Bæjarráð Hornafjarðar
509. fundur
16. ágúst 2010
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundarg. 21. fundur svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 9. ágúst 2010
Unnið er að lokafrágangi verndaráætlunar og var fundur svæðisráðsins liður í að ræða álitamál sem komið hafa upp á svæði sem tilheyrir Sveitarfélaginu Hornafirði. Björn Ingi vakti athygli á ummerkjum vélknúinna ökutækja á landi sem liggja út frá veglóðum inn dali og upp á heiðar. Einnig var bent á sambærileg dæmi um utanvegaakstur slíkra tækja innan bæjarmarka Hafnar.
2.
Útboð á rekstri kaffiteríu í Nýheimum
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti að bjóða rekstur kaffiteríu í Nýheimum út með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Bæjarráð felur starfmönnum að vinna að málinu með forstöðumönnum Nýheima. Bæjarráð leggur áherslu á að eldhúsið í Nýheimum verði ekki notað til framleiðslu og sölu veitinga út úr húsinu. Bæjarráði óskar eftir að fá útboðslýsingu senda í tölvupósti til staðfestingar áður en útboðið fer fram. Bæjarráð leggur til að útboðið verði á forræði bæjarstjóra f.h bæjarráðs.
3.
Umsókn um lóð - gerð lóðarleigusamnings
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
4.
Aðalskoðun leiksvæða - öryggi barna
Leiksvæði á Hornafirði - viðhald og umhirða
Steinunn Hödd Harðardóttir, yfirmaður Vinnuskólans, tók saman greinargerð um leiksvæði í öllu sveitarfélaginu. Borin var fram tillaga um að fjarlægja sandkassa á opnum leiksvæðum sveitarfélagsins og í staðinn að bæta við öðrum leiktækjum, einnig var lögð áhersla á að viðhaldsáætlun nái yfir öll leiksvæði í Sveitarfélaginu Hornafirði. Starfmönnum falið að vinna áfram að viðhaldsáætlun. Bæjarráð þakkar fyrir góða samantekt og leggur áherslu á að hún verði hluti af handbók vinnuskólans þannig að umhirða á leiksvæðum verði unnin á skipulagðan hátt.
5.
Málefni Fuglaathugunarstöðvar
Kom fram að fjárveitingar til stöðvarinnar hafa minnkað mikið með því að fjárlaganefnd ákvað á síðasta ári að styðja ekki við rekstur hennar. Sveitarfélagið hefur veitt árlegan styrk. Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um rekstrarreikninga áranna 2008 og 2009, áætlun um rekstur og verkefni stöðvarinnar áður en bæjarráð tekur afstöðu til erindisins. Að öðru leiti er erindinu vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunarinnar.
6.
Æfingasvæði fyrir skotveiðimenn
Haukur Ingi Einarsson gerði grein fyrir málinu. Starfsmönnum falið að boða skotáhugamenn á fund og leita leiða til að finna svæði undir starfssemi skotáhugamanna.
7.
Starf umhverfis- og skipulagsmála
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Sá aðili sem boðið var starfið sá sér ekki fært að taka starfinu. Starfsmönnum var falið að fara yfir aðra umsækjendur og koma með tillögu að næstu skrefum.
8.
Ferð í Hoffelsfjöll v. vinnu við verndaráætlun Vatnajökulsþjóðg. og vegalagningar landeigenda
Lögð fram samantekt dags. 12. ágúst 2010 sem Hjalti Þór Vignisson vann. Kom fram að áframhaldandi fyrirhuguð veglagning upp úr Vesturdal og að jökli sé eitt af álitamálum sem komið hafa fram í vinnu að verndaráætlun. Kom fram að landeigendur vilja ekki útiloka í framtíðinni að vegur verði lagður að jökli. Bæjarráð telur mikilvægt að þegar gengið verði frá enda vegar verði það gert með því að koma upp afmörkuðum áningarstað.
9.
Dagatal fyrir ágúst/janúar
Bæjarráð fjallaði um dagatal nefnda og ráða sveitarfélagsins. Samþykkt að senda dagatalið á alla bæjarfulltrúa.
10.
Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um úttekt bæjarráðs á kostnaði nemenda við kaup á skólavörum
Rædd tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar sem samþykkt var á 157. fundi bæjarstjórnar.
Undir þessum lið var einnig rætt um hagræðingarmöguleika í innkaupum á ýmsum skólabúnaði sem nemendur þurfa að verða sér út um fyrir hvert skólaár.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs
Árni lagði áherslu á að áfram yrði haldið með skoðun á þessu máli í skólanefnd á þessu skólaári óháð niðurstöðu bæjarráðs fyrir haustið.
Undir þessum lið var einnig rætt um hagræðingarmöguleika í innkaupum á ýmsum skólabúnaði sem nemendur þurfa að verða sér út um fyrir hvert skólaár.
Vísað til fræðslu- og félagssviðs
Árni lagði áherslu á að áfram yrði haldið með skoðun á þessu máli í skólanefnd á þessu skólaári óháð niðurstöðu bæjarráðs fyrir haustið.
11.
Viðhald girðinga- afrit Lex af bréfi til Hestamannafélagsins Hornfirðings
Til kynningar.
12.
Eftirlitsskýrsla v. sorpurðunar 10.júní 2010
Til kynningar.
13.
Breytingar á lögum og reglugerðum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Til kynningar.
Árni Rúnar bendir á mikilvægi þess að sveitarfélagið komi sjónarmiðum sínum á framfæri við vinnuhóp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem falið er að útfæra upplýsingarkerfi sem byggir á mælingu helstu útgjaldaþátta sveitarfélaga. Við þessa vinnu er mikilvægt að sjónarmið sveitarfélaga sem búa við landfræðilega sérstöðu eins og Sveitarfélagið Hornafjörður verði lögð til grundvallar.
Árni Rúnar bendir á mikilvægi þess að sveitarfélagið komi sjónarmiðum sínum á framfæri við vinnuhóp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem falið er að útfæra upplýsingarkerfi sem byggir á mælingu helstu útgjaldaþátta sveitarfélaga. Við þessa vinnu er mikilvægt að sjónarmið sveitarfélaga sem búa við landfræðilega sérstöðu eins og Sveitarfélagið Hornafjörður verði lögð til grundvallar.
14.
SAMÞYKKT um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði heilbrigðisnefndar Austurlands
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
15.
Ósk um styrk til nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
•
NKG verkefnalausnir, bréf ódagsett, ósk um styrk til nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.
Bæjarráð leggur áherslu á ferðakostnað keppenda frá Hornafirði, sem sveitarfélagið greiðir, vegna þátttöku í þessari keppni. Styrkumsókn hafnað.
NKG verkefnalausnir, bréf ódagsett, ósk um styrk til nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.
Bæjarráð leggur áherslu á ferðakostnað keppenda frá Hornafirði, sem sveitarfélagið greiðir, vegna þátttöku í þessari keppni. Styrkumsókn hafnað.
16.
Drög að endursk. landsáætlun um úrgang 2010-2022
Vísaði til umhverfis- og skipulagsnefndar.
17.
Tilfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga
Árni Rúnar gerði grein fyrir síðasta fundi SASS þar sem rætt var um tilfærslu málefna fatlaðra og samstarfsnefnd samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins sem vinnur að tillögum um sameiningarkosti sveitarfélaga.