinu tekið síðar. Gert er ráð fyrir að um 2 milljónir komi frá öðrum liðum á miðsvæði. Því sem upp á vantar vísað til endurskoðunar á fjárhagsáætlun.
10.
Ósk um þáttöku sveitarfélagsins í gerð bílastæða við Silfurbraut 7a,b,c,d.
Málsnúmer 201004043
Haukur fór yfir málið og greindi frá tilurð þess. Vísað til starfsmanna að vinna frekar í málinu.
11.
Deiliskipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum - umsögn HAUST
Málsnúmer 200912034
Til kynningar.
12.
Aðalfundarboð 2010 - RíkiVatnajökuls
Málsnúmer 201004057
Bæjarráð tilnefnir bæjarstjóra sem fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfund Ríkis Vatnajökuls sem haldinn verður 11. maí nk.
13.
Tilk. um endanlegt framlag vegna nýbúafræðslu 2010
Málsnúmer 201005007
Til kynningar.
14.
Félagsheimilið að Holti á Mýrum
Málsnúmer 200804017

Stefán greindi frá því að sambýlið í Hólabrekku hefði ekki lengur not af Holti og hafi skilað lyklum af húsinu.
15.
Reglur fyrir leikskólana á Hornafirði
Málsnúmer 200711016

Reglur um leikskóla - framhaldsumræða af síðasta fundi. Farið yfir þau gögn sem starfsmaður aflaði á milli funda, dags. 27. og 28. apríl. Niðurstaða bæjarráðs er sú að breyta ekki reglum um leikskóla.
16.
Atvinnumál - uppsagnir hjá Ísneti
Málsnúmer 201005008

Halldóra greindi frá því að öllum starfsmönnum Ísnets hafi verið sagt upp störfum. Spurði hún hvort sveitarfélagið hafi einhverjar athugasemdir við þetta. Vitnaði hún til samkomulags sem gert var þegar Veiðarfæragerðin var lögð niður og Ísnet tók við rekstrinum. Hjalti sagði að hann muni hafa samband við yfirstjórn Ísnets og óska eftir skýringum. Árni tók undir áhyggjur Halldóru vegna þessarar lokunar.