Bæjarráð Hornafjarðar
622. fundur
18. febrúar 2013
kl.
16:15
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálaráð Hornafjarðar - 237
Fundargerð samþykkt.
2.
hafnarstjórn Hornafjarðar - 152
Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið. Björn Ingi spurði um liði sem eru ekki á framkvæmdaáætlun 2013 í veitum t.d. Hrísbraut. Birgir greindi frá að þar eru ekki vandamál sem stendur. Einnig spurði hann um lið 7 fyrirhugaðan fund hjá Siglingastofnun og lið 6 framkvæmdir og viðhald við höfnina. Hjalti upplýsti um fyrirhugaðan fund og að von sé á viðauka í fjárhagsáætlun.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fundargerðir stjórnar SASS
Árni bar upp fyrirspurn um lið 5 í fundargerðinni sóknaráætlun Suðurlands.
Hjalti gerði grein fyrir málinu og greindi frá því að hornfirðingar hafi tekið þátt í vinnu við sóknaráætlunina og það ætti eftir að vinna ramma fyrir áætlunina. Þá spurði hann um lið 9 um samninginn við Hornafjörð, Hjalti greindi frá hugmyndum við ráðstöfun peninga sem koma með samningnum.
Fundargerð til kynningar.
4.
Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja á Höfn
Björn Imsland mætti á fundinn undir þessum lið. Gerði grein fyrir vinnu með ASK arkitektum um hugmyndir um frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja. Kom fram markmið með vinnunni er að ná heildarsýn yfir væntanlega þörf á úrbótum á núverandi mannvirkjum og byggingu nýrra mannvirkja til næstu ára áður en ráðist verður í framkvæmdir. Bæjarráð felur starfsmönnum að kostnaðarmeta einstaka framkvæmdaliði á framlagðri teikningu.
5.
Malbikun 2013
Birgir Árnason mætti á fundinn undir þessum lið hann fór yfir hugmyndir um malbikunarframkvæmdir. Lögð var fram hönnun á frágangi lóðar við Báruna sunnan vert. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna útboðsgögn í samræmi við umræður á fundinum.
6.
Kvörtun um sig á plötu
Umræður um málið, bæjarstjóra falið að fara yfir málið og meta ábyrgð sveitarfélagsins.
7.
Ósk um land undir skotvöll í landi Austurhóls
Bréf frá skotfélaginu lagt fram, þar sem óskað er eftir afnot af landi sem sveitarfélagið á. Bæjarstjóra falið að vinna að málinu.
8.
Sala á olíumalarstöð
Bæjarráð samþykkir að selja olíumararstöðina.
9.
Jöklaleið - Samningur við landeigendur um ráðstöfun á styrk
Gerð var grein fyrir drög að samningi við landeigendur í Hólmi og Brunnhól um byggingu gönguleiðarbrúar sem Sveitarfélagið Hornafjörður fékk í styrk í sínu nafni fyrir skömmu. Björn Ingi spurði um gönguleiðir og göngubrýr á gönguleiðinni og hvernig leiðin samræmist við stjórnunar og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi.
10.
Fyrirspurn um skipulag Ránarslóð 3
Málið er í vinnslu.
11.
Slökkviliðasafnasetur
Hjalti gerði grein fyrir viðræðum sínum við þá aðila sem hyggjast setja á fót Slökkviliðssafnasetur á Reykjanesi. Jafnframt greindi hann frá fundi sínum með Ragnari Imsland fyrir skömmu. Áhugi er hjá ofangreindum aðilum að fá elsta slökkvibíl Hornfirðinga á umrætt safn en verði áfram í eigu sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að ræða við slökkviliðsstjóra um málið og kostnaðargreina lagfæringar á bílnum.
12.
Auglýsingar eftir umsóknum vegna landsmóta UMFÍ
Erindinu vísað til skóla,-íþrótta og tómstundanefnd.
13.
Fyrirspurnir - bæjarráð