Bæjarráð Hornafjarðar
633. fundur
27. maí 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 35

Hjalti upplýsti um framgang sýninga. Upplýsti að ekki næðist að opna sýningu í Skreiðarskemmu á Sjómannadag, stefnt væri að opnun fyrri hlutan í júní. Lögð fram tillaga frá sýningarstjóra Vatnajökulsþjóðgarðs um merkingu á Gömlubúð sem var samþykkt.

Lovísa spurði um verkefnið Sjávarþorpið Höfn. Hjalti upplýsti að það væri verkefni sautján aðila í ferðaþjónustu sem vildu markaðssetja Höfn betur sem áfangastað fyrir ferðamenn.

Fundargerð samþykkt.

2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 240

Fundargerð samþykkt.

3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 154

Rætt um afrakstur af þátttöku á kaupstefnum fyrir skemmtiferðaskip.

Fundargerð samþykkt.

4.
Skóla,íþrótta og tómstundanefnd - 35

Fundargerð samþykkt.

5.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 45

Ásgerður benti á að Slysavarnardeildin Framtíðin hafi áður lýst yfir vilja til að koma að bættu umferðaröryggi á Hafnarbraut.

Guðrún benti á að upplýsingar er varðar kostnað á innleiðingu 2ja tunnu kerfis ekki í samræmi við upplýsingar sem bæjarráð hafi fengið með þessu fundarboði. Lagði hún áherslu á að málið fengi góða kynningu.

Ásgerður spurði um deiliskipulag við Jökulsárlón og hvenær nefndin tæki málið aftur fyrir. Hjalti sagði að stefnan væri að gera það í byrjun júní.

Ásgerður spurði um starfsemi á vesturbakka Jökulsárlóns og benti á að nefndir og ráð sveitarfélagsins hafi hafnað því að starfsemi verði á vesturbakkanum.

Ásgerður spurði um aðalskipulag í Stafafellsfjöllum. Hjalti upplýst að það yrði væntanlega tekið fyrir í bæjarstjórn á júnífundi.

Fundargerð samþykkt.

6.
Sorphirða 2-3 tunnukerfi

Haukur Ingi Einarsson sat á fundinn undir þessum lið. Ræddi hann um kostnað við að innleiða tveggja tunnu kerfi og greindi frá megindráttum er varðar framkvæmdina. Rætt um að kynna þurfi breytinguna vel, bæði hvað varðar framkvæmd og aukakostnað. Hauki Inga falið að fá tilboð í kaup á tunnum og öðru sem lýtur að útfærslu í framkvæmdinni.

7.
Ósk um viðræður um möguleg kaup á Hafnarbraut 52

Haukur Ingi sat fundinn undir þessum lið. Sagði frá áliti lögfræðings er varðar álitamál er tengist hugsanlegri sölu. Bæjarstjóra falið að tilynna fyrirspyrjendum að bæjarráð hyggur ekki á sölu húsnæðisins.

8.
Tölvumál í Grunnskóla Hornafjarðar

Haukur Ingi Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir og Ragnhildur Jónsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Þórgunnur fór yfir málið, greindi frá umræðum í skólanum um málið og hvernig skólinn sæi innleiðingu á spjaldtölvum í skólastarfi fyrir sér. Ragnhildur greindi frá umræðum um spjaldtölvuvæðingu í skólum á vorráðstefnu fræðslustjóra. Til að innleiðing gengi vel væri gott netsamband lykilatriði. Þórgunnur og Ragnhildur svöruðu fyrirspurnum fundarmanna um breytingu á kennsluháttum sem innleiðing á spjaldtölvum fæli í sér og fleira.

Bæjarráð samþykkir framkomna ósk Grunnskólans og tekur undir að innleiðing verði gerð í smáum skrefum.

9.
Niðurstöður umræðuhópa á landsþingi

Til kynningar.

10.
Ósk um umsögn á umsókn um rekstarleyfi

Um er að ræða breytta notkun á íbúðarhúsinu Hrísbraut 2 í gististað, flokk II.

Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.

11.
Fjölfarnir vegir

Lagt fram bréf þjóðgarðsvarðar, dags. 10. maí 2013, um viðhald vega að fjölförnum ferðamannastöðum og útskot og merkingar við þjóðveg 1. Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að vegum að fjölförnum ferðamannastöðum verði viðhaldið. Jafnframt telur bæjarráð að spornað sé gegn utanvegaakstri, m.a. með bættum merkingum.

12.
Umsókn um lóð Sæbraut 8

Umsókninni hafnað. Bæjarráð bendir á að sækja megi um geymslulóðir í Óslandi.

13.
Fyrrispurn um lóð- Stekkaklett í Hafnarnesi

Kom fram að lóð umhverfis húsið er 11550 fermetrar. Bæjarráð er samála um að endurskoða þurfi lóðarleigusamningi þannig að lóðin sem fylgi húsinu verði minnkuð talsvert og horft til svæðis sem nú er afgirt. Vísað til umhverfis- og skipulagsstjóra.

14.
Lántaka - ósk um tilboð til fjármálastofnana

Haukur Ingi Einarsson sat fundinn undir þessum lið. Kom fram að lausafjárstaða sveitarfélagsins sé sterk, alls 250 m.kr. Framundan eru gjalddagar á stórum verkefnum, s.s. malbikunarframkvæmdum, Heppuskóla og afborganir á langtímalánum. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 200 m.kr. lántöku á árinu. Ekki er útlit fyrir að horfa þurfi til lántöku fyrr en haustar og þá talsvert lægri upphæð en 200 m.kr.. Starfsmönnum falið að óska eftir tilboðum hjá fjármálastofnunum vegna hugsanlegrar lántöku.

15.
Gististaðir og rekstrarleyfi

Lagt fram álit lögfræðings á annars vegar málefnum er tengjast leyfum fyrir rekstri gististaða og hótela og hins vegar er varðar álagningu fasteignaskatts á húsum sem tekin eru undir gistþjónustu. Bæjarráð felur starfsmönnum að fylgja málinu eftir og upplýsa um hvaða leyfi þarf að sækja um í hverju tilfelli fyrir sig og jafnframt að upplýsa um ýmis gjöld sem þessu fylgja, þ.m.t. hækkun á fasteignaskatti.

16.
Slit á Sandbakka ehf

Haukur Ingi Einarsson sat fundinn undir þessum lið. Greindi hann frá vinnu við slitum á Sandbakka ehf. Bæjarráð samþykkir að slíta félaginu.

17.
Nýheimar 2012-2022

Hjalti gerði grein fyrir gerð skipulagsskrár fyrir Nýheima. Föstudaginn 31. maí kl. 12.15 hefst formlegur stofnfundur.

18.
Fjarverustefna

Haukur Ingi Einarsson, Þórgunnur Torfadóttir og Ragnhildur Jónsdóttir sátu fundinn undir þessum lið. Kom fram að framkominn tillaga að fjarverustefnu sé fyrir allar stofnanir sveitarfélagsins og til þess gert að samræma vinnubrögð á milli stofnana sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir framkomna stefnu.

19.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2013 - síðari umræða

Lagðar fram athugasemdir frá innanríkisráðuneytinu. Starfsmönnum falið að laga samþykktir samkvæmt ábendingum ráðuneytis og samráði við fulltrúa í bæjarráði á milli funda.

20.
Fyrirspurnir - bæjarráð