Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

540. fundur
4. apríl 2011 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri framkvæmda- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir
Málsnúmer 200811043
2.
Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga 785
Málsnúmer 201103083
Fundargerð til kynningar.
3.
Skipan almannavarnanefndar
Málsnúmer 201102010
Lagðar fram tilnefningar frá HSSSA og sjálfboðaliðastamtaka. Frá HSSA er tilnefnd Guðrún Júlía Jónsdóttir framkvæmdastjóri og Ester Þorvaldsdóttir hjúkrunarstjóri heilsugæslu til vara. Fyrir sjálfboðaliðasamtök er tilnefndur Friðrik Jónas Friðriksson og til vara Ingólfur Guðni Einarsson.Ásgerður ræddi um störf nefndarinnar. Bæjarráð er sammála um að taka slökkviliðsmál og fleira er varðar öryggi íbúanna á fundi í apríl.Vísað til bæjarstjórnar.
4.
Sala á Pakkhúsi
Málsnúmer 201102062
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við Landsbankann um málið og lagði fram tölvupósta dags. 25. mars 2011. Í samtölum við starfsmenn bankans hafi komið fram rök fyrir synjun á fjármögnun á kaupum á Pakkhúsi. Bæjarráð Hornafjarðar vill þrátt fyrir það lýsa vonbrigðum með niðurstöðuna, ekki síst í ljósi þess að það telur húsið vera mikils virði og fela í sér mikil tækifæri fyrir margvíslegan atvinnurekstur. Bæjarráð óskar eftir að sjá útlánareglur og þær viðmiðanir sem gilda fyrir lánveitingu sem þessa hjá bankanum.Bæjarráð Hornafjarðar samþykkir að farið verði í viðhald og lagfæringar á aðgengi hússins á grunni viðhalds- og framkvæmdaáætlunar sem samþykkt var síðast liðið haust.Bæjarráð ákveður að hafna öllum tilboðum og auglýsa það aftur til sölu.
5.
Ársreikningur 2010
Málsnúmer 201103084
Sigurjón Arnarson endurskoðandi hjá KPMG mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir endurskoðunarskýrslu og niðurstöðum ársreiknings.
6.
Staða bæjarsjóðs 28.02.2011
Málsnúmer 201103080
Ásta kynnti stöðu þann 28. 2. 2011. Kom fram að rekstrarafgangur A hluta fyrstu tvo mánuði er 11,2 m.kr. og handbært fé frá rekstri 26,4 m.kr. Rekstrarniðurstaða í A-B hluta er 17 m.kr og handbært fé frá rekstri 39 m.kr. Staðan er í samræmi við áætlun.
7.
Samningur milli sveitarf. og Ríkis Vatnajökuls um stuðning sveitarfélagsins við markaðssetingu og kynningu á ferðaþjónustu og afurðum í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201103088
Hjalti gerði grein fyrir málinu. Samningurinn byggir á grunni eldri samnings um rekstur Ríki Vatnajökuls. Þá gerði hann grein fyrir viðræðum við framkvæmdastjóra Ríki Vatnajökuls um markaðssetningu á grunni fjármuna sem bæjarstjórn veitti í lok árs 2010. Von er á hugmynd um útfærslu á næstu vikum. Bæjarráð samþykkir framlagðan samning.
8.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar - kynnt á fundinum
Málsnúmer 201103085
Hjalti gerði grein samtali við formann björgunarfélagsins á Höfn. Greindi frá hugmyndum um markmið með slíkum samning sem gæti m.a. falist í ýmissi þjónustu fyrir sveitarfélagið gegn föstum styrk. Bæjarráð er sammála um að björgunarfélagið gegni miklu og vaxandi hlutverki í samfélaginu ekki síst með aukinni vetrarferðamennsku. Bæjarstjóra falið að gera drög að samningi í samvinnu við björgunarfélagið og leggja fram við bæjarráð.
9.
Samningur við Hólabrekku ehf.
Málsnúmer 201003048
Hjalti vék af fundi undir þessum lið.
10.
Hafnarvík Heppa - tillaga HIE að ráðningu ráðgjafa v. deiliskipulags
Málsnúmer 200805074
Haukur Ingi greindi frá ferli málsins og lagði fram tillögu dags 30.3.2011 um að Gláma Kím verði fyrir valinu.
11.
Víkurbraut 5, vallarhús
Málsnúmer 201103069
Lagt fram viljayfirlýsing dags. 30.3.2011 frá Jóni Níelssyni og Valgeiri Steinarssyni um sölu á Víkurbraut 5. Starfsmönnum falið að ræða við aðila.
12.
Dansgólf í íþróttahúsi - tillaga um útfærslu
Málsnúmer 201102047
Bæjarráð sammála um að kaupa 100 fermetra af dansgólfi í samræmi við framlagðar tillögur.
13.
Umferð ferðafólks á Vatnajökli - kynnt á fundinum
Málsnúmer 201103086
Hjalti gerði grein fyrir samtali við formann björgunarfélagsins um málið. Í máli formannsins kom fram að síðast liðinn mánuði hafi tvívegis þurft að fara á Vatnajökul til að bjarga ferðafólki. Taldi hann umferð um jökulinn mikla og vaxandi. Nauðsynlegt væri að Vatnajökulsþjóðgarður og aðrir hlutaðeigandi tækju ferðamál á jöklinum föstum tökum, kæmu á tilkynningarskyldu, bentu ferðamönnum á tryggingarmöguleika og yku við fræðslu um ferðalög á jöklinum. Reynir benti á að unnið hafi verið viðbragðsáætlun fyrir Langjökul.Hjalti greindi frá að honum fyndist málið ekki síður eiga heima á herðum ráðuneyta. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa málið fyrir fund með ráðherrum og óska eftir fundi sem fyrst.
14.
Lóð við Heppuskóla - frágangur
Málsnúmer 201103090
Haukur Ingi greindi frá útfærslu á frágangi við lóð.
15.
Lóð við Sindrabæ - frágangur
Málsnúmer 201103091
Haukur Ingi greindi frá útfærslu á frágangi við lóð.
16.
Starfsendurhæfing Austurlands - kynnt á fundinum
Málsnúmer 201103055
Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann sat þann 31.3.2011 um stöðu og framtíðarhorfur Starfsendurhæfingar Austurlands (Starfa). Kom fram að einn hópur á Hornafirði hafi farið í gegnum úrræði Starfa og mat þeirra sem best þekkja er að nægjanlegt sé að reka úrræði þriðja hvert ár. Í þessu sambandi benti Hjalti á úrræði sem bæjarstjórn tæki nú þátt i ásamt vinnumálastofnun, RKÍ, Afli og fleiri aðilum sem væri að svipuðum meiði.Bæjarráð sammála um að mikilvægt sé að standa vörð um starfsendurhæfingu Austurlands en sér ekki fært að koma með fjármagn til rekstrarins. Bæjarráð vill af þessu tilefni þakka starfsmönnum og stjórn Starfa fyrir gott starf.
17.
Innsend erindi:
Málsnúmer 201010050
18.
Fyrirspurn vegna farandsölu í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201103089
Bæjarráð leggur áherslu á að reglur um farandsölu verði kynntar opinberlega og þeir sem ætli sér að setja á fót farandsölu verði að afla sér tilskylinna leyfa. Bæjarráð leggur áherslu á að rekstur margra fyrirtækja er í járnum og mikilvægt að standa vörð um verslun í heimabyggð.
19.
Viðhaldsdýpkun í Hornafjarðarhöfn 2011 - tillaga Siglingastofnunar um verktaka til verksins
Málsnúmer 201103031
Vísað til hafnarstjórnar.
20.
Athugsemdir Landbúnaðarráðuneytis við breytingu á samþykkt um búfjárhald samþykktri á 166. fundi bæjarstjórnar
Málsnúmer 200705034
Hjalti gerði grein fyrir samtölum sínum við starfsmanna bændasamtaka um málið. Lagði til að samþykktin færi óbreytt til annarrar umræðu.
21.
Blót ásatrúarmanna 2011 í Óslandi
Málsnúmer 201104001
Bæjarráð heimilar blóta ásatrúarmanna í Óslandi.
22.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Málsnúmer 201009100
Lögð fram svör við fyrirspurn dags. 21.03.2011 frá áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar vegna málefni 7. bekkjar Grunnskóla HornafjarðarÞrátt fyrir að meirihluta Framsóknarmanna hafi á síðasta bæjarstjórnarfundi þótt fréttnæmt að 7. bekkur yrði í Grunnskóla Hornafjarðar á næsta skólaári þá er staða málsins enn nokkuð óljós í huga áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar. Af þeim sökum eru lagðar fram eftirfarandi spurningar:1.
Hefur verið tekin ákvörðun um staðsetningu 7. bekkjar Grunnskóla Hornafjarðar fyrir næsta vetur, þ.e. hvort staðsetja eigi hann með öðrum bekkjum á miðstigi í húsnæði Hafnarskóla eða hvort halda skuli áfram að greina bekkinn að frá öðrum bekkjum á miðstigi?2.
Ef slík ákvörðun hefur verið er hér með farið fram á það að upplýst verði með hvaða hætti var staðið að samráði við hagsmunaaðila varðandi ákvörðunina.3.
Ef slík ákvörðun hefur ekki verið tekin þá er hér með farið fram á að upplýst verði hvenær ákvörðun komi til með liggja fyrir og með hvaða hætti staðið verður að samráði foreldra og starfsfólk.Árni Rúnar ÞorvaldssonÁheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar1.
Gengið hefur verið út frá því að staða 7. bekkjar hafi ekkert breyst og gert er ráð fyrir að hann verði staðsettur áfram með eldri árgöngum grunnskólans. 2.
Þegar þrír yngstu árgangar Grunnskóla Hornafjarðar fluttu úr Nesjum á Höfn var ljóst að ekki væri pláss fyrir 1. ? 7. bekk innan veggja Hafnarskóla næstu skólaár a.m.k. Meðal annars þess vegna var tekin sú ákvörðun að 7. bekkur yrði í Heppuskóla. Einnig réð þar nokkru um að fjöldi nemenda og starfsmanna í skólahúsum yrði ekki mjög ólíkur með því fyrirkomulagi. Áður en ákvörðun um breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar var tekin, þar á meðal ný staðsetning 7. bekkjar, var fjölmennur kynningarfundur með foreldrum. Athugasemdir foreldra við þá ráðstöfun voru minni háttar, flestir virtust mjög sáttir við breytinguna. Ekki hefur verið kallað eftir breytingum á núverandi fyrirkomulagi af hálfu foreldra grunnskólabarna eða starfsmanna. 3.
Ekki liggur fyrir annað en að 7. bekkur verði áfram með eldra stigi grunnskólans, eins og fram hefur komið, ekkert sem kallar á breytingar. Fyrirspurn frá Ásgerði K. Gylfadóttur:1. Nú er verið að reisa mastur í Standey. Mun það verða til þess að mastrið við Höfðaveg verður tekið niður? Haukur Ingi gerði grein fyrir samtölum sínum við forsvarsmenn fyrirtækið Mílu sem á mastrið við Höfðaveg. Sagði hann að Míla geri ráð fyrir því að rífa samstrið niður eftir að búið er að flytja búnað úr því. 2. Bílflakið sem stendur við "vöruhúsið" er mikið lýti á ásýnd bæjarins og margir furða sig á því að það hafi ekki verið fjarlægt. Í hvaða ferli er það mál? Haukur Ingi sagði að málið væri í hefðbundnum farvegi þar sem búið er að gefa eiganda bifreiðarinnar lögboðin frest til að fjarlægja bílinn ef það er ekki gert verður hann fjarlægður af sveitarfélaginu.