Bæjarráð Hornafjarðar
630. fundur
29. apríl 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Valdemar Einarsson
varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 34

Valdemar velti því upp hvort fundarmenn væru opnir fyrir því að fyrirtæki hæfi starfsemi í gömlu mjólkurstöðinni. Reynir taldi að slíkar hugmyndir myndu falla í góðan jarðveg hjá stjórn félagsins sem á húsið. Hjalti upplýsti að þær hugmyndir sem unnið hafi verið með Matís um eflingu matarsmiðju væri ekki háð einu húsnæði frekar en öðru.

Fundargerð samþykkt.

2.
Ársreikningar 2012

Vísað til bæjarstjórnar.

3.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Hjalti upplýsti um ábendingar frá innanríkisráðuneytinu og nýjar greinar sem settar hafa verið inn í samþykktirnar í kjölfarið. Þær greinar eru nákvæmari er varðar hugsanlegt framsal valds bæjarstjórnar til nefnda og embættismanna um einstök mál. Slíkt framsal verður ekki virkjað nema með sérstakri ákvörðun eða samþykkt bæjarstjórnar.

Vísað til bæjarstjórnar.

4.
Skipurit fyrir sveitarfélagið

Vísað til bæjarstjórnar.

5.
Skipulag safna- og menningarmála

Valdemar spurði um kostnað sveitarfélagsins vegna breytinga í þessum málaflokki. Upplýsti Hjalti um að kostnaður yrði innan ramma fjárhagsáætlunar ársins. Helsta breytingin í tillögunni er að færa skapandi starf og viðburði undir starfsemi Vöruhússins og þar með undir fræðslustjóra. Safnamál í heild sinni heyrðu undir nýjan forstöðumann sem tekur til starfa þann 1. júní nk.

Vísað til bæjarstjórnar.

6.
Lokun urðunarstaðar í Öræfum - fyrirmæli um frágang og vöktun.

Valdemar spurði um vöktun á gömlum ruslahaugum. Vísað til starfsmanna.

Lagt fram til kynningar.

7.
Erindisbréf Atvinnu og menningamálanefndar 2013

Bæjarráð leggur áherslu á að fyrirkomulag með boðun varamanna verði samræmt á milli nefnda og það sé starfsmaður nefndar sem boði varamann sé honum tilkynnt um forföll. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að allir aðal- og varamenn í nefndum hafi aðgang að fundargátt.

Vísað til bæjarstjórnar.

8.
Erindisbréf Stjórnar HSSA 2013

Vísað til bæjarstjórnar.

9.
Erindisbréfi Hafnarstjórnar 2013

Vísað til bæjarstjórnar.

10.
Erindisbréf Umhverfis og skipulagsnefndar 2013

Vísað til bæjarstjórnar.

11.
Erindisbréf Félagsmálaráðs 2013

Bæjarráð bendir á að samræma þurfi heiti nefndarinnar, í félagsmálanefnd.

Vísað til bæjarstjórnar.

12.
Erindisbréf Skóla,-íþrótta,og tómstundanefndar 2013

Vísað til bæjarstjórnar.

13.
Ósk um umsögn á endurnýjun rekstrarleyfis fyrir ferðaþjónustuna Litla Hofi í Öræfum

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

14.
Ósk um rekstrarleyfi fyrir Flugleiðahótel ehf. vegna Hótel Eddu Ránarslóð 3 á Höfn

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

15.
Ósk um aðkomu sveitarfélagsins að kveðju- og móttökuathöfn fyrir Guðna Pál Viktorsson vegna verkefnisins Lífróður Samhjálpar

Bæjarráð felur hafnarstjóra og forstöðumanni Hornafjarðarhafnar að sinna þessu verkefni.

16.
Tilmæli Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Ríkis Vatnajökuls og Almannavarna til ferðaþjónustuaðila vegna öryggis ferðamanna

Bæjarráð fagnar framkomnum tilmælum og leggur til að þau fari í opinbera kynningu.

17.
Samfélagsvefurinn www.ríkivatajökuls.is og www.riki.is

Bæjarstjóra falin áframhaldandi vinna í málinu og leggja endanleg drög að samningi fyrir bæjarráð.

18.
Umsókn um styrk v. þattöku í íþróttamóti erlendis

Sveitarfélagið veitir kr 200.000 í styrk til Sveinbjargar Zophoníasardóttur.

19.
Ósk um umsögn á útgáfu tækifærisleyfis vegna dansleiks í Stekkhól 30. apríl 2013

Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við útgáfu leyfisins.

20.
Fyrirspurnir - bæjarráð

Engar.