Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

629. fundur
22. apríl 2013 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir varaformaður
Ásgrímur Ingólfsson varamaður
Valdemar Einarsson varamaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
hafnarstjórn Hornafjarðar - 154
Málsnúmer 1304005F

Guðrún spurði um komur skemmtiferðaskipa í sumar.  Valdemar upplýsti um skipakomur í sumar.

Ásgerður ræddi um tillögu hafnarstjórnar um breytingu á erindisbréfi.  Bæjarráð sammála tillögu hafnarstjórnar um að veitur og áhaldahús færist frá hafnarstjórn til bæjarráðs.  Samhliða því þarf að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum um stjórn sveitarfélagsins.  Vísað til bæjarstjórnar.

Fundargerð samþykkt.

2.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 34
Málsnúmer 1304003F

Bæjarráð ræddi um lið 2, þar sem rætt er um heimild leikskólastjóra til að kanna hvort umsækjendur eru á sakaskrá eða ekki.  Bæjarráð sammála um mikilvægi þess að þetta fyrirkomulag verði viðhaft almennt við ráðningu í opinber störf.

Fundargerð samþykkt.

3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 43
Málsnúmer 1304004F

Valdemar ræddi bókun umhverfis- og skipulagsnefndar um að heimila Skinney Þinganes að gera deiliskiplag vegna fyrirhugaðra byggingaráforma. Taldi Valdemar mikilvægt að fá álitsgerð á því hvort eðlilegt sé að einkafyrirtæki geri deiliskipulag varðandi byggingaráform á sínum vegum.  Tók Valdemar undir þær áherslur að áformin fái opna og almenna kynningu.  Ásgerður upplýsti að leitað verði eftir áliti lögfræðings á málinu.  Hjalti og Ásgrímur viku af fundi umdir þessum umræðum.

Guðrún áréttaði að taka þurfi niður skilti og merkingar fyrir Strætó sem beini farþegum að N1 en ekki að sundlaug þar sem afgreiðslan er núna. Jafnframt óskaði hún eftir upplýsingum um aldur bensíntanka í ljósi fréttaflutnings frá Austurlandi.

Ásgrímur upplýsti að stefnan væri að taka svæðið frá gatnamótum Víkurbrautar og Hafnarbrautar að sýsluskrifstofunni í gegn í sumar.  Einnig að taka svæðið á mótum Heiðarbrautar, Silfubrautar og Smárabrautar.  Þriðja svæðið væri á milli Bárunnar og Garðshóls, hugsanlega með tengingu yfir á hafnarsvæðið.

Valdemar ræddi um fyrirhugaða starfsemi við Fjallsárlón.

Fundargerð samþykkt.

4.
Beiðni um tilnefningu fulltrúa í skólanefnd Fas
Málsnúmer 201304015

Aðalmenn verði Snæfríður Svavarasdóttir og Valdemar Einarsson og til vara verði Ásgerður Gylfadóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson.

5.
Boðun aðalfundar Sláturfélagsins Búa 2013
Málsnúmer 201304026

Kirstján Guðnason verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.

6.
Land fyrir skotæfingar
Málsnúmer 200907004

Hjalti ræddi um samtöl við forsvarsmenn Skotfélagsins og vettvangsferð i Skógey.  Upplýsti að Skotfélaginu líst vel á að nýta hluta af Austurhólslandi í Skógey undir skotvsvæði.  Sagði Hjalti að nú væri verið að vinna að teikningum af fyrirhuguðu svæði og næsta skref væri að kynna þær sem og umgengnisreglur á svæðinu.  Síðan færi það í almenna kynningu.  Bæjarráð fagnar því að málin séu komin í þennan farveg og leggur áherslu á góða samskipti við hagsmunaaðila um uppbyggingu svæðisins.

7.
Rafmagnsmál á landsmóti UMFÍ á Hornafirði 2013
Málsnúmer 201108002

Hjalti greindi frá viðræðum við rafverktaka um rafmagnsmál á landsmóti.  Upplýsti að kostnaður verði umtalsverður.  Bæjarráð leggur áherslu á að fá nákvæma kostnaðaráætlun og málið verði í framhaldinu tekið upp við UMFÍ.

8.
Mengunarvarnir fráveitu frá atvinnustarfsemi
Málsnúmer 201304027

Til kynningar.

9.
Samfélagsvefurinn www.ríkivatajökuls.is og www.riki.is
Málsnúmer 201304028

Lagt fram bréf frá eigendum rikivatnajokuls.is um viðræður um kaup sveitarfélagsins á vefnum.  Hjalti upplýsti um viðræður við eigendur um málið.  Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa drög að kaupsamningi þar sem nákvæmlega verði útlistað hvað fylgi með í hugsanlegum kaupum.

10.
Styrkur til verkefnisins Gamla búð, endurnýjun, gestastofa VJÞ Upplýsingamiðstöð ferðamanna
Málsnúmer 201304038

Upplýst að fengist hafi 6,5 m.kr. í stuðning frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.  Von er á afgreiðslu Húsafriðunarnefndar í byrjun maí.

11.
Deiliskipulag HSSA
Málsnúmer 201211099

Fyrir fundinum lá tillaga umhverfis- og skipulagsnefndar að ganga til samninga við Steinholt sf. Samþykkt.

12.
Hundasvæði
Málsnúmer 201304002

Fyrir fundinum lá tillaga umhverfis- og skipulagsnefndar um að afmarka svæði fyrir lausagöngu hunda í Lyngey.  Bæjarráð vill árétta að reglur um hunda og ketti í sveitarfélaginu eru skýrar, m.a. hvað lausagöngu varðar. Bæjarráð er samála um að auglýsa Lyngey sem svæði fyrir lausagöngu hunda en leggur áhersla á að leyfilegt er að vera með hunda í bandi á öðrum svæðum í sveitarfélaginu í samræmi við reglur.  Jafnframt áréttar bæjarráð að eigendur hirði upp eftir sína hunda.

13.
Landsmót 50
Málsnúmer 201304055

Lagt fram bréf frá formanni USÚ þar sem óskað er eftir stuðningi sveítarfélagsins við að sækja um Landsmót fyrir 50+ árið 2015.  Bæjarráð fagnar erindinu og lýsir yfir fullum stuðningi við umsóknina.

14.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100

Engar.