Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

508. fundur
3. ágúst 2010 kl. 13:00 - 00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Stefán Ólafsson staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Umsókn um leyfi til að breyta lóðarmörkum milli Hafnarbr. 24 og Tjarnarbrúar 1
Málsnúmer 201007034
Bæjarráð samþykkir að framangreindum lóðarmörkum verði breytt í samræmi við gögn sem lágu fyrir fundinum.
2.
Uppgjör við Verkís vegna vinnu við sundlaugarbyggingu
Málsnúmer 201006005
Hjalti og Haukur gerðu grein fyrir stöðu málsins og viðræðum þeirra við starfsmann Verkís. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Verkís um skiptingu endanlegs uppgjörs við verkið.
3.
Starf tómstundafulltrúa - ákvörðun um ráðningu
Málsnúmer 201007032
Umsækjendur um starfið eru Herdís Waage, Jón Björnsson og Hólmfríður Þrúðmarsdóttir. Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu starfsmanna um að Hólmfríður Þrúðmarsdóttir verði ráðin í starfið.
4.
Starf umhverfis- og skipulagsmála - ákvörðun um ráðningu
Málsnúmer 201007033
Umsækjendur um starfið eru Einar Már Steingrímsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Guðmundur Baldvin Ólason, Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, Gunnar Fannberg Gunnarsson, Nikólína Jónsdóttir, Ragnar Már Ragnarsson, Sigurgeir Þórðarson, Stefán Þór Steindórsson, Vignir Björnsson, Þórhallur Pálsson. Capacent ráðningar sá um auglýsingu starfsins, móttöku umsókna og úrvinnslu. Í samræmi við skilyrði til umsækjenda sem fram koma í auglýsingu um starfið voru þrír umsækjendur sem uppfylltu öll skilyrði.
Á fundinn mætti einn þeirra umsækjanda sem uppfylltu öll skilyrði, Gunnar Fannberg Gunnarsson. Gerði hann grein fyrir menntun sinni, reynslu á þessu sviði, fjölskylduhögum, áhugamálum og svaraði spurningum bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram viðræðum við Gunnar.
5.
Samningur um sálfræðiþjónustu - endurnýjun samnings
Málsnúmer 200804129
Núverandi samningar, sem voru til 2ja ára, eru runnir út. Bæjarráð felur starfsmönnum að ljúka samningum á þeim grunni sem ræddur var á fundinum.
6.
Verksamningur um þjónustu talmeinafræðings - endurnýjun samnings
Málsnúmer 200805036
Núverandi samningar, sem voru til 2ja ára, eru runnir út. Bæjarráð felur starfsmönnum að ljúka samningum á þeim grunni sem ræddur var á fundinum.
7.
Styrkumsókn v. Skólahreysti
Málsnúmer 201007035
Bæjarráð leggur áherslu á ferðakostnað keppenda frá Hornafirði, sem sveitarfélagið greiðir, vegna þátttöku í þessari keppni. Einnig bendir bæjarráð á að halda megi keppnina hér og þá kæmi styrkur til greina. Styrkumsókn hafnað.
8.
Tilboð í íbúð á Sandbakka 1
Málsnúmer 201008001
Bæjarráð samþykkir sölu á íbúð að Sandbakka 1, íbúð nr. 0101. Bæjarráð samþykkir að starfsmenn gangi frá sölu framgreindrar íbúðar.
9.
Viðbygging við Lönguhóla
Málsnúmer 201001065
Kynnt greinargerð Björns Imsland um stöðu framkvæmda við Sindrabæ og Lönguhóla. Í Sindrabæ þarf að leggja stofna fyrir brunaslöngur, áætlaður kostnaður kr. 350 þús. Bæjarráð samþykkir stofnlögn fyrir brunaslöngur.
Gallar voru í útboðsgögnum vegna hurða. Viðbótarkostnaður þeirra vegna er áætlaður kr. 700 þús. Bæjarráð ekki sátt við mistök í útboðsgögnum.
Á Lönguhólum þarf að kaupa nýja stjórnstöð við brunaviðvörunarkerfi, núverandi stöð er of lítil. Kostnaður áætlaður um kr. 480 þús. Bæjarráð samþykkir kaup á stjórnstöð.
Breyta þurfti legu glugga í viðbyggingu þar sem ekki hafði verið farið eftir arkitektateikningum. Kostnaður kr. 240 þús. Starfsmenn leggja til að samið verði um skiptingu þess kostnaðar. Bæjarráð samþykkir tillögu um skiptingu kostnaðar.
10.
Viðhald í Sindrabæ
Málsnúmer 201005044

11.
Skil gagna um magn og tegundir úrgangs sem móttekinn var árið 2009
Málsnúmer 201007036

Umhverfisstofnun, bréf dags. 12. júlí 2010, skil gagna um magn og tegundir úrgangs sem móttekinn var árið 2009.
Haukur Ingi gerði grein fyrir flokkun og endurvinnslu úrgangs í sveitarfélaginu og um leið að minna magn fari til urðunar.
12.
Starfsemi við Jökulsárlón
Málsnúmer 201003029

Lex lögmannsstofa,bréf dags. 13. júlí 2010, umsókn Ingvars Geirssonar um leyfi til nýs rekstrar við Jökulsárlón.
Til kynningar.
13.
Námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6. september 2010
Málsnúmer 201007037

Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 13.07. 2010, námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6. september nk.
Til kynningar.
14.
Skipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum
Málsnúmer 200912034

Skipulagsstofnun, bréf dags. 15. júlí 2010, deiliskipulag verslunar- og þjónustusvæðis í landi Lambleiksstaða, Sveitarfélaginu Hornafirði.
Til kynningar.
15.
Fækkun hreindýra á svæði 9
Málsnúmer 201008002

Greint frá áhyggjum Sigurðar Guðjónssonar leiðsögumanns af fjölda hreindýra á svæði 9. Sagði dýrum hafa fækkað þar mikið. Taldi hann að tarfafjöldi dygði ekki upp í veiðikvóta þessa árs en fjöldi belja nægði til að fylla upp í kvótann. Hann talaði um nauðsyn þess að friða svæði 9 fyrir veiðum með það að markmiði að fjölga dýrum aftur á svæðinu. Samþykkt að þessi mál verði rædd í umhverfis- og skipulagsnefnd.