Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

529. fundur
17. janúar 2011 kl. 00:00 - 16:35
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð hafarstjórnar 129. fundur
Málsnúmer 201101032
Umræður sköpuðust um viðhaldsdýpkun úr höfninni.
Fundargerð samþykkt.
3.
Gjaldskrá sorpgjalda 2011
Málsnúmer 201101040
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu og kynna á næsta fundi bæjarráðs.
4.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2011
Málsnúmer 201101039
Umræður sköpuðust um framlagðar reglur, rætt var um vísitölubindingu og á hverra forræði reglurnar eigi að vera. Samþykkt að starfsmenn geri tillögur að nýjum reglum í samræmi við umræður á fundinum, málinu vísað til bæjarstjórnar.
5.
Drög að reglum og gjaldskrá fyrir leigu á húsnæði sveitarfélagsins
Málsnúmer 200810081
Umræður sköpuðust um reglurnar, samkeppnissjónarmið, ýmis leyfi o.fl þætti. Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Starfsmönnum falið að vinna tillögur að umsjón með útleigu á húsnæði sveitarfélagsins.
6.
Breytingar á ráðhúsi - Svavarssafn
Málsnúmer 201009078
Haukur Ingi gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar hafa verið á útboðsgögnunum. Bæjarráð samþykkir að bjóða verkið út.
7.
Endurskoðun leigusamnings við HM þjálfun sf.
Málsnúmer 201101038
Haukur Ingi gerði grein fyrir samningnum, umræður sköpuðust um virðisaukaskatt og leigutíma. Starfsmönnum falið að undirrita framlagðan samning með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
8.
Umsókn um rannsóknastyrk vegna tilrauna um ræktun olíufræja í Hornafirði - drög að samningi
Málsnúmer 201012072
Hjalti gerði grein fyrir samningnum. Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
9.
Handverk og hönnun á Hornafirði
Málsnúmer 201101033
Hjalti lagði fram minnispunkta dagsett í janúar 2011 um handverk og hönnun á Hornafirði. Samþykkt að setja á fót hóp til að kanna þörf og áhuga um uppbyggingu aðstöðu og húsnæðis fyrir list- og verkgreinar. Bæjarstjóra falið að koma hópnum saman.
10.
Sorpbrennslustöðvar
Málsnúmer 201101013
Haukur Ingi greindi frá tilboði NMI í mengunarmælingar frá sorpbrennslunni Brennu Flosa. Starfsmanni falið að láta fara fram sýnatöku í janúar. Þegar niðurstöður liggja fyrir verði þær birtar.
11.
Hafnarvík Heppa verkefni
Málsnúmer 200805074
Rætt um ákvörðun bæjarstjórnar frá 13. janúar sl. Umræður sköpuðust um framtíðar starfsemi á svæðinu. Samþykkt að fela bæjarstjóra að undirbúa sölu á Pakkhúsi en málið komi aftur til bæjarráðs á næstu fundum.
12.
Ósk um umsögn á útg. tækifærisleyfis f. þorrablót Nesja- og Lónmanna
Málsnúmer 201101016
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir.
13.
Fundaplan jan/jún 2011
Málsnúmer 201101042
Lagt fram til upplýsingar.
14.
Samningur um sambýli fatlaðra í Hólabrekku
Málsnúmer 201003048
Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Stefán Ólafsson lagði fram fyrstu drög að samningi við Hólabrekku ehf. Umræður sköpuðust um framlögð drög. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leita samráðs við Jöfnunarsjóð Sveitarfélaga og Velferðarráðuneyti.
15.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
16.
Viðmiðunarreglur vegna lánveitinga til leiguíbúða
Málsnúmer 201101037
Vísað til félagsmálaráðs.
17.
Félagsþjónusta sveitarfélaga
Málsnúmer 201101034
Vísað til félagsmálaráð.
18.
Undanþága frá lámarksíbúafjölda þjónustusvæðis
Málsnúmer 201101035
Vísað til félagsmálaráð.
19.
Viðmiðunarfjárhæð vegna húsaleigubóta
Málsnúmer 201101036
Til kynningar.
20.
Refaveiðar - ályktun frá stjórn Búnaðarsamb. A-Skaft.
Málsnúmer 201010037
Kom fram að sveitarfélagið leggi fjármuni til refa- og minkaveiðar eins og fyrri ár.