Bæjarráð Hornafjarðar
606. fundur
15. október 2012
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 26

Fundargerð samþykkt.

2.
Samningur við Hólabrekku ehf.

Hjalti vék af fundi undir þessum lið. Jón Kristján Rögnvaldsson og Ásta H. Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið.

Farið yfir samningsdrög dags. 15. okt 2012. Starfsmanni falið að vinna áfram að samningnum í samræmi við umræður á fundinum. Varðandi kröfu fyrir árið 2011 telur bæjarráð að árið sé að fullu uppgert og hafnar því viðbótarframlagi.

Bæjarráð felur starfsmönnum að hefja undirbúning að viðurkenndri úttekt á þjónustu sveitarfélagsins í málefnum fatlaðs fólks.

3.
Fjárhagsáætlun 2013

Haukur Ingi Einarsson og Ásta H. Guðmundsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Gerðu þau grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun. Vísað til áframhaldandi vinnu.

4.
Næstu framkvæmdir - minnisblað

Lagt fram minnisblað frá Birni Imsland og Hjalta Þór Vignissyni um framkvæmdir næstu ára. Þar er er sérstaklega rætt um endurbætur á Sindrabæ, íþróttahúsi, ráðhúsi, Holti og gatnagerð. Bæjarráð mun undirbúa næstu framkvæmdir á komandi vikum og mánuðum.

5.
Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið

Lagt fram minnisblað frá Hjalta um innkaup á vegum sveitarfélagsins og leigu á húsnæði, dags. 10 okt 2012. Bæjarráð felur fjármálasviði að fara yfir innkaupareglur, bera saman við önnur sveitarfélög og leggja málið síðan fyrir bæjarráð. Einnig felur bæjarráð fjármálasviði að fara yfir grunn að útboðsskilmálum vegna útleigu á húsnæði og tækjum í eigu sveitarfélagsins til langs tíma og leggja fyrir bæjarráð.

6.
Gamlabúð II. áfangi

Lagt fram minnisblað um stöðu á endurbótum á Gömlubúð, dags. 5. október 2012 frá Birni Imsland og Hjalta Þór Vignissyni. Björn Ingi harmar skort á upplýsingaflæði frá þjóðgarðinum um sýningu í Gömlubúð en leggur áherslu á að lokið verði við húsnæðið að utan sem innan. Hjalti greindi frá samskiptum sínum við þjóðgarðinn um sýningu og sagði að von sé á sýningarhönnuði þjóðgarðsins og framkvæmdastjóra á næstunni.

7.
Deiliskipulag við Jökulsárlón

Hjalti greindi frá fundi í Vegagerðinni um málefni Jökulsárlóns. Sagði að annar fundur verði haldinn um miðjan nóvember þegar Vegagerðin verður búinn að skoða valkosti um færslu farvegs Jökulsár.

8.
Verslun í anda Góða hirðsins

Lagt fram erindi frá Höllu Sigurðardóttir dags. 8. október 2012 um að sveitarfélagið leggi til húsnæði fyrir verslun í anda Góða hirðisins þar sem notaðir munir verða seldir til góðgerðarmála. Bæjarráð fagnar hugmyndinni og felur starfsmönnum að skoða kosti þess að koma til móts við framkomnar óskir.

9.
Losunarsvæði vegna uppdælingar úr höfninni

Björn Ingi óskaði eftir kostnaðargreiningu á því að leggja lagnir út yfir Suðurfjöru.

Vísað til hafnarstjórnar.

10.
Stefnumótun í æskulýðs- íþrótta- og tómstundamálum - drög til umsagnar

Vísað til nefnda.

11.
Ósk um styrk til kaupa á hjólastólarampi og festingum á bifreið í skólaakstri

Vísað til félagsmálaráðs.

12.
Tilboð um að kaupa gamla jarðýtu í eigu Menningarmiðstöðvar

Vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.

13.
Fyrirspurnir - bæjarráð