Bæjarráð Hornafjarðar
618. fundur
21. janúar 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 30

Fundargerð Samþykkt.

2.
Aðgerðaáætlun v. stefnu í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum

Ásgerður gerði grein fyrir málinu, greindi frá aðgerðaráætluninni og benti á einstaka þætti hennar.

Starfsmönnum falið að fara yfir kostnaðarliði hennar.

3.
Deiliskipulag HSSA

Málinu vísað til starfsmanna, þeim falið að gera kostnaðaráætlun.

4.
Frágangur á svæði þar sem Gamlabúð stóð

Farið var yfir málið, umræður um frágang svæðisins. Bæjarráð leggur til að farið verði í frágang á svæðinu og verði lokið fyrir landsmót í sumar.

5.
Hafnarvík Heppa deiliskipulag

Bæjarráð tekur lóðir sem áður var úthlutað til Fosshótela ehf. aftur til bæjarins. Bæjarráð vill að kannað verði með öryggismál rústa á Heppunni bæjarstjóra falið að vinna að málinu.

6.
Málefni lögreglunnar á Höfn

Bæjarstjóra falið að fylgjast með breytingum lögreglumála og vera í sambandi við ráðuneyti í framhaldinu.

7.
Ráðstöfun fjárlagal. 11-373 niðurgreiðsla húshitunarkostn. og fl.

Bæjarráð fagnar því skrefi sem hefur náðst í jöfnun húshitunarkostnaðar en leggur áherslu á að haldið verði áfram á sömu braut.

8.
Ósk um umsögn á breytingu rekstrarleyfis fyrir Hof I

Bæjarráð gerir ekki athugsemd við breytingu rekstarleyfis.

9.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis fyrir Góuhóf 02.03.2013

Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við útgáfu tækifærisleyfis fyrir Góuhóf.

10.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis fyrir þorrablót Suðursveitar og Mýra

Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við útgáfu tækifærisleyfis fyrir þorrablóti Suðursveitar og Mýra.

11.
Ráðstefna um orkumál

Bryndís kynnti undirbúning ráðstefnunnar.

12.
Samningur um ráðningu verkefnisstjóra vöruþróunar og rannsókna á ferðaþjónustu í Ríki Vatnajökuls

Hjalti greindi frá stöðu málsins, kynnti drög að samningi og stöðugildið sem er gert ráð fyrir að ráða í. Björn Ingi óskaði eftir yfirliti um fjárveitingar til Ríkis Vatnajökuls. Hjalti gerði grein fyrir forsögu samstarfs við Ríki Vatnajökuls og hvaða fjármunir hafa verið settir í málaflokkinn.

Ásgerður taldi að verkefni áhugavert en mikilvægt að skoða það sem átaksverkefni. Árni taldi að aðkoma sveitarfélagsins að þessu máli geti reynst góður stuðningur við ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn samþykktur með þeirri viðbót að viðsemjendur sveitarfélagsins haldi ráðstefnu um ávinning af samstarfi sveitarfélagsins og Ríkis Vatnajökuls frá upphafi.

13.
Skipulag á vestanverðum Breiðarmerkursandi

Hjalti gerði grein fyrir fundi sem hann átti með landeigendum og hagsmunaaðilum á svæðinu. Hann lagði til að settur verði á fót starfshópur um málið.

Bæjarstjóra falið að gera drög að erindisbréfi.

14.
Stækkun á matarsmiðju Matís á Höfn

Hjalti gerði grein fyrir hugsanlegri stækkun matarsmiðjunnar og mögulegu samstarfi við hina ýmsu aðila.

15.
Söfn Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur

Bæjarráð þakkar gjöf þeirra Lovísu H. Gunnarsdóttur og Sverris Scheving Thorsteinssonar til sveitarfélagsins.

16.
Varaafl í sveitum

Hjalti gerði grein fyrir kostnaði við að setja varafl á Hrolllaugstaði, Heilsugæsluna og Hofgarð. Bæjarráð samþykkir að veita fjármuni í varaflstöðvarnar.

17.
Slit á Sandbakka ehf

Haukur Ingi og Ásta mættu á fundinn undir þessum lið. Haukur Ingi gerði grein fyrir málinu. Umræður um málið og starfsmönnum falið að ræða við viðkomandi aðila.

18.
Ósk um samvinnu við uppbyggingu á félagssvæði Akstursíþróttafélags A-Skaft.

Hjalti lagði til að bæjarráð heimsæki Akstursíþróttafélagið og fái kynningu á hugmyndum um uppbyggingu á brautum, húsnæði og aðstöðu félagsins. Einnig lagði hann til að stefnt verði að því að gera brautina keppnishæfa fyrir Humarhátið og landsmót í sumar.

19.
Martölvan - Samningur

Bæjarráð samþykkir samninginn með fyrirvara um yfirferð lögfræðings sveitarfélagsins.

20.
Tækifærisleyfi - Þorrablótsnefnd Hornafjarðar

Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við útgáfu tækifærisleyfis fyrir þorrablóti Hornafjarðar.

21.
Fyrirspurnir - bæjarráð