Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

524. fundur
6. desember 2010 kl. 12:00 - 00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2011 - viðtöl við forstöðumenn stofnana vegna fjárhagsáætlunarg 2011 12:05-17:05
Málsnúmer 201007005
Forstöðumenn mættu á fundinn undir þessum lið og fór yfir rekstur sinnar stofnunar.
2.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
3.
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 6.fundur
Málsnúmer 201012011
Umræður sköpuðust um liði 1., 2., 5., 6., og 8. lið fundargerðarinnar. Bæjarráð samþykkir að halda áfram stamstarfi um verkefni um hagsmunagæslu í úrgangsmálum.

Fundargerð samþykkt.
4.
Fundargerð 36. fundar stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 201012008
Hjalti gerði grein fyrir 7. lið er varðar tillögu að breytingu á lögum og reglugerð þjóðgarðsins. Bæjarráð leggur áherslu á að allar breytingar á lögum og reglugerð um þjóðgarðsinn verði gerðar í samráði við hagsmunaaðila þjóðgarðsins, bæjarráð felur Bæjarstjóra að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum við stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.

Umræður sköpuðust um lið 1., 5., 6. og 8 lið fundargerðarinnar.

Til kynningar.
5.
Tilboð í gluggaviðgerðir og klæðningar á ráðhúsi
Málsnúmer 201009078
Haukur Ingi gerði grein fyrir tveim tilboðum sem bárust í verkið annað tilboðið er frá Hans Christensen ehf og hitt frá Þingvaði ehf. Voru bæði tilboðin undir kostnaðaráætlun. Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Hans Chrisensen ehf, sem bauð 11.667.059.- kr m.vsk. með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

6.
Fjarskiptamál stofnana sveitarfélagsins
Málsnúmer 200902024
Hjalti gerði grein fyrir framgangi fjarskiptamála stofnana sveitarfélagsins, Bæjarstjóra veitt umboð til að ganga frá málinu. Endanlegur sanmingur verður lagður fyrir bæjarráð.
7.
Deiliskipulag við Jökulsárlón
Málsnúmer 201005046
Hjalti gerði grein fyrir fundum um deiliskipulag við Jökulsárlón. Bæjarráð leggur áherslu á að hafin verði uppbygging á grunni deiliskipulags svo fljótt sem auðið er. Fáist ekki niðurstaða í ferlið á næstunni mun sveitarfélagið kanna kosti þess að skipuleggja þjónustusvæði á vesturbakka lónsins.
8.
Hafnarvík Heppa verkefni
Málsnúmer 200805074
Miklar umræður sköpuðust um Hafnarvík Heppu og hvaða leiðir væru bestar til að fá einstaklinga í lið með sér um uppbyggingu. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
9.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
10.
Auglýsing um styrki til jarðhitaleitar 2010
Málsnúmer 201012007
Vísað til fjármála- og framkvæmdasviðs
11.
Ósk um upplýsingar rusl og úrgangi á ströndum í sveitarfélaginu og útbreiðslu og áhrif þess vanda á lífríki á svæðinu.
Málsnúmer 201012014
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
12.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100
Björn Ingi lagði til að þrenging á þjóðvegi 1 við Mánagarð verði tekin til endurskoðunar. Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.