Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

627. fundur
2. apríl 2013 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 33
Málsnúmer 1302010F
Bæjarráð þakkar Björgu Erlingsdóttur fráfarandi forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar fyrir samstarfið á liðinum árum og býður Völu Garðarsdóttur velkomna til starfa.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 33
Málsnúmer 1303006F
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið. Fundagerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 41
Málsnúmer 1303007F
Fundargerð samþykkt.
4.
Þjónusta við börn í dreifbýli
Málsnúmer 201302066
Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri sat fundinn undir þessum lið. Fylgdi hún reglunum úr hlaði. Þær fela í sér að sækja má um leikskólapláss fyrir börn í sveitum vestan Fljóta fyrir þrjá daga á leikskóla í stað allra virka daga.  Sagði að fyrirkomulagið yrði til reynslu fram á vorið 2014 og þá metið upp á nýtt.  Árni Rúnar velti því upp hvort sambærilegt fyrirkomulag ætti að þróa fyrir þær fjölskyldur þar sem foreldrar væru í vinnu hluta úr viku.  Bæjarráð samþykkir framlagðar reglur.
5.
Ársreikningar 2012
Málsnúmer 201303038
Magnús Jónsson og Sigurjón Örn Arnarson endurskoðendur hjá KPMG sátu fundinn undir þessum lið.  Fyrir fundinum lá ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2012.  Endurskoðendur lögðu fram og kynntu endurskoðunarskýrslu.  Gerðu grein fyrir helstu stærðum í ársreikningi sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Ásta vék af fundi
6.
Staða bæjarsjóðs 28.febrúar 2013
Málsnúmer 201303043
Lögð fram staða bæjarsjóðs fyrstu tvo mánuði ársins.  Er hún í samræmi við áætlun.
7.
Endurbætur á Sindrabæ.
Málsnúmer 201301108
Lagt fram minnisblað dags. 19. mars um málið.  Einnig var lögð fram greinargerð frá Glámu Kím ehf..  Bæjarráð hyggst funda með umsjónarmanni fasteigna og hönnuðum um atriði er varða útlit hússins.  Stefnt að því að útboðsgögn verði tilbúin síðla árs 2013.  Tímasetning framkvæmda verði ákveðin í kjölfarið.
8.
Framtíðaruppbygging íþróttamannvirkja á Höfn
Málsnúmer 201302052
Lagðar fram hugmyndir um uppbyggingu nýs íþróttahús, tengibyggingu á milli sundlaugar og íþróttahúss og lagfæringar á núverandi búningsklefum íþróttahúss. Einnig lagt fram minnisblað af fundum starfsmanna um málið og drög að kostnaði við byggingu hvers áfanga.  Bæjarráð ræddi málið út frá þörf á fjárfestingum í öðrum verkefnum sveitarfélagsins, s.s. í veitur og götur.  Bæjarráð óskar eftir gögnum um heildarfjárþörf í verklegar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.  Jafnframt felur bæjarráð starfsmönnum að setja fram langtímaáætlun um hvernig ofangreindar framkvæmdir falli að fjárhagslegri getu sveitarfélagsins á hverjum tíma.
9.
Lóð við Heppuskóla
Málsnúmer 201303036
Lögð fram gögn um lokafrágang á plani við Heppuskóla og íþróttasvæði.  Kostnaðaráætlun rúmast innan fjárhagsramma.  Bæjarráð samþykkir framlögð gögn og felur starfsmönnum að bjóða verkið út án gangstéttar við norðausturhlið skólans.
10.
Umsókn um lóð að Álaleiru 12
Málsnúmer 201303052
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið.  Bæjarráð samþykkir framlagða lóðarumsókn.
11.
Kröfubréf vegna leiktækja á opum leiksvæðum í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201203054
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
12.
Virkjanakostir á Hornafirði
Málsnúmer 201303027
Lagt fram tilboð frá Verkís um að gera úttekt á möguleikum á smávirkjunum á svæðinu.  Upplýst að leitað hafi verið eftir samstarfi við Búnaðarsambandið um verkefnið.  Bæjarráð ræddi um möguleika á fjármögnun frá Frumkvöðlasetri Austurlands ehf.
Bæjarráð ræddi um að gæta þurfi jafnræðis meðal landeigenda.  Bæjarstjóra falið að ræða við Verkís um að taka saman minnisblað um þau skilyrði og gögn sem þurfa að vera til staðar til að virkjun geti talist hagkvæm.  Síðan yrði framhaldið skoðað með þeim landeigendum sem hafa áhuga á að landareign þeirra verði skoðuð nánar.
13.
Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins
Málsnúmer 201211060
Lögð fram drög að samþykkt. Bæjarráð leggur til að reglur um ræðutíma verði óbreyttar frá núverandi samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.  Málinu vísað til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
14.
Forvarnir endurskoðun stefnu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201202022
Ragnhildur Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið. Kynnti hún hugmyndir um opin fund um stefnumótun um heilsueflingu og forvarnir.  Áætlaður kostnaður er um 300 þúsund.  Starfsmönnum falið að hrinda hugmyndinni í framkvæmd.
15.
Breytingar á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 201303055
Bæjarstjóra falið að skrifa umsögn sem verður borin undir bæjarráð áður en hún verður send frá sveitarfélaginu.
16.
Sterkari stjórnsýsla - nám fyrir forstöðumenn
Málsnúmer 201303056
Ásgerður Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið. Ragnhildur Jónsdóttir sat fundinn undir þessum lið.   Sagði frá kynningu sem forstöðumenn sveitarfélagsins fengu frá háskólanum á Bifröst um nám fyrir stjórnendur hjá sveitarfélögum.  Boðið er upp á að fá námið í heimabyggð.  Alls hafa þrettán stjórnendur hjá sveitarfélaginu lýst yfir áhuga á að taka þátt í náminu.  Meðal námsgreina er mannauðsstjórnun, stjórnsýsluréttur, siðfræði, fjármál, áætlanagerð, mótun framtíðarsýnar og innleiðingu breytinga.  Kostnaður væri 1,6 m.kr. á ári og 3,2 m.kr. fyrir námið í heild.  Bæjarráð var sammála um mikilvægi þess að stjórnendur fengju námskeið eins og þessi.  Því var velt upp hvort ná megi þeim markmiðum með annars konar útfærslu. Málinu vísað til starfsmanna til frekari skoðunar.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 
17.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100