Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

521. fundur
15. nóvember 2010 kl. 16:00 - 18:20
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Ásta H. Guðmundsdóttir Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 4
Málsnúmer 201011027
Björn Ingi óskar eftir nánari skýringu varðandi lið 5 um breytingu á úthlutuðum á styrk og hver er styrkþegi, einnig ræddi hann um fyrirhugað íbúaþing.
Guðrún óskar eftir nánari upplýsingum á erindi Félags ísl safnamanna undir lið 1.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur Atvinnu- og menningarmálanefndar um niðurskurð ríkisins á framlögum til refa- og minkaveiða.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga 780
Málsnúmer 201011028
Til kynningar.
4.
Fundargerð stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 333
Málsnúmer 201011029
Til kynningar.
5.
Staða bæjarsjóðs 30. september 2010
Málsnúmer 201011030
Ásta gerði grein fyrir stöðunni 30. september 2010 og sagði að hún væri í samræmir við endurskoðaða fjárhagsáætlun.
6.
Atvinnumál - minnisblað HÞV
Málsnúmer 201011017
Haukur lagði fram minnisblað bæjarstjóra dags. 11/11 2010.
Guðrún telur að allir styrkir sveitarfélagsins til atvinnumála verði að vera vel skilgreindir.
Bæjarráð gerir það að tillögu sinni að endanleg úrfærsla á verkefnunum verði háð samþykki bæjarráðs.
Björn Ingi telur að þetta mál eigi að fara fyrir bæjarstjórn og einnig sagði hann að það þurfi að fara vel yfir reglur og úthlutun Atvinnu- og rannsóknasjóðs.
Bæjarráð samþykkir að efla Atvinnu- og rannsóknasjóð sveitarfélagsins um 14. m.kr. Samhliða fari fram endurskoðun á úthlutunarreglum sjósins. Að öðru leiti vísar bæjarráð minnisblaðinu til áframhaldandi vinnu.
7.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna funda og ráðstefna utan sveitarfélagsins
Málsnúmer 201008050
Lögð fram samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins vegna funda og ráðstefna utan sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar samþykktini til áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Fjárhagsáætlun 2011 gjaldskrá sorpgjalda
Málsnúmer 201007005
Haukur lagði fram minnisblað dags. 11/11 2010. varðandi breytingu á gjaldskrá sorpgjalda.
Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til bæjarstjórnar.
9.
Útboð á á utanhússviðgerðum á Ráhúsi og tillögur að verkferli vegna Svavarssafns
Málsnúmer 201009078
Björn Imsland mætti á fund undir þessum lið og kynnti kostnaðaráætlun í utanhússviðgerðir á Ráðhúsi skv. útsendum gögnum dags. 9/11 sl.

Bæjarráð samþykki útboð með fyrirvara um samþykki Umhverfis- og skipulagsnefndar.
10.
Umsókn um styrk - FAS - minnisblað verður sent út í tölvupósti eftir fund með aðilum málsins
Málsnúmer 201010083
Miklar umræður sköpuðust um málið, ákveðið að vísa umsókninni til áframhaldandi vinnu og ákvörðun frestað.
11.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
12.
Framhald verkefnis um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.
Málsnúmer 200709025
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar
13.
Fréttatilkynning vegna breytingar á lögum og reglugerðum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Málsnúmer 201008023
Til kynningar
14.
Afrit stjórnsýslukæru Sigurgeirs Jónssonar til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna uppsetningar skiltis með nafninu Sunnuhlíð.
Málsnúmer 200809015
Til kynningar.
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100