Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

617. fundur
14. janúar 2013 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásta H. Guðmundsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 35
Málsnúmer 1212012F
Ásgerður spurði um breytingu á sorphirðu í sveitarfélaginu tveggja tunnu kerfi og endurvinnslu, Haukur upplýsti um stöðu málsins.   Björn ræddi þær breytingar sem komu frá á fundinum um deiliskipulag á Jökulsárlóni,  Hjalti upplýsti um málið. Einnig rætt um deiliskupulag vegna akstursíþróttabrautar. 
 
Fundargerð samþykkt.
2.
Stofnbúnaður 2013, Stofnanir Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Málsnúmer 201301036
Lögð fram drög að úthlutun dags. 10. janúar 2013
 Björn Ingi ræddi um kaup á bifreið fyrir tæknideild og umsjón með Bárunni. Umræðu um Báruna frestað þar til síðar á fundinum. Ásgerður benti á hvort fatnaður fyrir slökkvilið ættu ekki heima í rekstrarramma.
 
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista.
3.
Málefni Menningarmiðstöðvar
Málsnúmer 201301006
Hjalti gerði grein fyrir fundum með starfsfólki Menningarmiðstöðvar.  Gerði grein fyrir drögum að erindi sem senda eigi starfsmönnum í kjölfarið.  Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi vinnu að málinu, og senda umrætt erindi.
Björn Ingi taldi rétt að öllum starfsmönnum Menningarmiðstöðvar yrði sagt upp og tíminn notaður til að endurskipuleggja starf í menningar- og safnamálum með hlutaðeigandi aðilum.
4.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 201203093
Staða málsins kynnt eftir rýni KPMG og kynningu á forstöðumannafundi, málinu vísað til áframhaldandi vinnu.
5.
Refaveiðar í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201010037
Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur.
6.
Umsóknir um styrki 2013
Málsnúmer 201210013
  Starfsmönnum falið að koma með tillög að úthlutun.
7.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100

Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði vegna reksturs Bárunnar, nýs fjölnota knatthúss í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

1. Hvaða aðili innan stjórnkerfis sveitarfélagsins ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með starfsemi og nýtingu fjölnota knatthússins, Bárunnar?

Forstöðumaður íþróttmannvirkja.
2. Hvernig er umsjón og eftirliti með nýtingu og starfsemi í húsinu háttað?

Unnið er að skipulagi umsjónar og eftirlits en því ekki lokið.  Forstöðumaður íþróttamannvirkja, fræðslustjóri og framkvæmdastjóri UMF Sindra hafa komið að þeim undirbúningi.

Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarráði vegna reksturs Mánagarðs, félagsheimilis og íþróttahúss

1. Hvaða aðili innan stjórnkerfis sveitarfélagsins ber ábyrgð á umsjón og eftirliti með starfsemi og nýtingu Mánagarðs?

Forstöðumaður íþróttamannvirkja.
2. Hvernig er umsjón og eftirliti með nýtingu og starfsemi í húsinu háttað?

Í ljósi slyss sem varð í Mánagarði í desember var ákveðið  að fara í endurskoðun á umsjón með húsinu. Jafnframt hefur bæjarstjóri óskað eftir því við tryggingarfélag sveitarfélagsins að það fari yfir orsakir umrædds slyss.

Bæjarráð óskar eftir að skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd taki umsjón og eftirlit með ofangreindum húsum til nánari umræðu.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði