Bæjarráð Hornafjarðar
632. fundur
13. maí 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
varamaður
Valdemar Einarsson
varamaður
Guðrún Ingimundardóttir
varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 44

Valdemar áréttaði að varamönnum sé kennt á fundargáttina. Jafnframt ræddi Valdemar um samningagerð í tengslum við sorphirðu. Guðrún ræddi um gjaldtöku í tengslum við innleiðingu á tveggja tunnu kerfi og hvort gjöld yrðu hækkuð. Þá gerði Guðrún göngustíg í Óslandi að umtalsefni og mikilvægi þess að gera steingervinga sýnilega fyrir þeim sem ganga um svæðið og lagði til að málið yrði tekið upp við starfsfólk Náttúrustofu.

Umræða skapaðist um dæluhús á móti Olís og framtíð þess. Upplýst að málinu hafi verið vísað til atvinnu- og menningarmálanefndar.

Kristján ræddi um aðgerðir á opnum svæðum og minntist á fyrirhugaðar framkvæmdir við Sundlaugina og á miðsvæðinu.

Fundargerð samþykkt.

2.
Fullorðinsfræðsla og fjarnám á háskólastigi

Hjalti gerði grein fyrir þróun mála. Sagði frá heimsókn frá Fræðsluneti Suðurlands og Háskólafélagi Suðurlands. Bæjarstjóra falið að taka saman greinagerð um stöðu málaflokkana. Bæjarráð áréttar að mikilvægast sé að þjónusta fyrir íbúa skerðist ekki við hugsanlegan flutning yfir á Suðurland.

3.
Fundur um stofnun þjóðlenda í fasteignaskrá og fleiri málefni þeirra

Lagt fram bréf frá 2. maí 2013 um fyrirhugaðan fund í ráðhúsi Hornafjarðar um þjóðlendur, stofnun þeirra í fasteignaskrá og önnur mál er þær varðar.

4.
Ósk um umsögn á stofnun lögbýlis út úr Hofi í Öræfum

Bæjarráð samþykkir málið fyrir sitt leyti.

5.
Laun í vinnuskóla sumarið 2013

Bæjarráð samþykkir að launaflokkar í vinnuskóla verða sömu og árið áður.

6.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Bæjarráð fagnar framkomnum drögum að umhverfisstefnu. Stefnunni hefur verið vísað til nefnda til umsagnar og mun bæjarráð taka afstöðu til einstakra þátta hennar að þeirri yfirferð lokinni.

7.
Umsókn um tækifærisleyfi - Kvennakór Hornafjarðar

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

8.
Fyrirspurnir - bæjarráð