Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

625. fundur
11. mars 2013 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 32
Málsnúmer 1303003F
Bæjarráð samþykkir styrkumsóknir sem skóla-,íþrótta-og tómstundanefnd mælir með.
Vísað til starfsmanna að fara yfir umsóknarferli um styrkveitingar nefndarinnar.
Fundargerð samþykt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 39
Málsnúmer 1303001F
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 1302012F
Árni Rúnar benti á lið nr. 2 þar sem samþykkt er að halda vinnufund í nefndinni vegna endurskoðunar á aðalskipulagi með ráðgjafa og sagði mikilvægt að bæjarfulltrúar fái kynningu á þeirri vinnu sem er í gangi.
Fundargerð samþykkt.
4.
Brunavarnaáætlun sveitarfélagsins
Málsnúmer 201302086
Eldvarnaeftirlit Hornafjarðar hefur unnið að endurgerð Brunavarnaráætlun samkvæmt lögum um brunamál nr 75/2000. Eldvarnaeftirlitið er búinn að fá umsögn MVS um skýrsluna og leggur hana fyrir Bæjarráð til ferkari umsagnar.
Borgþór Freysteinsson eldvarnarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir brunarvarnaráætlun sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir áætlunina með áorðnum breytingum og felur bæjarstjóra að undirrita áætlunina.
5.
Malbikun 2013
Málsnúmer 201302059
Lagður fram tölvupóstur frá Árna Helgasyni, lögfræðingi, dags. 11. mars 2013 um heimild sveitarfélagsins til að ganga til samninga út frá fyrra útboði í malbikunarframkvæmdir.  Samþykkt að vinna útboðsgögn fyrri malbikunarframkvæmdir sveitarfélagsins 2013 í samræmi við innkaupareglur sveitarfélagsins.
6.
Málefni nýrra íbúa
Málsnúmer 201203024
Magnhildur Gísladóttir verkefnastjóri í málefnum innflytjenda mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir störfum sínum og fór yfir framkvæmdaáætlun í innflytjendamálum. Ákvörðun um framhald verkefnisins frestað til næsta fundar.
7.
Starf forstöðumanns Hornafjarðarsafna
Málsnúmer 201303013
Starf forstöðumanns Hornafjarðarsafna var auglýst og bárust tíu umsóknir.
Birgir Rafn Friðriksson, myndlistarkennar.
Eiríkur Valdimarsson, stundarkennari /verkefnastjóri.
Guðrún D. Whiehead, Phd. safnafræði.
Hjördís Kvaran Einarsdóttir, kennari.
Jón Sævar Baldvinsson, verkefnastjóri.
Jón Tryggvi Sveinsson, verkefnastjóri skjalavörslu.
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, Ma kynjafræði.
Skúli Snæland, Ma safnafræði.
Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur.
Valgeir Ómar Jónsson, Vélfræðingur.
Starfsmönnum falin áframhaldandi vinna í málinu.
8.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis fyrir Lionsklúbb Hornafjarðar
Málsnúmer 201303010
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
9.
Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Málsnúmer 200804118
Haukur Ingi mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti drög að breytingum á innkaupareglum sveitarfélagsins, bæjarráð samþykkir framlögð drög og samþykkir þau með áorðnum breytingum og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.
10.
Íslensk bæjarfjöll
Málsnúmer 201303005
Erindi frá bókaútgáfunni Tindi.
Erindinu vísað til umhverfis-og skipulagsnefndar og atvinnu-og menningamálanefnd.
11.
Fullorðinsfræðsla og fjarnám á háskólastigi
Málsnúmer 201303003
Bæjarstóri gerði grein fyrir málinu, honum falin áframhaldandi vinna í málinu.
12.
Drög að tíma- og verkáætlun samnings um Eflingu menntunar, rannsókna og nýsköpunar á Suðurlandi
Málsnúmer 201303011
Bæjarstjóri kynnti drög að tíma og verkáætlun dags. 6. mars, bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög.
13.
Kvörtun vegna sandfoks á Leirusvæði
Málsnúmer 201001024
Starfsmönnum falið að vinna að sáningu á svæðinu svo fljótt sem auðið er.
14.
Fundargerð 804. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 201303012
Fundargerð til kynningar.
15.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100