Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

641. fundur
2. september 2013 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Reynir Arnarson varaformaður
Guðrún Ingimundardóttir áheyrnarfulltrúi
Valdemar Einarsson
Bryndís Bjarnarson
Haukur Ingi Einarsson (HIE)
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands - 36
Málsnúmer 1308012F
Valdemar lýsti yfir áhyggjum yfir halla á rekstri stofnunarinnar. Umræður um stöðu ljósmóður, kom fram að mæðravernd er tryggð í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 243
Málsnúmer 1308011F
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 37
Málsnúmer 1308009F
Fundargerð samþykkt.
4.
Lántaka
Málsnúmer 201305039
Haukur Ingi gerði grein fyrir lánasamningi við Sparisjóðinn.
Vísa lánasamningi við Sparisjóðinn til bæjarstjórnar.
5.
Sorphirða 2-3 tunnukerfi
Málsnúmer 201008066
Umhverfis-og skipulagsnefnd vísaði málinu til bæjarráðs til afgreiðslu. Áætlað er að þróa 2 tunnu kerfið á heimilum á Höfn og í Nesjahverfi í október sem tilraun fyrstu mánuðina. Stefnt að dreifbýli verði fái 2 tunnu kerfið á vormánuðum. Þá verði grenndargámar lagðir niður í þéttbýli. Sveitarfélagið mun byggja upp aðstöðu fyrir starfsemina og leigja aðstöðuna út. Lögð voru fram kynningargögn sem verða útfærð nánar.
Bæjarráð samþykkir fram lagða tillögu.
6.
Staða bæjarsjóðs 2013
Málsnúmer 201308064
Haukur Ingi gerði grein fyrir stöðu bæjarsjóðs og lagði fram sjö mánaða uppgjör. Staða bæjarsjóðs er eins og áætlanir gera ráð fyrir.
7.
Kaup á GPS tæki fyrir Hornafjarðarsöfn
Málsnúmer 201308065
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Hornafjarðarsafna, mætti á fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir minnisblaði sínu um kaup á GPS tæki fyrir Hornafjarðarsöfn.
Umræður um nýtingu á tækinu í héraðinu, kom fram að tækið er hægt að samnýta með öðrum stofnunum sveitarfélagsins.
Vísað til starfsmanna.
8.
Viðbragðshópur
Málsnúmer 201309001
Fundargerð frá viðbragðshópi sveitarfélagsins lögð fram. Kom fram að tækjakost þarf að endurnýja og samræma geymslustað fyrir viðbragðsaðila.
Vísað starfsmanna og almannavarnarnefndar til umfjöllunar.
9.
Fyrirspurnir - bæjarráð
Málsnúmer 201009100
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum sínum yfir fækkun þjónustufyrirtækja á Höfn og þeim störfum sem kunna að leggjast af í þeirri þróun.