Bæjarráð Hornafjarðar
506. fundur
28. júní 2010
kl.
16:00
-
18:55
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn 124. fundur
Björn Ingi spurði um viðhald á Akurey, Bræðslubryggju og varnargarð í Sílavík. Reynir upplýsti að viðhald á Akurey sé ekki á forræði Hafnarstjórnar.
Fundargerð samþykkt með fyrirvara um undirritun fundargerðarinnar.

2.
Skóla, íþrótta og tómstundanefnd 1. fundur
Björn Ingi spurði um áform um uppbyggingu lista- og verkgreinahúss. Björn Ingi ræddi einnig um stöðu félagsmiðstöðvar í stjórnskipuninni.
Árni tók undir orð Matthildar Ásmundardóttur í fundargerð um félagsmiðstöð. Ræddi Árni í framhaldi að færa þurfi rök fyrir að fara aðra leið en starfshópur um félagslíf unglinga komst að á sínum tíma.
Ásgerður sagði að áformað væri að fara af stað með hugmyndavinnu um uppbyggingu lista- og verkgreinahús. Benti á að leigusamningur á Hafnarbraut 30 þar sem handverksstofur eru nú til húsa rennur út 2014. Þá ræddi Ásgerður þá kosti sem menn sjá í málefnum félagsmiðstöðvar, þ.e. að annað hvort heyri hún undir framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs eða skólastjóra. Talaði Ásgerður um að mikilvægt væri að nýta félagsmiðstöðina enn betur og í samfellu við starf grunnskólans.
Hjalti gerði grein fyrir atburðarrás um málefni félagsmiðstöðvar.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir tómstundafulltrúa veturinn 2010-2011. Bæjarráð felur skóla- íþrótta og tómstundanefnd að meta reynsluna af ríkjandi fyrirkomulagi með félagsmiðstöð. Ákvarðanir um hvort starfsmaðurinn heyrir undir framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs eða skólastjóra teknar í kjölfarið.
Rætt um 4. lið er varðar sérfræðiþjónustu. Rætt um að tryggja verði samvinnu á milli þeirra sem sinna stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra. Einnig rætt um skipulag á þjónustunni. Árni sagði mikilvægt að allar ákvarðanir sem teknar verði í þessum efni leiði til betri árangurs í stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra. Bæjarráð vísar tillögu nefndarinnar til fjárhagsáætlunargerðar árið 2011.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að frítt verði í sund fyrir 18 ára og yngri á Humarhátíð.
Fundargerð samþykkt.

3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd 1. fundur
Haukur Ingi fór yfir erindisbréf nefndarinnar.
Árni spurði um tillögu vegna endurskoðunar aðalskipulags sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarráðs. Kom fram að tillagan hafi ekki verið lögð fram á 1. fundi nefndarinnar. Bæjarráð leggur áherslu á að tillagan komi til umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framsal bílskúrsréttar á Silfurbraut 7.
Rætt um skipulag í Stafafellsfjöllum og nauðsyn þess að fara í endurskoðun á deiliskipulagi í samvinnu við landeigendur, félag sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum og sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt með fyrirvara um undirritun fundargerðarinnar.
Árni spurði um tillögu vegna endurskoðunar aðalskipulags sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarráðs. Kom fram að tillagan hafi ekki verið lögð fram á 1. fundi nefndarinnar. Bæjarráð leggur áherslu á að tillagan komi til umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framsal bílskúrsréttar á Silfurbraut 7.
Rætt um skipulag í Stafafellsfjöllum og nauðsyn þess að fara í endurskoðun á deiliskipulagi í samvinnu við landeigendur, félag sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum og sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt með fyrirvara um undirritun fundargerðarinnar.
4.
Staða bæjarsjóðs 31. maí 2010
Lagt fram til kynningar. Hjalti ræddi nýútkomna skýrslu um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
5.
Ósk um umsögn á útg. leyfis vegna dansleikja á Víkinni á Humarhátíð
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
6.
Ósk um styrk og leyfi fyrir ljósalistaverki á nýja vatnstankinum.
Bæjarráð heimilar fyrir sitt leyti að setja upp umrætt listaverk í samvinnu við framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs og arkitekt. Styrkumsókn vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2011.
7.
Stjórnunar - og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs tillaga
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
Bæjarráð Hornafjarðar fagnar þeirri áherslu sem lögð er á útivist og byggðaþróun samhliða náttúruvernd í Vatnajökulsþjóðgarði. Frá því að umræða hófst hefur bæjarstjórn Hornafjarðar á hverjum tíma lagt áherslu á að stofnun og uppbygging garðsins verði til þess að renna styrkari stoðum undir byggð á nærsvæði hans. Þess vegna er mikilvægt að uppbygging mannvirkja, skipulag starfsmannamála og staðsetning starfstöðva garðsins verði til þess að efla byggðir í nágrenni Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að slóðinn inn Heinabergsdal verði opinn almenningi. Vinsælt er að fara inn dalinn og ganga upp úr botni hans til að horfa í Vatnsdal þaðan sem stórfelld jökulhlaup hafa borist niður í byggð og valdið eyðileggingu og erfiðleikum fyrir íbúa.
Talsverð umræða hefur átt sér stað um veglagningu upp úr Hoffellsdal. Landeigendur hafa áhuga á að lengja veginn með það að markmiði að opna nýja leið upp á Vatnajökul. Slík veglagning þarfnast auðvitað undirbúnings en ekki má útiloka strax þann kost að slík veglagning verði einmitt til að fjölga útivistarmöguleikum á svæðinu. Hoffellsfjöll geyma mikla sögu um jöklabreytingar auk þess sem þau eru í sjálfu sér mjög áhugaverð jarðfræðilega. Þrátt fyrir að umrædd leið sé opnuð fyrir akandi umferð eru fjöllin enn sem áður griðland göngumanna, því leiðin frá Geitafelli í Hoffellsnúpa er áfram ósnortin.
Bæjarráð telur mikilvægt að ákveðnum stöðum á jöklinum sé áfram lokað fyrir umferð vélknúinna ökutækja, s.s. Hvannadalshnjúki en telur jafnframt aðrar takmarkanir, þ.m.t. að setja á sérstök akstursbelti, illframkvæmalegar.
Á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs eru fjölbreyttar gönguleiðir. Bæjarráð Hornafjarðar telur mikilvægt að svæðið í heild sinni sé skipulagt sem samfellt útivistarsvæði, allt frá Lónsöræfum og að Skaftafelli.

8.
Eldhús í leikskólanum Lönguhólum - kostnaðaráætlun
Haukur Ingi fór yfir kostnaðaráætlun fyrir breytingar á Lönguhólum. Gerð tillaga um að framkvæmdir verði undirbúnar skv. teikningu frá Arkþing og hugmyndum sem Haukur Ingi greindi frá. Framkvæmdir hefjist á árinu 2011 og tímasettar í samvinnu við starfsfólk skólans.
Samþykkt með tveimur atkvæðum. Björn Ingi sat hjá við afgreiðslu málsins og taldi mikilvægt að unnin verði úttekt á skipan leikskólamála áður en frekari framkvæmdir verði ákveðnar.
Árni Rúnar, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar, lýsti því yfir að hann hefði viljað vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2011 án skuldbindinga og styður því ekki þessa ákvörðun.

9.
Opinber starfsemi á Hornafirði - horfur
Bæjarráð samþykkti eftirfarandi bókun:
Bæjarráð Hornafjarðar vill árétta að gætt verði að því að fyrirhugaður niðurskurður í opinberum rekstri lami ekki starfsemi hins opinbera á landsbyggðinni og veiki þróun samfélagsins. Mikilvægt er að staðinn verður vörður um velferðarþjónustu, s.s. framhaldsskólann, málefni fatlaðra, heilbrigðis- og öldrunarmál og löggæslu, áfram verði stutt við nýsköpunarstarf og rannsóknir sem m.a. fara fram í Nýheimum og annarri starfsemi á vegum hins opinberra s.s. þjónustu sýslumanns, Vegagerðar, Rarik, Fiskistofu og fleiri stofnana.
Mikilvægt er að í vinnu við fjárlagagerð verði hugað að mikilvægi opinberrar starfsemi fyrir einstaka byggðir. Með niðurskurði opinberrar þjónustu á Hornafirði er ljóst að aðgengi íbúa verður lakara en annarra íbúa landsins því mjög langt er í aðra byggðakjarna sem veita sambærilega þjónustu.

10.
Ósk um stækkun lóðar nr. 53 við Ægissíðu
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
11.
Gervigrasvöllur verkstaða
Haukur gerði grein fyrir málinu.
12.
Vinna fyrir ungmenni - bréf Velferðarvaktarinnar
•
Velferðarvaktin, bréf dags. 8. júní 2010, varðar vinnu ungmenna.
Vísað til félagsmálaráðs og atvinnu- og menningarmálanefndar.

13.
Ráðningar í stöður stjórnenda og kennara í leikskólum án auglýsinga - bréf Félags leikskólakennara
•
Félag leikskólakennara, bréf dags. 15. júní 2010.
Vísað til skóla-, íþrótta og tómstundanefndar.

14.
Staða verkefnis um skilgreiningu á vegum innan miðhálendislínunnar og aðgerðaráætlun umhverfisráðherra gegn utanvegaakstri.
•
Umhverfisráðuneytið, bréf dags. 11. júní 2010, staða verkefnis um skilgreiningu á vegum innan miðhálendislínunnar og aðgerðaráætlun umhverfisráðherra gegn utanvegaakstri.
Kom fram að málið hafi fengið umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd á síðasta fundi nefndarinnar. Rætt um einstaka slóða og Hauki Inga falið að koma ábendingum á framfæri.

15.
Kauptilboð í íbúð á Sandbakka nr 218-1173 010101
•
Lagt fram kauptilboð í íbúð á Sandbakka nr 218-1173 010101. Kom fram að tilboðið er í samræmi við fyrri sölur á íbúðum úr umræddri fjölbýlishúsi. Bæjarráð samþykkir að selja umrædda íbúð.

16.
Ósk um umsögn á útgáfu skemmtana og vínveitingaleyfa til handa humarhátíðarnefndar
•
Ósk um umsögn á útgáfu skemmtana og vínveitingaleyfa til handa humarhátíðarnefnd.
1.
Leyfi vegna humarhátíðar dagana 2.- 4. júlí 2010 sbr. umsókn.
Samþykkt.
2.
Einnig er óskað upplýsinga um hvort nefndin hafi leyfi frá sveitarfélaginu til notkunar á Pakkhúsi, íþróttahúsi á Höfn og Akurey til ofnagreinda daga sbr. umsókn.
Samþykkt.
3.
Þá er óskað eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu um hvort nefndinni sé heimilt að halda útiskemmtun á Höfn og á hvaða svæði.
Vísað til starfsmanna að finna svæði fyrir útiskemmtun í samvinnu við undirbúningsnefnd fyrir Humarhátíð.

17.
Uppsögn á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
•
Málefni Kaffiteríu í Nýheimum.
Kom fram að núverandi rekstraraðili hafi sagt upp leigusamningi frá 1. sept 2010. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að rekstraraðilar hætti rekstri á umræddum degi. Bæjarráð leggur áherslu á að haft verði samráð um framtíð rekstrar kaffiteríu í Nýheimum. Árni lagði áherslu á að atvinnu- og menningarmálanefnd verði vettvangur á vegum sveitarfélagsins um þátttöku sveitarfélagsins í rekstri í Nýheimum.