Bæjarráð Hornafjarðar
610. fundur
12. nóvember 2012
kl.
08:30
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
embættismaður
Bryndís Bjarnarson
embættismaður
Ragnhildur Jónsdóttir
framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnason
upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2013 - forstöðumenn mæta á fundinn
Forstöðumenn mættu á fundinn og gerðu grein fyrir fjárhagsáætlun þeirra stofnanna sem þeir stýra.
Margrét Ingólfsdóttir, leikskólastjóri, Leikskólanum Lönguhólum.
Snæfríður H. Svavarsdóttir, leikskólastjóri, Leikskólanum Krakkakoti.
Þórgunnur Torfadóttir, skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
Hulda Laxdal, skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
Pálína Þorsteinsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Hofgarði.
Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður íþróttamannvirkja.
Ragnhildur Jónsdóttir, fræðslustjóri Skólaskrifstofa.
Björg Erlingsdóttir, Menningarmiðstöð.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson, yfirmaður umhverfis og tæknisviðs.
Borgþór Freysteinsson, Eldvarnarfulltrúi.
Birgir Árnason, forstöðumaður í Áhaldahúsi.
Björn Imsland forstöðumaður fasteigna.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 32
Umræða um tveggja tunnu kerfið og kostnað við það, bæjarráð samþykkti að gera kostnaðaráætlun á gjöldum íbúa við breytingu á kerfinu.
Umræður um girðingar og lausagöngu sauðfjár og aðkomu Vegagerðarinnar að þjóðveginum.
Fundargerð samþykkt.
3.
Svæðisráð Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs - 32
Hjalti gerði grein fyrir fundinum og fundum sem hann hefur átt við Umhverfisráðuneytið í tengslum við þau mál sem tengjast málaflokknum.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
4.
Stækkun Krakkakots - tilboð
Útboð í viðbyggingu Krakkakots hafa verið opnuð og sendu tveir aðilar inn tilboð.
Björn Imsland sat fundinn undir þessum lið og kynnti innsend tilboð.
Þingavað ehf. bauð 44.430.557 kr. sem er 104.2% yfir kosnaðaráætlun.
H.Christensen ehf. bauð 43.909.333 sem er kr. 103,0% yfir kostanaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
5.
Útboð á raforkukaupum sveitarfélagsins
Framhaldsumræða, farið var yfir fyrirliggjandi gögn um málið. Haukur Ingi gerði grein fyrir að málið væri enn í vinnslu og fundum sínum með tilboðsaðilum. Hann gerði grein fyrir að Bjarni Jakopsson er að greina samningana betur.
6.
Úttekt á aðstæðum og þjónustu við fatlað fólk á Hornafirði
Hjalti vék af fundi undir þessum lið.
Ásgerður fór yfir fyrirliggjandi gögn, urmæður um málið.
Samþykkt að ganga til samninga við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, félagsmálastjóra falið að ganga frá samningnum við Félagsvísindastofnun.
7.
Aukning á flutningsgetu rafmagns til Hafnar
Bæjarráð tekur jákvætt í framlagt erindi RARIK.
8.
Nýheimar 2012-20122
Hjalti gerði grein fyrir fundinum og hverjar áherslur nefndarinnar eru varðandi framtíðarstarfsemi Nýheima. Fundargerð verður send á bæjarráð.
9.
Gestastofa í Gömlu búð - tillaga að rýmisnotkun og innihaldi sýningar
Lagt fram til kynningar.
10.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Lögð fram drög að nýju skipuriti fyrir sveitarfélagið kynnt. Umræður um skipuritið, bæjarstóra falið að fara í frekari vinnu við skipuritið.
11.
Fyrirspurnir - bæjarráð