Bæjarráð Hornafjarðar
527. fundur
3. janúar 2011
kl.
17:00
-
19:40
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Bæjarráð samþykkti að taka til umræðu IP-net Hornafjarðar sem ekki var á dagskrá fundarins.
2.
Fundargerð félagsmálaráðs 212. fundur
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjárhagsáætlun 2011
Rætt um framkvæmdir ársins 2011. Umræður um kynningu á fjárhagsáætlun þann 28. desember. Bæjarráð óskar eftir að vinnu við fjárhagsáætlun vegna framkvæmda og viðhalds verði breytt þannig að hér eftir verði gerð áætlun fyrir eignarsjóð,rekstur hans og framkvæmdir - bæði nýbyggingar og endurbætur.
Helstu framkvæmdir 2011:
Utanhúsviðhald á Heppuskóla 53,5 m.kr. Skóla- íþrótta- og tómstundanefnd hefur unnið að undirbúningi framkvæmda haustið 2010. Stefnt að lagfæringu innan húss á næstu árum.
Yfirbreiðsla sundlaugar 5 m.kr.
Skólalóðir 4 m.kr.
Eldhús á Lönguhólum 7 m.kr.
Utanhúsviðhald í ráðhúsi og gömlu slökkvistöð 20 m.kr.
Svavarsafn og Ástustofa 20 m.kr.
Breyta afgreiðslu í ráðhúsi 10 m.kr.
Reiðskemma lokafrágangur, 4 m.kr. fjármögnun fyrir endurgreiðslu á vsk. vegna framkvæmda 2010.
Fjarskipti, orkumál og annað í dreifbýli 2,5 m.kr.
Frágangur á opnum svæðum, umhverfi stofnana, göngustígar, gangstéttar, gróðursetning og fleira tengt ásýnd sveitarfélagsins 20 m.kr. Umhverfis- og skipulagsnefnd móti framkvæmdaáætlun um þessi verkefni, fjárþörf og forgangsröðun.
Verkefni tengt umhverfismálum, s.s. framkvæmdir á urðunarstað í Lóni og hönnun á endurvinnslumóttöku 4 m.kr.
Bræðslubryggja 3,5 m.kr.
Hreinsun fráveitu á Leirusvæði og í Nesjum 8 m.kr.
Vatnsveituframkvæmdir 5 m.kr.
Undirbúningur vatnsverksmiðju 5 m.kr.
Fjarskiptanet 20 m.kr.
Dæling í Hornafjarðarhöfn 16 m.kr.
Landbrot 1,5 m.kr.
Rannsóknir á Grynnslum 1 m.kr.
Ný brunadæla 2 m.kr.
Viðhald í A-B hluta 17 m.kr.
Yfirlit yfir eignir sveitarfélagsins í félögum og sjóðum verður formlega kynnt á næsta fundi bæjarráðs.
Rætt um framkvæmdir árin 2012-2014. Kom fram að gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á samtals 450 m.kr. Rætt um endurbætur á Heppuskóla, millibyggingu á milli sundlaugar og íþróttahús og nauðsyn á endurbótum á götum, gangstéttum og að bæta umhverfi stofnana og á opnum svæðum.
Undir þessum lið var samþykkt að fá á fund bæjarráðs arkitekt sem vinnur að hönnun endurbóta og breytinga í ráðhúsi og gömlu slökkvistöð.
Bæjarráð fer fram á að steypustöð við innkeyrslu í bæinn verði rifin hið fyrsta. Einnig rætt um umgengni í leigulóðum í Óslandi. Visað til starfsmanna að þeir framfylgi því að unnið verði eftir samþykktum reglum sveitarfélagsins um umgengni utan húss.

4.
Sjúkraflutningar - slökkvilið minnisblað HÞV
(Guðrún Júlía sat fundinn undir þessum lið.)Guðrún og Hjalti fóru yfir minnisblað þar sem m.a er rætt um þjálfun sjúkraflutningamanna og slökkviliðsmanna og samhæfingu þessara tveggja hópa. Bæjarráð samþykkir að Guðrún og Hjalti kalli á sinn fund forráðamenn þessara tveggja teyma til að fara yfir þessi mál og gera tillögur um næstu skref. Undir þessum lið skapaðist almenn umræða um brunavarnir og tækjabúnað slökkviliðs.
5.
Frumkvöðlasetur Austurlands
Hjalti ræddi um málefni Frumkvöðlaseturs Austurlands og greindi frá því að samþykkt hafi verið að selja sveitarfélaginu hlutafé í Frumkvöðlasetri Austurlands fyrir 1 krónu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningum þessa efnis.

6.
Umsókn um rannsóknastyrk vegna tilrauna um ræktun olíufræja í Hornafirði
Lögð fram umsókn frá Kornræktarfélagi Austur-Skaftafellssýslu þar sem óskað er eftir styrk til að gera tilraun á ræktun olíufræja í sveitarfélaginu til framleiðslu á eldsneyti. Vísað til starfsmanna að þeir vinni tillögur fyrir næsta fund bæjarráðs um afgreiðslu umsóknarinnar og fjármögnun hennar.
7.
Atvinnu- og rannsóknarsjóður - endurskoðun á samþykktum
Björn Ingi gerði grein fyrir hugmyndum sínum að breytingum á samþykktum atvinnu- og rannsóknarsjóðs eins og þær lágu fyrir eftir fund atvinnu- og menningarmálanefndar. Bæjarráð er sammmála um reglurnar með áorðnum breytingum að öðru leyti en 10. grein sem fjallar um ákvörðunartöku. Reglunum vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Smiðja - samvinnuverkefni með áherslu á virkni ungs fólks
Hjalti fór yfir málið og greindi frá tilurð þess sem tengist högum ungs fólks. Aðkoma sveitarfélagsins að verkefninu væri fólgin í því að kosta verkefnastjóra yfir verkefninu. Árni spyr hvort fordæmi sé fyrir þessu á öðrum stöðum á landinu. Björn Ingi og Ásta bentu á að það fordæmi sé til staðar.
Vísað til síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2011.

9.
Innsend erindi:
10.
Áskorun til bæjarstjórnar um nýtt vegstæði og brú yfir Hornafjarðarfljót
Kynnt ályktun kvenfélagsins Óskar um nýtt vegstæði og brú yfir Hornafjarðarfljót, samþykkt á fundi félagsins sem haldinn var að Hrollaugsstöðum 4. nóvember 2010. Samþykkt að senda samgönguyfirvöldum bréf vegna þessa máls.
11.
Ályktun frá stjórn Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla og skólamálanefnd þeirra um mikilvægi starfa leikskólafulltrúa hjá sveitarfélögum
Kynnt ályktun stjórnar Félags leikskólakennara o.fl. um mikilvægi starfa leikskólafulltrúa hjá sveitarfélögum. Vísað til skóla-, íþrótta- og tómstundnefndar.
12.
Ósk um lagfæringu á lýsingu á dvalarheimili að Víkurbraut 28
Björn Ingi benti á misræmi milli athugasemda og reglugerðar. Vísað til fjármála- og framkvæmdasviðs.
13.
Samkomulag um framlög til Varasjóðs húsnæðismála
Til kynningar.
14.
Afrit af bréfi Vegagerðarinnar til Sigurgeirs Jónssonar vegna skiltis við Sunnuhlíð
Til kynningar.
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Fyrirspurnir Árna Rúnars Þorvaldssonar:
1. Framlög til HSSA á fjárlögum
Við gerð síðustu fjárlaga mótmæltu sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni fyrirhuguðum niðurskurðaráformum stjórnavalda í rekstri heilbrigðiskerfisins á landsbyggðinni. Sveitarfélagið Hornafjörður var engin undantekning. Bæjarráð mótmælti fyrstu drögum fjárlagafrumvarpsins, aðgerðahópur var stofnaður og áskorun íbúafundar var send stjórnvöldum. Mat bæjarstjórnar, stjórnar HSSA, stjórnenda stofnunarinnar og aðgerðahópsins var að stjórnvöld stefndu grunnþjónustu í sveitarfélaginu í voða með áætlunum sínum. Umræður um niðurstöðu fjárlagafrumvarpsins hafa hins vegar ekki verið jafn áberandi. Því er spurt:
Hver var endanleg niðurskurðarkrafa til HSSA á fjárlögum ársins 2011?
Hverjar voru heildarfjárheimildir stofnunarinnar síðasta ári og hverjar eru þær skv. nýsamþykktum fjárlögum fyrir árið 2011?
Svar bæjarstjóra:
Fjárlög 2010
Fjárlög 2011
Hjúkrunardeild
202.400
206.200
Sjúkradeild
67.700
60.000
Heilsugæsla
116.400
130.000
Dvalarheimili
19.300
19.600
Dagvist
6.800
6.600
Sértekjur
-2.600
-9.100
Samtals:
410.000
413.30
Niðurstaðan er því sú að fjárheimildir HSSA árið 2011 eru 0,2% hærri en árið 2011. Fjárheimildir HSSA eru nú 94,4 þúsund krónur á hvern íbúa á hjúkrunarrými en 119,5 á Blönduósi og 145,1 í Fjallabyggð en þau svæði eru undir sömu skilgreiningu hjá yfirvöldum heilbrigðismála á Hornafirði. Fjárveitingar HSSA á heilsugæslu- og sjúkrasvið eru 90,9 þúsund á hvern íbúa en 117,2 í Fjallabyggð og 99,1 þúsund á Blönduósi. Niðurstaða fjárlaga 2011 hefur því í för með sér að HSSA nálgast fjárveitingar til sambærilegra stofnana en ekki er að fullu tryggður fullur jöfnuður.
2. Gjafir sjávarútvegsfyrirtækja hafa verið til umræðu að undanförnu. Nægir í því samhengi að minnast á fréttir frá 30. desember sl. um 75 milljóna króna gjöf Samherja á Akureyri og Dalvík til samfélagslegra verkefna á Eyjafjarðarsvæðinu. Samherji var annað tveggja sjávarútvegsfyrirtækja innan greinarinnar, sem skilaði mestum hagnaði á árinu 2009 upp á 3,6 milljarða króna.
Fjögur ár eru liðin frá því undirritaður tók við bréfi frá Skinney – Þinganesi þar sem fyrirtækið lýsti yfir vilja sínum til að leggja 60 milljónir til uppbyggingar knattspyrnuhúss í tilefni af 60 ára afmæli fyrirtækisins. Sveitarfélagið hefur ekki ráðist í gerð knattspyrnuhúss en upp er kominn gervigrasvöllur á þeim stað þar sem knattspyrnuhúsið var fyrirhugað.
Í tilefni af áðurnefndri umræðu um gjafir sjávarútvegsfyrirtækja spyr undirritaður hvort það sé stefna meirihlutans í bæjarstjórn Hornafjarðar að reisa knattspyrnuhús á kjörtímabilinu eða hvort fallið hafi verið frá þeim áformum. Ef fallið hefur verið frá áformum um uppbyggingu knattspyrnuhúss þá spyr undirritaður hvort ekki sé rétt að forsvarsmönnum sveitarfélagsins verði falið að kanna áhuga stjórnenda Skinneyjar – Þinganess á öðrum leiðum til að nýta gjöfina í þágu íþrótta – og æskulýðsstarfs á Hornafirði.
Svar bæjarstjóra: Samkvæmt framlagðri tillögu að framkvæmdum ársins 2011 er ekki stefnt að byggingu knattspyrnuhús. Í þriggja ára áætlun 2012-2014 er gert ráð fyrir 450 m.kr. framkvæmdum. Sú upphæð mun ekki duga til að ljúka við endurbætur í Heppuskóla, byggingu á milli Heppuskóla og íþróttahúss og byggingu knattspyrnuhúss. Lögð er áhersla á að gera endurbætur í Heppuskóla og hefja byggingu milli Heppuskóla og íþróttahús á kjörtímabilinu, ljúka við frágang umhverfis stofnanir sveitarfélagsins og á opnum svæðum, laga til gangstéttir og annað sem bætir ásýnd sveitarfélagsins. Ekki hefur verið rætt formlega um aðkomu Skinneyjar - Þinganess að öðrum byggingum á vegum sveitarfélagsins.