Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

628. fundur
15. apríl 2013 kl. 15:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálaráð Hornafjarðar - 239
Málsnúmer 1304001F

Fundargerð samþykkt.

2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 42
Málsnúmer 1303009F

Reynir ræddi um aðalskipulag og mikilvægi þess að koma því í umræðu í bæjarstjórn og meðal íbúa.

Guðrún ræddi um leyfisveitingar fyrir íbúðarhús sem tekin eru undir gistiþjónustu.  Bæjarráð óskar eftir yfirliti um þá aðila sem hafa leyfi til reksturs gistiþjónustu og um hvaða hús ræðir.  Jafnframt felur bæjarráð starfsfólki að fylgja því eftir að þar sem slík starfsemi fer fram að leyfismál séu í samræmi við lög og reglur.

Fundargerð samþykkt.

3.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 32
Málsnúmer 1303010F

Fundargerð samþykkt.

4.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 201212011

Til kynningar.

5.
Malbikun 2013 opnun tilboða
Málsnúmer 201302059

Björgvin Sigurjónsson og Birgir Árnason sátu fundinn undir þessum lið.  Lögð fram fundargerð frá opnun tilboða í malbikun. Jafnframt lögð fram yfirlitsmynd og kostnaðaráætlun vegna framkvæmdanna.  Bæjarráð samþykkir að taka til boði Hlaðbæ Colas upp á 84.778.950 kr. sem er 100,6% af kostnaðaráætlun.  Jafnframt samþykkt tillaga um yfirlagnir og nýlagnir með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.  Umhverfis- og skipulagsnefnd falið að útfæra endanlega lóð við Báruna og göngustíg meðfram Ránarslóð.

6.
Fráveitumál í og við Hornafjarðarhöfn
Málsnúmer 201303035

Björgvin Sigurjónsson og Birgir Árnason sátu fundinn undir þessum lið.  Lagt fram bréf frá HAUST, dags. 16. mars 2013 um fráveitumál.  Hjalti upplýsti að fyrirhugað sé að taka saman stöðuskýrslu um fráveitumál og í framhaldi vinna framkvæmdaáætlun í samráði við HAUST.

7.
Sérstakar húsleigubætur
Málsnúmer 1202045

Lagðir fram útreikningar sem sýna áhrif sérstakra húsaleigubóta fyrir þá sem eiga rétt á þeim. Fyrirhuguð hækkun leiguverðs á íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins mun ekki hafa áhrif á þann hóp.  Hins vegar mun leiðrétting á leiguverði hafa áhrif á aðra leigjendur, mismunandi eftir hvernig leiguverðið var fyrir breytingu.

Bæjarráð samþykkir framkomna tillögu félagsmálaráðs um leiðréttingu leiguverðs og innleiðingu sérstakra húsaleigubóta.

8.
Eineltisstefna - ósk heimild fyrir stofnun eineltisteymis
Málsnúmer 201302088

Lögð fram ósk frá forstöðumönnum um stofnun eineltisteymis. Óskin samþykkt.

9.
Beiðni um tilnefningu fulltrúa í skólanefnd Fas
Málsnúmer 201304015

Málinu frestað.

10.
Uppbygging og starfsemi í Vöruhúsi
Málsnúmer 201301066

Hjalti ræddi nauðsyn þess að taka ákvörðun um framtíð Vöruhússins, hvort sveitarfélagið vilji eignast húsið eða leigja það áfram.  Ræddi jafnframt um aðkomu ríkisins að þeim kaupum í tengslum við Framhaldsskólann ef af yrði.  Bæjarráð ræðir málið á næstu fundum.

11.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100

Undir þessum lið kynnti Reynir Arnarson eftirfarandi erindi frá 2. S í Grunnskóla Hornafjarðar sem afhent var fyrr um daginn:

"Við, nemendur í 2. S í Grunnskóla Hornafjarðar, óskum eftir að fá gönguljós með hljóðmerki hjá gangbrautinni við gatnamót Hafnarbrautar og Víkurbrautar.  Hljóðmerkið er gott fyrir eldri borgara og alla aðra sem eru farnir að sjá illa.  Við höfum verið í umferðarfræðslu í allan vetur og höfum komist að því að það er mikilvægt að vera öruggur í umferðinni.  Þess vegna langar okkur að fá svona gönguljós í litla bæinn okkar.  Við hlökkum til að fá svar frá ykkur."

Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umhverfis- og skipulagsnefndar sem fer með umferðarmál í sveitarfélaginu.