Bæjarráð Hornafjarðar
541. fundur
11. apríl 2011
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
2.
Rýnihópur um leikskólamál fundargerðir
Árni spurði um erindisbréf, tíma- og verkáætlun hópsins. Upplýst að hópnum hafi ekki verið sett erindisbréf en hlutverk hans væri að ræða um efni skýrslu sem starfsmenn unnu um leikskólamál og stefnt væri að ljúka vinnu fyrir sumarið. Rætt um þá hugmynd að hafa fimm ára börn í húsnæði Grunnskóla Hornafjarðar. Stefán upplýsti að kannað hafi hvort sú lausn væri möguleg en komið í ljós að svo er ekki næsta vetur. Þá sagði hann frá vinnu sinni í að safna upplýsingum um hvernig sveitarfélög almennt taka ákvarðanir varðandi fjölda leikskólabarna í húsnæði leikskólanna.Björn Ingi spurði um umræður um tímann frá 13-17 og upplýsti Stefán að annar af fulltrúum foreldra hafi vakið þá umræðu. Þá fagnaði Björn Ingi hugmynd að sex deilda leikskóla en sæi hann frekar fyrir sér við Lönguhóla en Krakkakot. Einnig ræddi hann um hugmynd að leigu á húsnæði til að taka á biðlistum. Árni spurði um af hverju gangi ekki að hafa 5 ára börn í húsnæði grunnskólans. Björn Ingi rifjaði upp umræðu á sínum tíma um fjölda deilda á hverjum leikskóla.Stefán svaraði spurningu Árna um að það sem ráði því að 5 ára börn komist ekki að, er lóð skólans, mötuneyti, tímaskortur og skólinn væri nýkominn úr miklum breytingum.Fundargerð samþykkt.
3.
Stjórn Hafnasambands sveitarfélaga fundargerðir
Til kynningar.
4.
Tilboð í Pakkhúsið
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri geri gagntilboð.
5.
Ósk um umsögn á útg. vínveitingaleyfis f. gistiheimili Breiðabólstað 2 Gerði
Engar athugasemdir.
6.
Ósk um umsögn á útg. á rekstrarleyfi f. veitingastað að Hafnarbraut 2
Engar athugasemdir.
7.
Ósk um ums. á útgáfu rekstrarleyfis v. Breiðabólstaða 3 Lund
Engar athugasemdir.
8.
Útveggjaklæðning Heppuskóla - útboðsgögn- verður sentí tölvupósti
Bæjarráð samþykkir framlögð gögn og felur starfsmönnum að ljúka við frágang á þeim í samvinnu við arkitekta og auglýsa sem fyrst.
9.
List og verkgreinar á Hornafirði - skýrsla send í tölvupósti
Hjalti gerði grein fyrir skýrslunni og umsókn í það sem ríkisstjórnin kýs að kalla "skötuselssjóðinn." Bæjarráð sammála um að leita allra leiða til að fjármagna verkefnisstjóra til að koma verkefninu lengra áleiðis.
10.
Málefni ÞNA - kynnt á fundinum
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við forystumenn ÞNA. Einnig sagði hann frá fundum um sóknaráætlun, eflingu sveitarstjórnarstigsins og með forystumönnum í Nýheimum. Bæjarstjóra falið að setja saman greinargerð um ofangreind mál og leggja fyrir bæjarráð. Bæjarráð er samála um að koma til móts við óskir ÞNA um stuðning út þetta fjárhagsár.
11.
Innsend erindi:
12.
Sjóvörn í Óslandi - ákvörðun um matsskyldu
Til kynningar.
13.
Ályktun frá aðalfundi Búnaðarfél. Lónmanna um sauðfé frá Stórhóli í Lónsveit
Hjalti gerði grein fyrir atburðarrás í málinu. Bæjarstjóra falin umsjón með málinu.
14.
Ósk um tilnefningur 3ja fulltrúa í svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Reynir fór yfir málið. Tekið aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
15.
Ályktun skólastjórnenda í sveitarfélaginu um faglega ráðgjöf
Stefán greindi frá erindinu og aðdraganda þess. Mikil umræða skapaðist um skipan sérfræðiþjónustu við skóla, úttekt Hins og þessa ehf. og fleiri atriði er koma frá í ályktun skólastjórnenda. Vísað til skólanefndar.
16.
Aðalfundur Jöklaseturs ses. 2011
Hjalti gerði grein stöðu Jöklaseturs. Bæjarráð er sammála um að rekstur Jöklasýningar verði endurskoðanir í heild.
17.
Aðalfundarboð Sláturfél. Búa svf. 2011
Upplýst að formaður atvinnu- og menningarmálanefndar muni sitja fundinn.
18.
Fyrirspurn um leigu á húsnæði fyrir Kiwanisþing
Vísað til bæjarstjóra.
19.
Ósk um styrk v. Austfjarðatröllsins 2011
Vísað til bæjarstjóra.
20.
Ályktun Sambandsþings íþróttasambands fatlaðra v. hugmynda um breytingu á lögum um Lottó
Bæjarráð tekur undir með bréfriturum.
21.
Fyrirspurnir - bæjarráð: