Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

639. fundur
12. ágúst 2013 kl. 13:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Reynir Arnarson varaformaður
Björn Ingi Jónsson
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 48
Málsnúmer 1308003F

Björn Ingi greindi frá stöðu á 2 tunnu kerfi og umræðum í nefndinni um ramp sem þarf að setja upp. Guðrún benti á að þurfi að taka inn í kostnaðargreiningu sparnað vegna launakostnaðar í þjónustumiðstöð.

Umræður um útfærslur.

Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir við starfsfólk.

Fundargerð samþykkt.

2.
Skotsvæði fyrir Skotfélag Austur- Skaft.
Málsnúmer 201210045

Bæjarstjóri gerði grein fyrir samtali við Ingólf Einarsson formann Skotfélagsins.  Greindi Hjalti frá hugmyndum um skipulagt starf, m.a. fyrir unglinga.

Umræður um málið. Bæjarstjóra falið að ganga frá erindinu.

3.
Mikligarður - framtíð hans og bryggjuhúss
Málsnúmer 200804074

Bæjarstjóri greindi frá hugmynd sem hafi vaknað um að hefja undirbúning að lagfæringum á Miklagarði og framtíðarnýtingu.  Fyrstu skrefin yrðu að ráðast í bilin frá Verbúð að Graðalofti.  Hugmyndin væri ekki sú að sveitarfélagið myndi standa straum af öllum kostnaði við lagfæringar heldur yrði leitað eftir fjárframlögum og styrkjum.

Bæjarráð samþykkir að farið verði í að losa þann hluta hússins úr leigu.

4.
Áhersluatriði bæjarráðs í viðræðum við ríkið 2013-2014
Málsnúmer 201308003

Lögð fram drög að minnisblaði sem leggja á fyrir þingmenn og ráðherra.

Umræður um málaflokka og útfærslu. Bæjarráðsmenn komi áfram með ábendingar um áherslur í vinnslu málsins.

Bæjarstjóra falið að bóka fundi með ráðherrum og þingmönnum.

5.
Starfsemi við Jökulsárlón
Málsnúmer 201003029

Lagður fram úrskurður forsætisráðuneytisins dags. 25. júlí 2013 og erindi Samkeppnisstofnunar dags 2. ágúst 2013 sem fjalla hvort um sig um starfsemi við Jökulsárlón.  Lagt fram bréf frá Landslögum fh. Must visit ehf., dags 22. júlí 2013 um áskorun sveitarfélagsins 27. júní 2013 vegna starfsemi Must Visit ehf. við Jökulsárlón.  Lögð fram drög að erindi frá sveitarfélaginu til Must Visit ehf. vegna starfsemi Must Visit ehf. við Jökulsárlón.

Árni Helgason lögfræðingur var í síma undir þessum lið.

Umræður um málið.

Starfsmönnum falið að ganga frá erindinu við Must Wisit Iceland.

6.
Úttekt á leiktækjum í júlí 2013
Málsnúmer 201308008

Bæjarstjóri gerði grein fyrir símafundi með framkvæmdastjóra HAUST um málið.

Bæjarráð er sammála um að gerð verði bragabót á leikvöllum sem fyrst.

7.
Rekstrarleyfi fyrir Fjallastakk - Borgarhöfn 5
Málsnúmer 201308011

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

8.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100

Reynir óskaði eftir upplýsingum á næsta fund um hvernig undirbúningi að lagfæringum á fráveitu á hafnarsvæðinu miðaði. Starfsmönnum falið að undirbúa málið.

Guðrún lagði fram fyrirspurn um beitningu hrossa í byggð og sagði beitarhólf vera of nálægt byggð. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.

Guðrún benti á að kynna þurfi fyrir íbúum að vefmyndavélar í Bárunni sem eru á heimasíðu sveitarfélagsins, starfsmönnum falið að kynna og auglýsa vefmyndavélarnar.