Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

517. fundur
11. október 2010 kl. 13:00 - 15:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Stjórn HSSA 3 fundur
Málsnúmer 201010009
Hjalti lagði fram drög að erindi til heilbrigðisráðherra þar sem farið er fram á leiðréttingar vegna fjárframlaga til HSSA. Bæjarráð samþykkir framlagt erindi.

Fundargerð samþykkt.
2.
Tilkynningaskyldar jarðboranir
Málsnúmer 201010001
Starfsmönnum falið að gera Orkustofnun grein fyrir þeim jaðrborunum sem nú standa yfir í Sveitarfélaginu Hornafirði.
3.
Jarðhitaleitarátak 2008-2010
Málsnúmer 200807048
Haukur Ingi gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr verkefninu. Fram kom að ennþá á eftir að bora nokkrar holur og mæla aftur hitann í þeim holum sem boraðar hafa verið. Bæjarráð felur Hjalta Þór Vignissyni að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum n.k föstudag.
4.
Fjárhagsáætlun 2011
Málsnúmer 201007005
Lögð fram drög að forsendum fjárhagsáætlunar dags, 1. október 2010. Bæjarráð samþykkir að fjalla aftur um málið á næsta fundi sínum. Bæjarráð samþykkir að fjalla um málið á fundi bæjarstjórnar í nóvember. Kom fram að stefnt sé að vinnufundi bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun fyrir árið 2011.
5.
Miðbæjarskipulag við Hafnarbraut, Tjarnarbrú, nýju sundlaug og íþróttasvæði
Málsnúmer 201002029
Haukur Ingi kynnti deiliskipulagið eins og það var samþykkt af umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjórnar.
6.
Úttektir á leik- og grunnskólum
Málsnúmer 201009004
Kom fram að menntamálaráðuneytið samþykkti umsókn um úttekt á Grunnskóla Hornafjarðar, samanber auglýsingu ráðuneytisins frá 4. september 2010.
7.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Lagt fram kauptilboð í eign nr. 218-1176, 01.02.01, bæjrráð samþykkir að veita framkvæmdastjóra fjármála- og framkvæmdasviðs umboð til að ganga til samninga um sölu eignarinnar.