Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

536. fundur
7. mars 2011 kl. 16:00 - 18:55
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga 784. fundur
Málsnúmer 201103005
Björn Ingi fjallaði um landsskipulagsstefnu og auknar kröfur sérsambanda um uppbyggingu íþróttamannvirkja vegna leyfisveitinga.
3.
Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 200804118
Hjalti gerði gerin fyrir málinu. Umræður sköpuðust um reglurnar. Reglunum vísað til bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
4.
Reglur um úthlutun leiguíbúða
Málsnúmer 201012038
Jón Kristján kom inn á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir reglum um úthlutun leiguíbúða. Umræður sköpuðust um reglurnar, rætt var um hvort eigi að skilgreina ákveðnar íbúðir sem félagslegar íbúðir og aðrar sem íbúðir á opnum markaði, rætt var um uppsagnarákvæði, ótímabundinna samninga o.fl þætti. Bæjarráð óskar eftir því að lögfræðingur sveitarfélagsins taki 12., og 19. grein aftur til skoðunar áður en málinu verði vísað til meðferðar bæjarstjórnar.
5.
Gamlabúð - flutningur
Málsnúmer 201103003
Reynir fylgdi málinu úr hlaði. Árni fagnaði því að málið væri komið af hugmyndastigi. Árni spurði hvort deiliskipulagið verði klárað áður en Gamlabúð verði flutt. Hjalti gerði grein fyrir því að deiliskipulagið verði að vera tilbúið áður en til flutnings kemur.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar.
6.
Ósk um endurnýjun leigusamnings vegna tjaldsvæðis
Málsnúmer 201002063
Hjalti gerði grein fyrir málinu, sagði frá lögfræðiáliti sem heimilaði samninga án auglýsingar eða útboðs. Árni benti á að innkaupareglur sveitarfélagsins leggi línur varðandi vinnubrögð í málum af þessum toga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við núverandi leigjendur á tjaldsvæði.
7.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2011
Málsnúmer 201103011
Ásta kynnti endurskoðaða fjárhagsáætlunar HSSA 2011. Árni spurði um fjárveitingar til vinnu ráðgjafa við stefnumótun HSSA. Hjalti svaraði að kostnaður verði tekin af rekstrarárinu 2010. Björn Ingi spurðist fyrir um það sem kallað er "frestað er til 2012". Ásta svaraði að um væri að ræða áfangaskiptingu í hagræðingaraðgerðum sem ríkið hafi fyrirhugað. Bæjarráð vísar áætluninni til bæjarstjórnar.
8.
Samningur um veghald þjóðvega í þéttbýli á Höfn
Málsnúmer 200901079
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra fræðslu- og félagssviðs að ganga til samninga.
9.
Umsókn um breytingu á lóðamörkum lóðar nr. 41 í Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 201103012
Bæjarráð samþykkir framlagða umsókn.
10.
Athugasemdir við svörun tilboða í prentun á Skaftfellingi í febrúar 2010
Málsnúmer 201101005
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að farið sé eftir innkaupareglum sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara.
11.
Tæknimál
Málsnúmer 201103013
Rætt um tæknimál og hvort bjóða eigi út þjónustuna eða ráða starfsmann. Starfsmönnum falið að taka saman frekari gögn um málið.
12.
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Málsnúmer 200904061
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
13.
Samningur við Sindra
Málsnúmer 200804084
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
14.
Samningur við Golfklúbb Hornafjarðar
Málsnúmer 200904040
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
15.
Hillur í þjónustumiðstöð
Málsnúmer 201103022
Bæjarráð felur að starfsmönnum að bjóða verkefnið út.
16.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
17.
Ósk um umsögn á þingsálykunartillögu um mikilvægi fræðslu um kristni og önnur trúarbrögð og lífsviðhorf 273. mál
Málsnúmer 201103008
Til kynningar
18.
Fundarherferð Orkustofnunar og Orkuseturs í rafhituðum sveitarfélögum
Málsnúmer 201103007
Til kynningar.
19.
Niðurskurður sem bitnar á börnum
Málsnúmer 201103009
Til kynningar.
20.
Hvatning til þáttöku í ?Grænum apríl?
Málsnúmer 201103010
Til kynningar.
21.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100