Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

637. fundur
8. júlí 2013 kl. 13:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Kristján Sigurður Guðnason varamaður
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 35
Málsnúmer 1306012F

Guðrún benti á að hún hafi ekki setið fundinn eins og kemur fram í hausnum.  Spurði hún um verkefni velferðarteymis.  Hjalti upplýsti að þetta vinnulag hafi verið tekið upp þegar sviðaskipting í stjórnsýslu var afnuminn og markmiðið væri að virkt samráð og samvinna ætti sér stað á milli deilda og stofnana sem vinna á ákveðnum málefnasviðum.

Fundargerð samþykkt.

2.
Humarhátíð 2013
Málsnúmer 201307022
Humarhátíðarnefnd mun mæta á fundinn.

Humarhátíðarnefnd 2013 kom á fundinn og ræddi framkvæmd Humarhátíðar.  Upplýstu að nú væri unnið að uppgjöri á hátíðinni bæði hvað varðar framkvæmd hennar sem og fjárhagslega. Ræddu um að humarshúpa á föstudeginum hafi verið jákvætt skref og mæltist vel fyrir.  Einnig að humarinn hafi verið meira áberandi en fyrri ár. Ræddu bæjarráðsmenn að bærinn hafi snyrtilegur og yfirbragð hátíðarinnar í ár hafi verið gott.  Einnig kom fram hjá nefndinni að betur hafi tekist en áður að virkja aðila til að sjá um einstaka viðburði og þannig verði hátíðin á endanum jafn stór og íbúar og fyrirtæki væru tilbúinn að leggja henni lið í að setja upp viðburði og halda þeim úti.

Undir þessum lið benti Guðrún á að setja þyrfti bekki á strandstíginn til að fólk gæti hvílt sig á göngu um hann.

Björn Ingi ræddi um að knattspyrnudeild Sindra væri orðin ein með ábyrgð á hátíðinni.  Ræddi þann möguleika að félögin sem eiga kennitölu Humarhátíðar myndu afhenda sveitarfélaginu félagið.  Hjalta falið að vinna að því verkefni.

Valdemar benti á að sviðið væri komið til ára sinna og spurning um þörf á endurnýjun.

Bæjarráð þakkar nefndinni fyrir vel unnin störf.

3.
Staða fjármála 31. maí 2013
Málsnúmer 201307018

Hjalti kynnti stöðu fjármála 31. maí.  Er hún í samræmi við fjárhagsáætlun.

4.
Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2014
Málsnúmer 201307021

Vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2014.  Kom fram að starfsmenn eru að undirbúa fjárhagsáætlunarvinnu næsta árs. Ásgerður benti á að Samband sveitarfélaga hafi unnið fyrirmynd að viðauka fyrir fjárhagsáætlun sveitarfélaga.

5.
Endurnýjun klæðningar á vegi í Ósland
Málsnúmer 201307010

Lögð fram umsókn um endurnýjun klæðingar í Óslandi. Verkið hefur þegar verið unnið og ekki gerð athugasemd við það.  Guðrún taldi mikilvægt að allur vegurinn yrði klæddur að nýju.

6.
Styrkur til rofavarna á Suðurfjöru
Málsnúmer 201307014

Til kynningar.

7.
Hafna-og rekstrarsvið Siglingastofnunar sameinast Vegagerðinni - tilkynning
Málsnúmer 201307011

Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með forstjóra nýrrar stofnunar um nauðsynlegar samgöngubætur á svæðinu.

8.
Atvinnumálastefna SASS og Hornafjarðar - samningsdrög
Málsnúmer 201307020

Hjalti gerði grein fyrir viðræðum við starfsmenn SASS um gerð atvinnustefnu.  Markmið að ljúka vinnunni fyrir árslok.  Taldi Hjalti mikilvægt að samræma aðgerðir og stefnu í landshlutanum og sveitarfélagsins.  Björn Ingi lagði áherslu á að stefnan tæki mið af samfélaginu á Hornafirði en ekki landshlutanum í heild.  Sagði Hjalti að það væri hugmyndin.

Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn.

9.
Kæra v. byggingaframkvæmdir á lóð í Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 200909003

Til kynningar.  Bæjarráð vísar málinu til starfsmanna.

10.
Byggingarmál í samþykktum
Málsnúmer 201307025

Framlagt minnisblað frá Sambandi sveitarfélaga vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.  Hjalti upplýsti að lögfræðingur sveitarfélagsins hafi unnið minnisblað um byggingar- og skipulagsmál.  Starfsmönnum falið að undirbúa sameiginlegan fund bæjarráðs og umhverfis- og skipulagsnefndar um byggingar- og skipulagsmál í sveitarfélaginu.

11.
Fundargerð stjórnar Sambands Íslenskra Sveitarfélaga
Málsnúmer 201307019

Rætt um framlög jöfnunarsjóðs og SIS mat er varðar fatlað fólk.

12.
Velferðarteymi fundargerðir
Málsnúmer 201302035

Undir þessum lið var rætt um þjónustu sálfræðings á Hornafirði.  Umræður eru í teyminu um hvort ráða eigi sálfræðing sem yrði búsettur á Hornafirði eða halda áfram verktakasamningi.  Guðrún ræddi um nýlegan fréttaflutning af þjónustu sálfræðings fyrir nemendur VMA.  Haukur Ingi greindi frá skoðun hans og velferðarteymis á kostnaði og verkefnum sálfræðings.  Sagði hann að heldur dýrara væri að ráða sálfræðing í fast starf en á sama hátt myndi tími hans og þjónusta að öllum líkindum nýtast mun betur.  Bæjarráð felur velferðarteymi áframhaldandi vinnu að málinu með það að markmiði að auka þjónustu sálfræðings á staðnum.

13.
Umsókn um byggingarleyfi - viðbygging Smyrlabjörgum
Málsnúmer 1306065

Bæjarráð samþykkir framlagt byggingarleyfi.

14.
Rekstrarleyfi - umsókn um endurnýjun leyfis fyrir Ránarslóð 2 og Hvannabraut 3-5
Málsnúmer 201307016

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

15.
Rekstrarleyfi - ósk um endurnýjun leyfis - Hrollaugstaðir
Málsnúmer 201307004

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

16.
Rekstarleyfi, Breiðabólstað endurnýjun leyfis
Málsnúmer 201307023

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

17.
Rekstrarleyfi -umsókn um nýtt leyfi - Díma starfst. Grund II
Málsnúmer 201307005

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

18.
Bókun á fundi HAUST v. leiktækja
Málsnúmer 201307009

Til kynningar.

19.
Starfsleyfi fráveitna - bréf frá HAUST
Málsnúmer 201307017

Ásgerður greindi frá fyrirspurn sem barst frá Hvítasunnukirkjunni um tengingu við fráveitu Hafnar.  Starfsmönnum  falið að vinna í málinu.

20.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100