Bæjarráð Hornafjarðar
542. fundur
20. apríl 2011
kl.
00:00
-
15:00
í ráðhúsi
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir
2.
Fundargerð stjórnar HSSA 10. fundur
Árni spurðist fyrir um orlof ljósmóður og hvort að ekki væru fæðingar á þeim tíma. Reynir spurðist fyrir um samskipti við ráðuneytið um áframhaldandi samning. Hjalti upplýsti um samskipti í mars. Árni sagði það sína skoðun að fyrsta verkefni þeirra sem vinna að stefnumótun fyrir HSSA ætti að vera það að svara spurningu hvort stýra eigi heilbrigðis- og öldrunarmálum áfram á Hornafirði í ljósi þess að rætt hafi verið við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2011 að leggja 20 m.kr. til rekstur málaflokksins.Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerð stjórnar Gjafa- og minningarsjóðs Skjólgarðs 53. og 54.fundur
Ásgerður spurðist fyrir um hvort uppsetning skjólveggs við Mjallhvít yrði samhliða utanhúsviðhaldi á húsinu. Guðrún Ása sagði frá umræðu í Gjafa- og minningarsjóði um málið og niðurstöðum. Sagði hún að stefnt væri að uppsetningu skjólveggjarins í vor. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um kostnað og hvernig vali á verktaka er háttað.Fundargerð til kynningar.
4.
Rýnihópur um leikskólamál fundargerðir
Árni gerði svar grunnskólans um nýtingu húsnæðis að umtalsefni. Óskaði eftir upplýsingum um hvernig nýta ætti tvær lausar kennslustofur næsta vetur. Upplýst að stefnt er að því að stór aldurshópur sem búið hefur við þrengsli í vetur fái aðra stofu til umræaða. Árni óskaði eftir upplýsingum um hvernig nýta ætti þá stofu sem laus er.Ásgerður ræddi um biðlista á leikskólum og umræðum um þau mál í rýnihópnum.Fundargerð til kynningar.
5.
Verkefnisstjórn um eflingu sveitarfélaga á Suðurlandi - 1. fundur
Fundargerð til kynningar.
6.
Starfshópur um sameiningarkosti sveitarfélaga á Suðurlandi 3. fundur
Fundargerð til kynningar.
7.
Ósk um tilnefningu 3ja fulltrúa í svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs - gögn áður send
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Hjalta Þór Vignisson sem formann, Björn Inga Jónsson sem varaformann og Guðrúnu Ingimundardóttur sem fulltrúa í svæðisráði.
8.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar - drög
Hjalti gerð grein fyrir drögunum og samskiptum við formann Björgunarfélagsins. Rætt um að nýr samningur taki gildi í upphafi nýs fjárhagsárs. Vísað til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
9.
Málefni Sporthallarinnar - húsaleiga
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum við lögfræðing um leigugreiðslur fyrir húsið og samning við rekstraraðila um framlengingu á samningi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræað við SS sport um áframhaldandi samning um rekstur líkamsræktarstöðvar til eins árs.
10.
Umsókn um lóðir 13-15 við Ægissíðu
Bæjarráð felur byggingarfulltrúa að fá frekari upplýsingar um áform umsækjanda og fari yfir málið m.a. út frá gildandi búfjarsamþykkt. Eins felur bæjarráð starfsmönnum að fara yfir búfjárhald á Ægissíðu í heild.
11.
Hitaveita á Hornafirði
Hjalti gerði grein fyrir samtölum við forstjóra RARIK um hagkvæmniútreikninga á virkjun heits vatns frá Hoffelli. Bæjarráð er sammála um að mikilvægt sé að vinna áfram að málinu.
12.
Umferðaröryggi-hraðatakmarkandi aðgerðir á Höfn.
Kom fram að Slysavarnardeildin Framtíðin vill leggja 1,5 m.kr. í umferðaröryggismál á Höfn. Lögð fram tillaga um að ráðstafa þeim peningum í hraðatakmarkandi aðgerðir við gatnamót Víkurbrautar og Hafnarbrautar. Bæjarráð þakkar Slysavarnardeildinni fyrir gjöfina og áhuga þeirra á umferðaröryggismálum. Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar og leggur áherslu á að við afgreiðslu málsins verði skýrsla um umferðaröryggismál höfð til hliðsjónar.
13.
Endurbætur á fráveitu frá tjaldsvæði
Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir fráveitumálum við tjaldsvæði og hugmynd að endurbótum. Bæjarráð óskar eftir kostnaðaráætlun en er sammála um að þörf er að gera nauðsynlegar endurbætur á fráveitunni við tjaldsvæðið í vor og tengja við aðalfráveitukerfi bæjarins á næsta ári.
14.
Vatnajökulsþjóðgarður
Lagður fram tölvupóstur frá umhverfisráðuneytinu þar sem kannað er með áhuga sveitarfélagsins um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs. Hjalti gerði grein fyrir hugmyndinni og sagði frá afstöðu landeigenda á viðkomandi svæðum. Einnig rætt um þjóðlendur. Bæjarráð tekur vel í stækkun Vatnajökulsþjóðarðs á svæðinu en leggur áherslu á gott samráð við alla hagsmunaaðila áður en slík skref eru stiginn.
15.
Innsend erindi:
16.
Sjóvörn í Óslandi - ákvörðun Skipulagsstofunar um matsskyldu
Til kynningar.
17.
Aðalfundarboð Stapa lífeyissjóðs 2011
Bæjarráð tilnefnir Hauk Inga Einarsson sem fulltrúa sveitarfélagsins.
18.
Ósk um umsögn á frumvarpi til laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk (heildarlög), 728. mál.
Vísað til félagsmálaráðs.
19.
Ósk um umsögn um frumvarp til laga um vatnalög og rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (tímalengd nýtingarleyfa og forgangsréttur), 720. mál.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar og atvinnu- og menningarmálanefndar.
20.
Athugasemdir umsagnaraðila eftir grenndarkynningu vegna byggingar íbúðarhúss að Hof I
Bæjarráð sammála um að gefa umsækjanda kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun er tekinn.
21.
Athugasemdir umsagnaraðila eftir grenndarkynningu vegna viðbyggingar við gistiheimili að Hofi 1
Bæjarráð sammála um að gefa umsækjanda kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun er tekinn.
22.
Athugasemdir umsagnaraðila eftir grenndarkynningu vegna byggingar f. gesthús Hof I
Bæjarráð sammála um að gefa umsækjanda kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun er tekinn.
23.
Fyrirspurnir - bæjarráð:
Reynir ræddi um að hann hefði fyrirvara við fyrirhugaðar breytingar á póstþjónustu í dreifbýli sem hafa það í för með sér að færa póstkassa að þjóðvegi í öllum tilfellum og taldi bæjarráð þurfa að taka málið fyrir á næstu fundum.Engar fyrirspurnir hafa borist.