Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

535. fundur
28. febrúar 2011 kl. 16:00 - 18:50
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Stjórn HSSA 8. fundur
Málsnúmer 201102065
Árni spurði hver muni halda utan um samningagerð er snýr að ráðningu ráðgjafa fyrir stefnumótun HSSA. Hjalti gerði grein fyrir því að bæjarstjóri, formaður stjórnar og annar af hjúkrunarstjórum HSSA taki það að sér. Bæjarráð óskar eftir að endurskoðuð fjárhagsáætlun HSSA fyrir árið 2011 verði tekin fyrir sem sérliður á næsta fundi bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
2.
Íbúaþing
Málsnúmer 201102063
Hjalti gerði grein fyrir næstu skrefum að úrvinnslu niðurstöðu íbúaþingsins. Hjalti greindi frá því að fundargerðin verði send til allra þátttakenda íbúaþingsins. Tekin verður saman greinargerð í samræmi við niðurstöðu fundarins sem vísað verði til nefnda sveitarfélagsins og kynnt á almennum íbúafundum í sveitarfélaginu. Bæjarráð vísar fundargerðinni til atvinnu- og menningarmálanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.
3.
Sala á Pakkhúsi
Málsnúmer 201102062
Starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar mættu á fundinn undir þessum lið og gerðu þau grein fyrir bréfi þeirra er varðar undirbúning sölu Pakkhússins dagsettu 25.02.2011. Þar kom meðal annars fram að þau telji mikilvægt að koma inn í kaupsamning ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélagsins og huga að flutningi sjóminjasýningarinnar.

Árni vék af fundi þegar tekin var afstaða til tilboðanna.
Samþykkt að ganga til samninga við hæstbjóðanda á grunni kauptilboðs og greinargerðar. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að forkaupsréttarákvæði verði hluti af sölusamningi. Greinargerð með kauptilboðinu undirstrikar að fullur skilningur er á merkri sögu Pakkhússins í atvinnu- og byggðasögu Hafnar. Stefna tilbjóðenda er að hafa margvíslega starfsemi í húsinu, s.s. veitingar, verslun og menningartengda starfsemi. Bæjarráð vill ennfremur þakka öðrum tilbjóðendum áhuga á verkefninu.
4.
Bréf þátttakenda í Evrópu unga fólksins
Málsnúmer 201102061
Bæjarráð hefur móttekið bréfin og vísar þeim til umfjöllunar innan viðkomandi nefnda sveitarfélagsins. Bæjarráð lýsir ánægju með verkefnið og þá vinnu sem þau kynntu í Nýheimum þann 20. febrúar.
5.
Skólavog
Málsnúmer 201102060
Stefán kynnti málið og gerði grein fyrir kostnaði við verkefnið o.fl sambærilega þætti. Umræður sköpuðust um skólavogina sem tæki til að fá yfirsýn og samanburð milli skóla og/eða sveitarfélaga. Bæjarráð tekur jákvætt í mögulegt samstarf og óskar eftir því að fá að fylgjast nánar með framvindu verkefnisins.
6.
Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 200804118
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Umræður sköpuðust um tillögurnar að breytingum og aðrar greinar innkaupareglnanna. Stafsmönnum falið að vinna samanburð við önnur sveitarfélög.
7.
Reglur um niðurfellingu fasteignaskatts
Málsnúmer 201001002
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
8.
Eldhús í Mánagarði
Málsnúmer 200905015
Bæjarráð er sammála um að lagfæra eldhús í Mánagarði í samræmi við áætlun 2 og að framkvæmdin verði í samráði við Kvenfélagið Vöku.
9.
Ósk um rif á strompi á félagsheimilinu Holti á Mýrum.
Málsnúmer 201102068
Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð heimilar að strompurinn verði rifinn.
10.
Dýralæknaþjónusta í dreifbýli
Málsnúmer 201102070
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Bæjarráð vísar því til atvinnu- og menningarmálanefndar.
11.
Breyting á deiliskipulagi miðbæjarsvæði - reitur A
Málsnúmer 201002029
Til kynningar.
12.
Framtíð Starfsendurhæfingar Austurlands
Málsnúmer 201102072
Málinu vísað til félagsmálaráðs.
13.
XXV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 201102075
Til kynningar.
14.
Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara vegna niðurskurðar hjá sveitarfélögum landsins
Málsnúmer 201102074
Til kynningar.
15.
Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 201102073
Til kynningar
16.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100