Bæjarráð Hornafjarðar
634. fundur
3. júní 2013
kl.
16:15

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
varaformaður
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 34

Björn Ingi spurði um framtíð starf ljósmóður. Ásgerður upplýsti að engin hafi sótt um stöðuna og verið sé að vinna að hugmyndum um útfærslu á starfi ljósmóður og breytingum sem kunna að verða í framhaldinu.

Guðrún lagði áherslu á að jafnlaunaátak ríkissins nái jafnframt yfir stofnanir sem ekki eru reknar á ábyrgð ríkisins. Bæjarráð tók undir orð Guðrúnar.

Fundargerð samþykkt.

2.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2013 - síðari umræða

Vísað til bæjarstjórnar til síðari umræðu.

3.
Niðurstaða sýnatöku- urðunarstaður í Lóni

Lagt fram til kynningar.

4.
Niðurstöður sýnatöku skólphreinsivirki v. Leiðarhöfða

Lagt fram til kynningar. Umræða skapaðist um framtíð fráveitu, þörf á frekari uppbyggingu við hafnarsvæðið og lengingu útrásar við Leiðarhöfða.

5.
Eftirlitsskýrsla - gámavöllur Höfn

Lagt fram til kynningar.

6.
Tilkynning um félagsfund Sláturfélagsins Búa

Reynir Arnarson verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.

7.
Ósk um lagfæringu á oíumöl

Hjalti gerði grein fyrir samtölum við íbúa á Fiskhól. Ræddi jafnframt um viðræður við íbúa við fleiri götur. Sagði að þörf væri á lagfæringum víðar í bænum og nefndi Kirkjubraut, Hólabraut og Hrísbraut auk Fiskhóls. Undir þessum lið ræddi Hjalti um frágang á svæði við Báruna, bæði við Vegagerðarlóðina og á milli Garðshóls og Bárunnar. Starfsmönnum falið að gera drög að áætlun um næstu skref varðandi lagfæringar á götum innan Hafnar.

8.
Fjöldahjálparstöðvar í sveitarfélaginu Hornafirði

Vísað til umsjónarmanns fasteigna til yfirferðar og skoðunar.

9.
Stjórnendanám

Ásgerður vék af fundi undir þessum lið. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Háskólann á Bifröst. Nánari útfærsla á fyrirkomulagi til dæmis er varðar réttindi og skyldur forstöðumanna er námið sækja verði skilgreint nánar í samvinnu þeirra og bæjarráðs. Málinu vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2014 að öðru leyti.

10.
Ósk um umsögn á útgáfu rekstrarleyfis f. Jöklasýn ehf.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

11.
Samningur um styrk til Jöklaleiðin- göngustígar vestan Jökulsárlóns

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi um verkefnið við Ríki Vatnajökuls ehf.

12.
Tilboð í málningavinnu

Lagt fram tilboð í málningarvinnu fyrir íþróttahúsið í Nesjum og Hafnarskóla frá Málningarþjónustunni ehf. Ásgerður óskaði eftir að húsin verði merkt í kjölfarið.

13.
Tækifærisleyfi - ósk um umsögn

Lögð fram ósk um umsögn fyrir tækifærisleyfi frá Kvennakór Hornafjarðar vegna þjóðakvölds á Humarhátíð. Lögð fram ósk um umsögn fyrir tækifærisleyfi frá Hestamannafélaginu Hornfirðingi vegna Fjórðungsmóts hestamanna á Austurlandi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfanna.

14.
Fullorðinsfræðsla og fjarnám á háskólastigi

Hjalti gerði grein fyrir framvindu málsins á síðustu vikum. Bæjarráð samþykkir að sækja um aðild að Fræðsluneti Suðurlands og Háskólafélagi Suðurlands. Jafnframt samþykkir bæjarráð að þegar samningur milli Þekkingarnets Austurlands renni út um áramót verði Sveitarfélagið Hornafjörður ekki hluti af nýjum samningi um slíkt starf á Austurlandi.

15.
Fyrirspurnir - bæjarráð