Bæjarráð Hornafjarðar
512. fundur
6. september 2010
kl.
13:00
-
14:30
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson
framkvæmdstjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerð stjórnar HSSA 112. fundur
Fundargerð stjórnar HSSA 1. fundur
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 3. fundur
Bæjarráð leggur áherslu á að umhverfis- og skipulagsnefnd kynni sér fyrri afgreiðslur á vettvangi sveitarfélagsins um Bugðuleiru 6 áður en lokaákvörðun er tekin.
Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum um stækkun á núverandi kirkjugarðsstæði sem fjallað hefur verið um í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt.
Haukur Ingi gerði grein fyrir hugmyndum um stækkun á núverandi kirkjugarðsstæði sem fjallað hefur verið um í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 776. fundur
Árni spurðist fyrir um fund bæjarstjóra og fullrúa bæjarstjórnar í félagsmálaráðuneytinu varðandi ósk sveitarfélagsins um að vera skilgreint sem sérstakt þjónustusvæði.
Ásgerður gerði grein fyrir lauslega grein fyrir fundinum.
Bæjarráð óskaði eftir skriflegri greingerð um fundinn.
Árni ítrekar fyrri bókanir sínar um málefni endurskoðunar á reglum jöfnunarstjóðs sveitarfélaga.
Til kynningar.

4.
Fundur um sorpmál í sveitarfélaginu 25. ágúst 2010
Haukur Ingi gerði grein fyrir fundinum. Sagði hann að verið væri að hefja undirbúning að endurnýjun starfsleyfis fyrir sorpurðunarstaðinn í Lóni. Starfmönnum falið að vinna áfram að málinu með UST.
5.
Staða bæjarsjóðs 30. júní 2010
Ásta Halldóra fór yfir stöðuna. Kom fram að 17 m.kr. afgangur er af rekstri sveitarsjóðs fyrstu sex mánuðina og 16,7 m.kr. af samstæðunni. Hanbært fé var 305 m.kr. í lok júní. Reksturinn er í samræmi við áætlun.
6.
Ósk um umsögn á kaupum á hlut ríkisins í Hlíðarbergi
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við söluna. Starfsmönnum falið að rita bréf þar að lútandi.