Bæjarráð Hornafjarðar
626. fundur
18. mars 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Kristján Sigurður Guðnason
varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálaráð Hornafjarðar - 238

Lögð fram tillaga félagsmálaráðs um hækkun leiguverðs. Kom fram að markmiðið væri að nálgast markaðsleigu.

Bæjarráð telur mikilvægt að skoða málin í heild, hækkun húsaleigu í samhengi við innleiðingu á sérstökum húsaleigubótum eins og félagsmálaráð gerir tillögu um. Bæjarráð óskar eftir að sjá útreikninga á nettó hækkun til þeirra sem leigja hjá sveitarfélaginu. Óskað eftir upplýsingum um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun húsaleigubóta.

Rætt um reglur um ferðaþjónustu fatlaðra og upphæð á kílómetra gjaldi innanbæjar.

Fundargerð samþykkt.

2.
Fundargerð stjórnar SASS 465. fundur

Fundargerð til kynningar.

3.
Malbikun 2013

Lögð fram útboðsgögn. Bæjarráð telur mikilvægt að endanlegt val á svæðum verði lagt fyrir bæjarráð en heimild er fyrir að bjóða það magn út sem fram kemur í útboðsgögnum. Starfsmönnum falið að auglýsa útboðið.

4.
Málefni nýrra íbúa

Árni vék af fundi undir þessum lið. Hjalti lagði til að tímabundin ráðning Magnhildar Gísladóttur sem verkefnisstjóra yrði framlengd um ár. Kom fram að mikilvægt væri að fylgja eftir öflugu starfi hennar í vetur og endurmeta stöðuna vorið 2014.

Björn Ingi spurði um heildarkostnað við að framlengja samninginn og hvaðan þeir fjárumunir ættu að koma. Jafnframt undirstrikaði hann að á sínum tíma hafi verið ákveðið að ráðningin yrði tímabundin og því væri hér aðeins um framlengingu á þeirri ákvörðun að ræða. Hjalti upplýsti að gera yrði viðauka við fjárhagsáætlun sem gerði grein fyrir þessari aukningu sem næmi allt að 2,7 m.kr.

Lagði Björn Ingi til að þegar um álíka ákvarðanir væri að ræða væri eðlilegt að rökstuðningur og kostnaðarmat fylgdu með á sérstöku minnisblaði.

5.
Aðkallandi verkefni og framkvæmdir í sveitarfélaginu

Lögð fram drög að minnisblaði um verkefni og framkvæmdir sem vinna þarf í samvinnu ríkis og sveitarfélagsins. Á minnisblaðinu er nýtt hjúkrunarheimili, samgöngubætur, áframhaldandi rannsóknir á Grynnslunum og fleiri mál tiltekin.

6.
Leigusamningur vegna tjaldsvæðis við Hafnarbraut

Gerð grein fyrir samskiptum vegna sölustarfsemi í húsnæði sveitarfélagsins á tjaldsvæðinu. Jafnframt gerð grein fyrir samskiptum milli þjónustuaðila og aðstandenda Humarhátíðar um dagsetningu hátíðar. Bæjarstjóra falið að ræða við leigjendur um samninginn og ákvæði í honum er varðar ofangreind mál.

7.
Starf forstöðumanns Hornafjarðarsafna

Hjalti lagði til að Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur yrði ráðin í starfið. Sagði Hjalti að eftir viðtöl og aðra undirbúningsvinnu væri það álit ráðgjafa sveitarfélagsins og starfsmanna að Vala séu hæfust í starfið. Samþykkt.

8.
Fyrirspurnir - bæjarráð

Engar borist.

9.
Erindisbréf nefnda

Bæjarráð samþykkir að nefndir fjalli um erindisbréf er varðar starfsviðs nefndanna og geri tillögu um breytingar til bæjarráðs.

10.
Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins

Farið yfir fyrirmynd að samþykktum um stjórn sveitarfélagsins eftir fyrirmynd frá innanríkisráðuneytinu. Bæjarstjóra falið að setja inn viðbætur og breytingar og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.