Bæjarráð Hornafjarðar
503. fundur
20. maí 2010
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálaráð 203,204 og 205
Óskað eftir að fá upplýsingar um fjárhagsaðstoð það sem af er árinu 2010 miðað við árið 2009. Fundargerð samþykkt.
2.
Húsnæðisnefnd 89
Hjalti gerði grein fyrir væntanlegu tilboði í íbúð á Sandbakka. Bæjarstjóra falið að ganga til samninga í samræmi við tillögur bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Stjórn Samb. ísl. sveitarfélaga 774
Til kynningar.
4.
Ársreikningar 2009 - Hornafjarðarveitur
Hornafjarðarveitur
Hjalti gerði grein fyrir niðurstöðunum og var ársreikningurinn samþykktur.
5.
Framtíð byggingfulltrúaembættisins
Staða byggingarfulltrúa var rædd. Lagt var til að framlengja samning við Verkfræðistofuna um 6-12 mánuði sem var samþykkt.
6.
Gagnaver Glacier Guards
Hjalti gerði grein fyrir málinu og lagði til að sveitarfélagið færi í undirbúningsvinnu sem fyrst. Hjalti leggur til að honum verði falið að ræða við aðila sem hafa þekkingu á gerð kynningarefnis og fái kostnaðaráætlun. Var samþykkt.
7.
Umsókn um stöðuleyfi fyrir hjólhýsi við Jökulsárlón
Bæjarráð samþykkir að veita stöðuleyfi til fjögurra mánaða, sbr. bréf umsækjanda dagsett 17.05. 2010. Samþykkt með fyrirvara um endanlega staðsetningu á hjólhýsi og samþykki allra landeigenda á svæðinu.
Bæjarráð ítrekar þá afstöðu sína að það deiliskipulag sem nú er í vinnslu skuli vera rammi um framtíðaruppbyggingu og starfsemi við Jökulsárlón. Mikilvægt er að mannvirki og þjónustusvæði við Jökulsárlón stækki umtalsvert og þjóni þannig þörfum þeirra tugþúsunda gesta sem sækja svæðið heim árlega.

8.
Ósk um styrk til útg. bókar um örnefni
Málinu vísað til bæjarstjóra.
9.
Samningur um friðun vegsvæðis fyrir ágangi búfjár í sveitarfélaginu Hornafirði
Með samningnum er gert ráð fyrir að Hringvegur (1) frá Almannaskarðsgöngum að Hornafjarðarfljóti og Hafnarvegur (99) frá Hringvegi að Höfn við ristarhlið verði friðaður fyrir ágangi búfjár allt árið. Mörk svæðisins verða endurskoðuð þegar Hringvegi verður breytt um Hornafjarðarfljót. Bæjarráð samþykkir samning við Vegagerðina um friðun vegsvæðis á Hringvegi 1 frá Almannaskarðsgöngum að Hornafjarðarfljóti og Hafnarvegi (99) og felur bæjarstjóra að undirrita hann. Staðgengli bæjarstjóra falið að undirrita samning.
10.
Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir Ferðaþjónustu bænda Brunnhól
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við ofangreinda umsókn.
11.
Ósk um malbikun á húsagötu frá Sandbakkavegi meðfram lóð Litlubrúar - erindi forsvarsmanna fyrirtækja í Miðbæ.
Bæjarráð hafnar erindinu.
12.
Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna 2010
•
Landskerfi bókasafna, bréf dags. 10. maí 2010, tilkynning um aðalfund.
Til kynningar
Landskerfi bókasafna, bréf dags. 10. maí 2010, tilkynning um aðalfund.
Til kynningar
13.
Stjórnunar - og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs tillaga
•
Vatnajökulsþjóðgarður, bréf dags. 12. maí 2010, stjórnunar- og verndaráætlun, bréf og auglýsing. Slóð https://sites.google.com/a/alta.is/vj/, https://sites.google.com/a/alta.is/vj/12-umhverfisskyrsla.
Vísað til bæjarstjórnar

14.
Endurskoðun leigusamnings um land til sorpurðunar í landi Syðri-Fjarðar í Lóni
•
Hjalti gerði grein fyrir samtali við eiganda Fjarðar um urðunarstað í Lóni.
Hjalti gerði grein fyrir samtali við eiganda Fjarðar um urðunarstað í Lóni.
15.
Nýting lauss rýmis í ráðhúsi sumarið 2010
•
Hjalti greindi frá fundi með forsvarsmönnum hönnuða sem eru með aðsetur í Miklagarði. Á þeim fundi var rætt um viðbótarhúsnæði yfir sumartímann fyrir ýmsa starfsemi hönnuða sem þar starfa og annarra sem tengjast þeirri vinnu. Er einkum litið til lauss rýmis í ráðhúsi. Bæjarráð samþykkir að nýta megi þetta húsnæði í sumar á meðan endurbætur innan húss eru ekki hafnar og með skilyrði um viðeigandi umgengni.

16.
Ósk um stækkun lóðar við gistiheimilið í Hafnarnesi
•
Greint frá því að Kristín Guðmundsdóttir í Hafnarnesi óski eftir að sveitarfélagið gefi vilyrði fyrir stækkun lóðar við gistiheimilið. Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til byggingar- og skipulagsnefndar.

17.
Ósk um þáttöku sveitarfélagsins í gerð bílastæða við Silfurbraut 7a,b,c,d.Samningur um framsal á bílskúrsréttindum
•
Haukur Ingi gerir grein fyrir umsókn um byggingarleyfi bílskúra við Silfurbraut 7 c og 7 b. Málinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.
Haukur Ingi gerir grein fyrir umsókn um byggingarleyfi bílskúra við Silfurbraut 7 c og 7 b. Málinu vísað til byggingar- og skipulagsnefndar.